Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
Rannsókn
Banani
vinsælastur
til að þykjast
svara í símann
Þetta staðfesta
vísindamenn við John
Hopkins háskóla.
Samkvæmt rannsókn sem vísinda-
menn við Johns Hopkins háskóla
birtu nýverið eru bananar sá
ávöxtur sem lang oftast er gripið í
þegar fólk þykist svara í símann.
„Rannsókn okkar sýnir að sá
hlutur sem fær fólk oftast til að
þykjast svara í símann sé ban-
ani, eða í nærri 100 prósent til-
fella.“ Þetta segir Martha Gross,
einn rannsakenda, sem benti á
að þegar fólk situr við hliðina á
ávaxtakörfu og byrjar að líkja
eftir símhringingu velji
það nær undantekninga-
laust að bera banana
upp að eyranu og útiloka
þannig alla aðra ávexti.
„Í rannsókninni var enginn
sem kallaði „halló?” í epli eða
þagði í nokkur augnablik með
plómu upp við eyrað til að hlusta á
hinn enda línunnar. Þá voru held-
ur ekki dæmi um að berjum rigndi
niður úr vínberjaklasa og viðkom-
andi segði: Klikk! Klikk!.“
Hjá langflestum sem hringja eða
svara ímynduðum símtölum með
ávöxtum, er það annað hvort ban-
ani eða ekkert. | bg
„Halló? Eridda
banana búðin?”
Líftími Íslendinga
oftast 2 til 4 ár
Fréttatíminn tók saman hver líftími Íslendinga væri ef eins væri
komið fyrir þeim og dýrum sem alin eru til matarframleiðslu. Flestir
lifðu í tvö til fjögur ár.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Dýrum sem eru alin til matar-
framleiðslu er úthlutaður stuttur
lífaldur. Mikill munur er á nátt-
úrulegum lífaldri dýra og þeim
lífaldri sem mannfólkið úthlutar
þeim.
Á hverju ári deyja um 1,2 millj-
arðar af tveimur milljörðum svína,
515 milljón kindur tveimur millj-
örðum og 300 milljón nautgripir
sömuleiðis af tveimur milljörðum.
Þá falla hátt í 50 milljarðar af 19
milljörðum hænsna. 55 millljón
manns deyja á hverju ári sem eru
0,8% mannkyns en í tilfellum dýra
sem maðurinn elur deyja 60%
svína, 50% kinda, 30% nautgripa
og 263% hænsna.
Til að viðhalda þessum
dýrastofnum samhliða þeim
fjöldamorðum sem á þeim eru
framin hefur maðurinn fundið
leiðir til að dýrin fjölgi sér stöðugt.
Sumir vilja líkja lífi þessara dýra
við útrýmingarbúðir því útrýming
þeirra er stöðug og staðföst.
Fréttatíminn skoðaði meðal-
líftíma dýra sem að staðaldri er
slátrað afar ungum. Það á við um
dýr sem alin eru upp með venju-
legum hætti, í ákveðinni starf-
semi, mannúðlega, með sjálfbærni
að leiðarljósi, fóðruð með grasi,
eða lífrænt ræktuð. Til saman-
burðar má sjá líftíma Íslendinga
en meðalaldur þeirra er 83 ár.
Dýr
Aldur þegar slátrað / Lífaldur
Maðurinn til samanburðar
Svín
6 mánuðir / 10—12
ár
Maðurinn 0—4 ára / 83 ára
Gyltur til undaneldis
3—5 ár/ 10—12 ár
Maðurinn 0—35 ára /
83 ára
Naut
18 mánuðir / 15—
20 ára
Maðurinn 0—7 ára / 83 ára
Mjólkurkýr
4 ár / 15—20 ár
Maðurinn 0—17 ára /
83 ára
Kjúklingur
5—7 vikur / Allt að
8 ár
Maðurinn 0—2 ára / 83 ára
Varphænur
1—2 ára / Allt að 8 ár
Maðurinn 0—21 árs /
83 ára
Lamb
6—8 mánuðir /
12—14 ára
Maðurinn 0—4 ára
/ 83 ára
Geit
12—20 vikur /
12—14 ár
Maðurinn 0—3 ára
/ 83 ára
Kálfur
1—24 vikur /
15—20 ár
Maðurinn 0—2 ára
/ 83 ára
Önd
7—8 vikur /
6—8 ár
Maðurinn 0—2 ára
/ 83 ára
Gæs
15—20 vikur /
8—15 ár
Maðurinn 0—3 ára
/ 83 ára
Kanína
10—12 vikur /
8—12 ár
Maðurinn 0—2 ára
/ 83 ára
Kalkúnn
4—5 mánuðir /
Allt að 15 ár
Maðurinn 0—3 ára
/ 83 ára
Sendum frítt
á næsta pósthús
ef verslað er fyrir
meira en 3.000 kr
á kunigund.is
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3310
þann 2. desember
Blaðauki um
jólaskraut
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3310
þann 16. desember
Blaðauki um
jólagjafir