Fréttatíminn - 07.01.2017, Síða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017
Þau komu og fóru eins og venjulega, jól og áramót, sá tími ársins þegar kaup-menn keppast sem mest
um athygli neytenda. Gylliboðin
voru af ýmsu tagi og veski lands-
manna fóru á loft, kreditkortum
var sveiflað eins og enginn væri
morgundagurinn. Samt vitum við
öll að morgundagurinn kemur og
kortafyrirtækin gleyma engu. Það
kemur að skuldadögum.
„Drónar henta öllum heimil-
um.“ Þessa fullyrðingu mátti lesa
í blöðunum örfáum dögum fyrir
jól. Þetta var í kynningarblaði
þar sem mörkin milli blaðaum-
fjöllunar og kynninga fyrirtækja
eru stundum dálítið óskýr. Full-
yrðingin, sem kom reyndar frá
sölumanni í drónaverslun og sleg-
ið var upp í fyrirsögn, má teljast
nokkuð sérstök. Hvernig hentar
fljúgandi dróni hverju íslensku
heimili? Eiga heimilin þá ekki allt
til alls ef fljúgandi dróni er það
eina sem inn á þau vantar? Er
ekki þarna annað hvort um dýrt
útileikfang að ræða eða tæki sem
notað er í atvinnuskyni til að taka
myndir? Eða vantar hvert heimili
kannski einmitt bara eitt stykki
dróna?
Á Íslandi selja fjölmargar versl-
anir svona ómönnuð loftför, það
er víst rífandi gangur í þessum
bransa. Nafnorðið dróni er kom-
ið inn í nýyrðaorðabók, en orðin
flygildi eða vélfygli virka eitthvað
einkennileg og ná líklega seint
að fella þessa íslenskun enska
orðsins drone.
Drónatæknin er hins vegar
komin til að vera og er farin að
hafa mikil áhrif á kvikmynda- og
sjónvarpsþáttagerð. Úr mikilli
hæð er flogið yfir fjöll og firnindi,
ár og sanda, borg og bý. Kom-
ið hefur í ljós að Ísland er ansi
drónavænt land, fallegt að ofan
eða fjarskafallegt eins og stundum
er sagt.
Síðustu daga hefur nýtt íslenskt
drónamyndband vakið nokkra
athygli. Það var tekið á gamlárs-
kvöld þegar nýtt ár var að ganga
í garð. Í myndbandinu flýgur al-
sjáandi auga drónans yfir borgina
og horfir niður á springandi
flugeldana, á meðan við á jörðu
niðri mænum upp á litadýrðina.
Það er sérstakt og fallegt að sjá
þessa milljarðadýru skotgleði
landsmanna fuðra upp frá þessu
sjónarhorni, meðan fjarstýrður
dróninn svífur í rólegheitum yfir
borginni, nógu hátt til að vera
ekki í hættu á að vera skotinn
niður.
Tæknin breytir sýn okkar á heim-
inn og hvernig við upplifum hann.
Sumir vilja meina að sjálfur tím-
inn gangi að einhverju leyti hrað-
ar í skynjun okkar í dag vegna þess
að heilinn sé farinn að greina og
meðhöndla upplýsingar hraðar en
áður. Þá er bent á þann mikla upp-
lýsingastraum sem dynur á okkur
alla daga með símiðlun netsins.
Hvað situr eftir af þessum upplýs-
ingum er síðan annað mál.
Drónatæknin breytir líka sýn
okkar á heiminn. Tækið svífur
hægt og rólega í mikilli hæð og
virðist ná að hægja á skynjun
okkar um stund. Við horfum á
veröldina úr fjarlægð og hættum
að greina smáatriði og misfellur.
Veröldin verður einhvern veginn
fallegri en á jörðu niðri. Okkur
finnst við fljúga.
Erlendis eru menn farnir að
tala um sérstaka fagurfræði drón-
ans og hún stundum flokkuð með
því sem einhverjir vilja kalla Nýja
fagurfræði í samtímanum. Þá
er átt við hvernig ýmis stafræn
tækni blandar saman raunheimin-
um og heimi tækninnar í skynj-
un okkar. Með hjálp tækninnar
leggjum við til dæmis upplýsingar
ofan á götumyndir og kort, lag
fyrir lag. Tilbúnu lagi upplýsinga
er þannig hlaðið ofan á raunheim-
inn.
Myndbandið með sprengingun-
um á gamlárskvöld í Reykjavík er
vissulega fallegt en samt koma upp
í hugann önnur myndbönd, tekin
með drónum af allt annars kon-
ar myndefni og allt annars konar
borgum. Oftar og oftar sér mað-
ur átakasvæði í fjarlægum lönd-
um mynduð með þessari tækni. Í
fréttunum svífur dróni yfir eyði-
leggingunni í Aleppó, þar sem hús-
in standa í rúst í löngum röðum,
hundruðum og þúsundum saman.
Slíkt myndefni hefur einkenni-
leg áhrif á þann sem á horfir.
Myndirnar bera eyðileggingunni
auðvitað glöggt vitni en samt
er eins og þær dragi mestallan
mátt úr hryllingnum sem þarna
er á ferðinni. Sem áhorfendur,
í friðsælu skjóli og í allt öðrum
veruleika, skortir okkur allar
forsendur til að átta okkur á þeim
hryllilegu sprengingum sem lýst
hafa upp himininn yfir þessari
borg og þeim sem þar búa. Það
hafa ekki bara sprungið litfagrir
flugeldar.
Guðni Tómasson
VERÖLDIN
ÚR
LOFTI
Loksins skipti Bjarni kökunni
Sjálfstæðisflokkur
Viðreisn
Björt framtíð8.499 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a rs 2 0 1 7
8.999 kr.
PARÍS f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a rs 2 0 1 7
8.499 kr.
FRANKFURT f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
7.499 kr.
BRISTOL f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
7.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - f e b rú a r 2 0 1 7
7.999 kr.
BARCELONA f rá
T í m a b i l : m a rs 2 0 1 7
Hæ
Evrópa!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.