Fréttatíminn - 07.01.2017, Side 32

Fréttatíminn - 07.01.2017, Side 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017 Hvaða þættir eru mest spennandi á árinu? Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Dýrustu seríurnar Margar vinsælar framhaldsseríur munu halda áfram á árinu, sjálf er ég spenntust fyrir sjöundu seríu af Game of Thrones, en ég er mikill aðdáandi bæði bókanna og þátt- anna. Serían er væntanleg einhvern tímann í sumar, en annars eru fram leiðendur búnir að kvelja að- dáendur lengi með óvissu um frum- sýningardag. The Crown velti Game of Thro- nes úr sessi sem dýrasta sjónvarps- sería sögunnar. Önnur sería The Crown er væntanleg í nóvember og ég held að þættirnir eigi sér orðið marga aðdáendur hér á landi. Þá fylgjumst við áfram með ævi Elísa betar annar- ar Englandsdrottning ar. Stefnt er á að gera sex seríur í heildina, og tekur hver sería fyrir áratug í lífi drottningarinn- ar. Það verður líka spennandi að sjá hvernig framleið- endur haga leik- aravalinu og hvernig það heppnast, en það er búið að gefa það út að leikurunum verði skipt út eftir því sem persónur sögunnar eldast. Sci-Fi Árið 2016 var stórkostlegt ár fyrir Sci-Fi. Ein af sögum Stephen King 11.22.63 var matreidd í frábærri seríu með James Franco í aðalhlut- verki, þættir eins og Black Mirror héldu inn í þriðju seríu og náðu gersamlega nýjum hæðum, margir voru afskaplega ánægðir með teiknimyndasögurisann Marvel sem sjónvarpsvæddi bæði Luke Cage (einnig þekktur sem Power Man) og Jessicu Jones. Í lok ársins kemur síðan óvænt alveg hreint frábær kanadísk sería sem heitir Travelers. Þetta er besta tímaflakks sci-fi sem ég hef séð. Serían var sýnd á Netflix bara rétt fyrir jólin og það var sjálf- ur Eric McCormack, betur þekktur sem Will úr Will & Grace, sem fór með aðahlutverkið. Það er ekki búið að staðfesta aðra seríu en mér finnst mjög líklegt að af henni verði og að hún komi í lok næsta árs sem einskonar nördalegur jólapakki, og ég er afskaplega spennt fyrir því. Svo er nóg af nýju efni: Big Little Lies Í febrúar kemur HBO með morð- gátuna Big Little Lies, en þetta er gamansöm sjö þátta morðgáta, byggð á samnefndri skáldsögu, sem skartar leikkonunum Nicole Kidman, Shailene Woodley, Lauru Dern, og Reese Witherspoon. Sagan fjallar um húsmæður á fertugsaldri sem lifa svolítið firrtum lífsstíl í uppahverfi í Bandaríkunum. Það er eitthvað sem segir mér að þetta verði algjört dúndur, kannski af því að ég er aðdáandi Reese Wither- spoon og finnst hún ekki hafa feng- ið að njóta sín síðustu ár. Svo er líka ferskt að fá svona einstaka sinnum efni um kvenpersónur sem eru ekki tvítugar gellur, og svo er auðvitað fátt fyndnara en ofurríkt fólk í vand- ræðum. Ég hugsa að aðdáendur Desperate Housewifes eigi eftir að hoppa hæð sína yfir þessu. A Handmaid's Tale Í lok apríl kemur síðan sjónvarps- aðlögun þessar- ar mikilfenglegu skáldsögu rithöf- undarins Margar- et Atwood, sem gerist í dystópískri framtíð og fjallar í sem stystu máli um kvennakúgun og misbeitingu valds. Það er nú þegar búið að gera bæði kvikmynd og óp- eru eftir bókinni, þannig að það var kannski spurning um hvenær en ekki hvort sjónvarpið myndi matreiða þennan stórkostlega hrylling, sem kannski hefur aldrei átt meira er- indi við samtímann. Serían mun skarta þekktum leikurum; Samiru Wiley úr Orange is the New Black, Joseph Fiennes sem síðast sást í American Horror Story, Elizabeth Moss úr Mad Men og fleiri góðum. Þessir þættir verða örugglega einn af hápunktum ársins í sjónvarpi. American Gods Frægasta verk fantasíuhöfundarins Neil Gaiman er hérna loksins komið í sjónvarpsaðlögun og eru þættirnir væntanlegir í apríl. Það eru gamlar bransakempur sem sjá um handrit og framleiðslu, en Gaiman verður sjálfur aukaframleiðandi sem ætti að vera góðs viti upp á að þættirn- ir haldist sannir uppruna sínum. Þetta er samt engin risaframleiðsla, og það eru engar epískar stórstjörn- ur í leikhópnum, sem mér finnst oftast vera kostur frekar en löstur, það kippir manni stundum út úr sögunni að sjá smettið á einhverjum svakalega frægum. Það er kapal- stöðin Starz sem framleiðir þetta, þetta er líklega stærsta hennar ver- kefni hingað til, en hún tók við eftir að HBO risinn hafði slitið viðræð- um um framleiðslu. Þetta eru lítil nöfn með stór verkefni. Það verður áhugavert. Nína Richter sjónvarpsrýnir ræðir um áhugaverðustu sjónvarpsseríur á komandi ári. American Gods. A Handmaid's Tale. Nína Richter.  Sjá greinina í heild sinni á frettatiminn.is. ÚTSALA 30-50% AFSLÁTTUR Mikið úrval í stærðum14-28 eða 42-56 Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.