Fréttatíminn - 07.01.2017, Side 64
Álfheimar 74 - 104 Reykjavík - S: 414-4000 - www.hreyfing.is
Innifalið í Bestu aðild:
• Aðgangur að þjálfara í sal
• Sérhæfð æfingaáætlun og markmiðasetning
• Boditrax ástandsmælingar
• Aðgangur að heilsurækt, opnum hóptímum,
heitum og köldumpottum og gufuböðum á úti aðstöðu
• Aðgangur að Blue Lagoon spa, sloppur og handklæði
• Kísilleirmeðferð í Blue Lagoon spa
• 15% afsláttur af snyrti-, nudd- og spameðferðum
• Baðhandklæði í hverri heimsókn
• Vetrarkort Bláa Lónsins
• Frí barnagæsla
• Gestakort
• Kortið má leggja inn 2x ári
Njóttu lífsins og náðu þínum markmiðum með
aðstoð þjálfara
Janúartilboð
NÝTT!
Það getur verið mjög
einfalt að skipta út
óhollu hráefni fyrir
annað hollara án þess
að það komi niður á
bragðinu á matnum.
Maður þarf einfald-
lega að prófa sig
áfram. Hér eru fjórar
einfaldar leiðir að holl-
ari máltíðum.
• Skiptu út smjöri eða majónesi
fyrir avókadó. Það er ástæða
fyrir því að það komst í tísku
að borða ristað brauð með
avókadó. Það er einfaldlega
alveg jafn gott og ristað brauð
með smjöri, jafnvel betra. Próf-
aðu líka að nota avókadó í stað-
inn fyrir majónóes í salöt. Það
svínvirkar og er einstaklega
ljúffengt.
• Skiptu út olíu í kökuuppskriftum
fyrir eplamauk. Einn desilítri af
olíu verður að einum desilítra af
eplamauki. Kökurnar verða dún-
mjúkar og bragðgóðar.
• Notaðu haframjöl í staðinn
fyrir brauðrasp. Áferðin verð-
ur kannski ekki alveg sú sama
ef þú ætlar að nota mjölið til að
hjúpa kjúkling, en haframjölið
er mjög gott í hakkbollur og
kjöthleifi. Þú finnur engan mun.
• Maukaðu döðl-
ur og notaðu maukið
í stað sykurs. Þú finnur varla
muninn ef þú setur maukið í
kökur, smoothie eða ís. Bragð-
góður, hollari valkostur.
Gefðu
hrotunum gaum
Hrotur ætti aldrei að líta á
sem eðlilegan fylgifisk svefns,
jafnvel þó þær séu lágværar
og trufli engan. Hrotur geta
nefnilega verið vísbending um
kæfisvefn sem getur orsakað
blóþrýstingshækkun og leitt til
sjúkdóma í hjarta- og æðakerfi.
Ef þú eða einhver í kringum
þig hrýtur, eða vaknar alltaf
þreyttur, skaltu benda viðkom-
andi á að leita til læknis. Það er
auðvelt að greina kæfisvefn og
grípa til viðeigandi ráðstafana.
Fólk í yfirþyngd er í sérstökum
áhættuhópi fyrir kæfisvefn.
Hollari valkostir sem eru í alvöru bragðgóðir
28 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017HEILSUTÍMINN
Það er mikilvægt fyrir fólk sem
vinnur kyrrsetuvinnu, og situr
fyrir framan tölvu allan daginn,
að standa reglulega upp og
hreyfa sig aðeins. Að standa upp
á klukkutíma fresti og taka fimm
mínútna æfingu, getur nefnilega
gert kraftaverk, bæði fyrir líkam-
lega og andlega heilsu. Það þykir
sannað reglulegu hreyfing yfir
daginn, þó að hún standi stutt
yfir, dragi úr streitu, gefi aukna
orku, bæti skapið, dragi úr starfs-
leiða og löngun í óhollt millimál.
Þá liðkar hreyfingin líkamann og
minni líkur eru á ýmsum óþægind-
um sem gjarnan hrjá kyrrsetufólk.
Hreyfðu þig í 5
mínútur á 60
mínútna fresti
Að dýfa eplabitum í hreint hnet-
usmjör er dýrinds heilsunammi.
Það er svo fullkomið jafnvægi á
milli sætubragðsins af eplinu og
saltbragðsins af hnetusmjörinu.
En þó hreint hnetusmjör sé vissu-
lega í hollari kantinum þá er það
mjög fitandi og því ekki æskilegt
að borða það í miklu magni í einu.
Þetta vandamál má hins vegar
leysa á auðveldan hátt. Blandaðu
saman hnetusmjöri og fitulítilli
grískri jógúrt og notaðu sem dýfu
fyrir eplabitana. Blandaðu dýfuna
eftir smekk, en hafðu hana samt
þannig að saltbragðið nái ágæt-
lega í gegn. Þá ertu í góðum mál-
um og getur borðað mun meira af
eplum með hnetusmjörsdýfu.
Fituminni
hnetusmjörsdýfa