Fréttatíminn - 07.01.2017, Síða 19

Fréttatíminn - 07.01.2017, Síða 19
hverjum ástæðum ekki komið til lands aftur, nema þeim séu gef­ in grið. Skattaundanskot til af landa munu halda áfram meðan þeim eig­ ingjörnu gefst færi á þeim. Áfram sitjum við með kerfin og vonir um kerfisbreytingar sem kosta peninga. En bíðið bara: Við munum aftur segja saman Hú! saman, bara von­ andi ekki í tíma og ótíma. Innviðir Hluti kerfanna sem þurfa lagfær­ inga og breytinga við eru inn viðir samfélagsins, enn eitt áberandi orðið á nýliðnu ári. Þar er auð­ vitað ekki um nýtt orð að ræða heldur yfir færða merkingu orðsins úr heimi húsasmíða. Þó við séum aftur að tala um kerfi, vegakerfi og samskiptatækni, þá kemur fúi og mygla samt upp í hugann hér. Skortur á viðhaldi, níska í kaupum á fúavara á tréverk, getur aðeins af sér það eitt að innviðir verða að lok­ um í hættu. Burðarvirki hússins, jafnt sem burðarvirki samfélagsins, er ógnað. Þetta er gott orð, ágæt og skýr þýðing á erlendum „infrastrúktúr.“ Og aftur erum við að tala um kerfi, kerfin sem skipta svo miklu máli til að sem flestir fái að njóta sín: Samgöngu­ og sam­ skiptakerfi, mennta­ og heil­ brigðiskerfi. Þessi kerfi sem að stuðla að því að samfé­ lagið virkar eins og við viljum að það virki búa í þessum viðum. Kerfis­ og innviðatal kann að virka fráhrindandi fyr­ ir marga en umræða um það skiptir einfald­ lega miklu máli. Fyr­ ir þjóð er auðvelt að láta viðina fúna. Hatur Fyrirferðarmik­ ið orð á síðasta ári var orðið „hatursorð- ræða“. Það er ekki alveg nýtt a f nál inni. Orðið hefur verið í um­ ferð síðustu fjögur ár eða svo. Þetta er sérstakt orð og samsett úr einhverju ljótasta og tilf­ inningahlaðn­ asta orði sem við þekkjum (hatri) og fínu og fræðilegu orði (orðræðu), sem snýst um það hvernig hug­ myndir eru settar fram í ræðu, riti og ekki síst á samfélagsmiðlum nú til dags. Það er algjör óþarfi að sykur­ húða hatur. Hatursorðræða virkar því þannig eins og skrautlegri skikkju sé varpað yfir það sem hér er einfaldlega á ferðinni: Hatur sem byggt er á þröngsýni og for­ dómum einstaklinga og hópa á öðrum einstaklingum og hópum. Það hatur er byggt á hræðslu við breytingar sem alltaf eiga sér stað, í öllum samfélögum og á öllum tímum. Drögum ekki úr alvarleika orðsins. Hatur er djúp og ógeðfelld tilfinning sem vonandi sem fæstir rækta með sér. Ást Að lokum eitt alveg glænýtt, sem vonandi boðar bjartari tíma nú á nýju ári. Kannski kom sjálfur for­ seti Íslands með mikilvægt og gott orð fyrir þjóðina í nýársávarpi sínu og verður það að teljast falleg byrj­ un á orðasúpu ársins 2017. For­ setinn talaði um grunngildin í ís­ lensku samfélagi og nauðsyn þess að vernda réttarríki og velferðar­ samfélag „þar sem mannréttindi eru í hávegum höfð, jafnrétti kynj­ anna, trúfrelsi og ástfrelsi, málfrelsi og menningarfrelsi.“ Orðið ástfrelsi vekur athygli. Það er fallegt og kveikir von um nýja tíma. Kannski er kerfisbreytinga fyrst og fremst þörf í kollinum á okkur. Verðmat fasteigna verdmat.com | 19FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.