Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
„Ég vaki í alltof marga klukkutíma,
búin að innbyrða alltof mikið af
koffíni í formi orkudrykkja og
kaffibolla. Klukkutímana fyrir próf
reyni ég að innbyrða eins mikið af
upplýsingum eins og ég get,“ segir
Sylvía Hall, nemi á lokaári í Verzl-
unarskóla Íslands um morguninn
fyrir próf.
Stress, svefnlausar nætur og
óregla eru kunnulegir hlutir hjá
nemendum í prófatíð. Gangar skól-
ans fyllast af stressuðum nemend-
um sem þylja upp glósur vetrarins
í von um að muna allt efni annar-
innar þegar þau setjast við próf-
borðið og andrúmsloftið er þungt.
„Ég vil engan tíma missa. Ég er
svo hrædd um að ég gleymi hlut-
um ef ég fer að sofa þannig að ég
keyri mig út í eins marga klukku-
tíma og ég get fyrir próf og vaki
alla nóttina. En það fylgir manni
ákveðið adrenalín þegar gengin
eru síðustu skrefin á leiðinni í
próf og það heldur mér gangandi í
gegnum þrekraunina.“
„Maður telur sekúndurnar fram
að því að dyrnar að prófstofunni
opnast. Ég tala aldrei við neinn
þegar ég kem inn á prófaganginn
því þá stressast ég öll upp. Mér
finnst best að vera ein og þess
vegna fresta ég eins og ég get að
fara inn á prófaganginn.“ Sylvía
segir að mikilvægt sé að hugsa vel
um sig þegar stress er svona mikill
hluti af deginum. Auk þess er mik-
ilvægt að hreyfa sig þegar óreglan
er svona mikil. „Mér finnst mjög
mikilvægt að hreyfa mig á morgn-
ana á prófatímanum, annars verð
ég klikkuð. Ég borða svo óhollt og
óreglulega og næ ekki að halda
neinni rútínu nema að fara í rækt-
ina. Eina jafnvægið sem finnst
í prófunum er hvað er ótrúlega
mikið ójafnvægi.“ | hdó
Morgunstund Próf, andvökunætur og koffín
Sylvía Hall segir stress og
svefnlausar nætur fylgja
prófatíðinni. Mynd | Rut
„Mér finnst þetta svo spennandi
ástand til að rannsaka og svo
er tíska í mínum huga mikill
draumaheimur. Föt eru ekki
bara föt, þau geta sagt
sögu og verið partur
af stærri heimi,“ segir
Hildur Yeoman fata-
hönnuður en fatalína
hennar, Transcendence
lendir í versluninni Ki-
osk nú í vikunni.
Hönnuðurinn fer
ótroðnar slóðir í list-
sköpun sinni og leitar
óhefðbundinna leiða
til að fá innblástur.
Fatalína listakonunnar
og fatahönnuðarins er
unnin út frá staðnum
á milli svefns og vöku.
„Transcendence er augna-
blikið þegar þú stendur á
brún ímyndunaraflsins og
lygnir aftur augunum og læt-
ur þig líða inn á lendur
hins óraunverulega, sem
er í senn hversdagsleik-
inn sem allir þekka. Ég fékk aðstoð
frá seiðkonu við að búa til seið sem
eykur draumfarir og vann mikið af
prentum út frá þessum seið.“
Hildur er þekkt fyrir að
nota náttúruna og galdra í
verkum sínum. Skartgripir
hennar hafa slegið í gegn
og má búast við nýjum
og ferskum gripum með
vísun í söfnunaráráttu
Hildar. „Hálsmenin eru
bróderuð með allskyns
steinum sem ég hef
sankað að mér. Ég er
mikill safnari, það eru
allar bækur heima hjá
mér fullar af þurrkuð-
um blómum og stráum.
Íbúðin mín er að breyt-
ast í frumskóg núna þar sem
ég er með plöntusöfnunar-
áráttu. Ég þarf fljótlega að
fara að stækka við mig til að
koma fleiri plöntum fyrir,“
segir hönnuðurinn og
hlær. | hdó
Hönnuðurinn
fær innblástur
frá staðnum
milli svefns
og vöku.
Draumaseiði og
söfnunarárátta
Hönnuður sem fer ótroðnar slóðir
til að finna innblástur.
Í nýju línunni mikið
af nýjum efnum, þar
má nefna ull.
Myndir | Saga Sig
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Við erum búnar að tala um þessa bókabúð mjög lengi, þetta er langþráður draumur hjá okkur. Þar að auki
var mikil eftirspurn eftir rými
í Reykjavík þar sem listamenn
og hönnuðir geta sýnt prent- og
bókverkin sín sem eru prentuð
í litlu upplagi. Okkur langaði að
vera með stað sem slík hefð og
kunnátta gæti verið sýnilegri
og jafnvel reynt að auka áhuga
á verkunum og hvetja fólk til
þess að gera meira af prent-
verkum,“ segir Halla Kristín
Hannesdóttir vöruhönnuður,
annar eigandi litlu bókabúðir-
innar Bækurnar á bakvið sem
opnar nú í vikunni.
Búðin opnar í bakherbergi í
listamannarekna sýningarým-
inu Harbinger við Freyjugötu.
Halla er aðstandandi búðarinn-
ar auk Steinunnar Önnudóttur,
myndlistarmanns, sem rekur
sýningarrýmið. Að sögn Höllu
er mikill áhugi á sjálfstæðri
bókaútgáfu á Íslandi. Búðin
hefur fengið góðar móttök-
ur og margir sótt um að vera
með. Prentið er ekki dautt
enda er borin mikil virðing
fyrir bókinni. „Við höfum báð-
ar ótrúlegan áhuga á bókinni
sem listformi og sem hlut. Það
er mjög sjaldan sem maður
hendir bókum, þetta er lang-
lífur hlutur. Maður á bækur
lengi og gefur þær frá sér eða
þær fara aftur í sölu. Þessar
góðu viðtökur okkar og fjöldi
þeirra sem hafa haft samband
við okkur varpar ljósi á það
hversu margir eru að vinna að
einhverju í höndunum en hafa
ekki stað til að sýna verkin. Það
er frábært hversu vel fólk tekur
í þetta.“
Stöllurnar eru búnar að vera
að líta í kring um sig í leit að
bókum í búðina og horfðu þær
út fyrir landsteinanna til að
auka fjölbreytileikann. „Við
erum búnar að vera velja efni
að utan. Fórum til Stokkhólms
að skoða lítið stúdíó sem okk-
ur þótti forvitnilegt og er að
gera sínar eigin bækur fyrir
listamenn og ljósmyndara. Við
bjóðum einnig upp á fræðibæk-
ur en mestmegnis leitumst við
eftir að hafa sjónrænar bækur
hérna hjá okkur í litlu bóka-
búðinni.“
Mikil virðing borin
fyrir bókinni
Forvitnileg bókabúð opnar nú í vikunni í bakherbegi
sýningarýmisins Harbinger við Freyjugötu. Þar verða í
forgrunni bækur sem einstaklingar eða hópar gefa út sjálfir
í litlu upplagi.
Það er mjög sjaldan
sem maður hendir
bókum, þetta er
langlífur hlutur.
Maður á bækur lengi
og gefur þær frá sér
eða þær fara aftur í
sölu.
Prentið er ekki dautt að mati Höllu og segir hún að bækur hafa þann
eiginleika að verða langlífar.
Halla segir mikinn áhuga
vera á sjálfstæðri bókaút-
gáfu í Reykjavík og lengi hafi
vantað stað til að selja þess
háttar bækur. Mynd | Hari