Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 2

Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 2
Frá kr. 159.995 m/allt innifalið COSTA DEL SOL 11. maí í 17 nætur Netverð á mann frá kr. 159.995 m.v. 2 í herbergi.Griego Mar Hotel Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Eldri borgarar Húsnæðismál  Með hækkandi fasteignaverði hefur þóknun sem greiðist til fasteignasala landsins farið hækkandi. Á síðustu sex mán- uðum má áætla að þóknun til fast- eignasala á höfuðborgarsvæðinu hafi numið um þremur milljörðum króna. Kjartan Hallgeirsson, for- maður Félags fasteignasala, telur að miðað við hve margir vinni í fag- inu sé þetta þó ekki há tala. Sökum fárra eigna sé nú samdráttur í sölu hjá mörgum fasteignasölum. Frá september til febrúarloka nam fjöldi kaupsamninga á höfuð- borgarsvæðinu 4.210 samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Á tíma- bilinu nam veltan 193,2 milljörðum króna og var því meðalsamningur metinn á 45,9 milljónir. Að jafnaði nemur þóknun til fasteignasala um 1,5 prósentum af kaupverði og má því á ætla að 2.897,9 milljónir króna hafi verið greiddar í þóknun á tíma- bilinu. Tæplega níutíu fasteignasöl- ur starfa á höfuðborgarsvæðinu og má því áætla að hver fasteignasala hafi að jafnaði fengið 32,2 milljónir í þóknun á tímabilinu, eða rúmlega fimm milljónir á mánuði. Kjartan Hallgeirsson telur að miðað við hve margir vinni í faginu sé þetta ekki há tala. „Dreifingin er ansi mikil á þessum þóknunum, ef þú skoðar þetta sem tímagjald þá eru þetta aldrei háar tölur." Kjartan segir að þóknanir vegna lítilla eigna hafi hækkað umtals- vert undanfarin misseri. Þóknanir hafa verið hærri samhliða aukinni veltu, en sökum færri eigna á sölu undanfarna mánuði hafi þær dreg- ist saman. Kjartan segir að áhrif þess muni birtast í veltutölum Þjóð- skrár Íslands á næstu mánuðum. „Þetta tengist auðvitað bara veltu þannig að þegar er meiri velta eru auðvitað hærri þóknanir. En þetta er eins og fiskiskip sem siglir áfram, stundum ertu að fá meiri afla og stundum minni og það þarf að fá jafnvægi.“ „Það eru miklu færri eignir að seljast núna, þannig að það er sam- dráttur í sölu hjá fasteignasölum. Þó að sé auðvelt að selja eru færri eignir til sölu og fjöldi fasteigna- sala til staðar og þar af leiðandi eru tekjurnar minni fyrir þá sem eru að vinna í þessu.“ saeunn@frettabladid.is Þóknanir hlaupa á þremur milljörðum Á síðustu sex mánuðum námu þóknanir til fasteignasala á höfuðborgarsvæð- inu um þremur milljörðum króna. Formaður Félags fasteignasala segir að sam- dráttur sé þó í sölu fasteigna, þóknanirnar dreifist víða og fáar eignir í boði. Stuð á degi heilags Patreks Mikið fjör var á írska barnum The Drunk Rabbit í miðbæ Reykjavíkur í gær. Þar var fólk komið saman til að fagna degi heilags Patreks. Er deginum oft fagnað með bjórdrykkju. Dagurinn er þjóðhátíðardagur Írlands en almennur frídagur á Norður-Írlandi. Fréttablaðið/Eyþór Það eru miklu færri eignir að seljast núna, þannig að það er samdráttur í sölu hjá fast- eignasölum. Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fasteignasala 32,2 milljónir fékk hver fasteignasala að meðaltali 45,9 milljónir var meðalupphæð kaupsamninga 4.210 kaupsamningar 2.898 milljónir fengu fasteignasölur í þóknun á tímabilinu 193,2 milljarða velta var á höfuð- borgarsvæðinu síðustu sex mánuði menningarmál   Útihurðirnar sem leiddu gesti og gangandi inn í verslunar- og veitingastaðinn Eden í Hveragerði á sínum tíma og sluppu óskaddaðar að utanverðu þegar staðurinn brann í júlí 2011 verða settar upp í Rósagarðinum, nýopnuðu veitingahúsi og rósa- ræktunarstöð. Edenhurðirnar eru skornar út af  Erlendi Magnússyni og sýna Adam og Evu í aldingarðinum Eden að því er segir  í fundargerð bæjarráðs Hveragerðis. Bærinn fékk hurðirnar að gjöf eftir brun- ann. „Bæjarráð samþykkir að hurð- irnar verði lánaðar til Rósagarðsins við Breiðumörk enda verði þeim gerður sómi og þær sýndar á áber- andi stað til minningar um Eden,“ segir bæjarráðið. Forsvarsmenn Rósagarðsins segjast munu gera hurðunum hátt undir höfði. – gar Hurðir úr Eden í Rósagarðinn Veður Á morgun er spáð austan 8 til 13 metrum á sekúndu. Snjókoma eða slydda í flestum landshlutum og hiti kringum frostmark. sjá síðu 50 Ferðaþjónusta Rannveig Snorra- dóttir, ferðaheildsali í Noregi, segir æ erfiðara að selja ferðir til Íslands vegna gengis og verðlagningar hér á landi. Tugir hópa hafa afbókað ferðir til landsins. Helga Árna- dóttir, framkvæmdastjóri SAF, hefur áhyggjur af stöðunni. „Ég er búin að fá mikið af afbók- unum á þær ferðir sem við höfum haft til boða því þær seljast ekki vegna gengis og verðlags. Þetta er staða sem ég hef óttast að gæti komið upp síðustu mánuði og nú er hún að raungerast,“ segir Rannveig. „Það segir nokkuð mikið þegar það er ódýrara að ferðast í Noregi en á Íslandi.“ Rannveig segir bæði sterka stöðu krónunnar vera vanda í íslenskri ferðaþjónustu en einnig sé vandinn að einhverju leyti heimatilbúinn. „Við höfum séð verðhækkanir hjá sumum aðilum á Íslandi sem ekki er hægt að útskýra með gengisþróun sem hægt er að kalla sem óraun- sæjar hækkanir.“ Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri SAF, segir stöðuna erfiða og minni og minni hagnaður sé af hverjum ferðamanni en áður. „Sterk staða krónunnar hefur vissu- lega áhrif á útflutningsgrein eins og ferðaþjónustu,“ segir Helga. „Verð- hækkanir og launaþróun hafa áhrif á verðlagningu.“– sa Ferðamenn hætta við Íslandsferð Verðlagið á Íslandi fælir ferðamenn frá landinu. Fréttablaðið/Ernir 1 8 . m a r s 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 7 8 -8 B A C 1 C 7 8 -8 A 7 0 1 C 7 8 -8 9 3 4 1 C 7 8 -8 7 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.