Fréttablaðið - 18.03.2017, Blaðsíða 18
Christine Ngulikiyinka er sendiherra Rúanda á Norðurlöndunum. Í vikunni kom hún til Íslands til að afhenda Guðna Th. Jóhannes-
syni trúnaðarbréf sitt.
Hún segir að árið 1994 hafi Rúanda
verið gjörsamlega í rúst eftir þjóðar-
morðið. Það þurfti að byggja algerlega
upp frá grunni og það þurfti að gera
það án fordæmis því hvergi annars
staðar hafði neitt þessu líkt gerst.
„Við þurftum að setjast niður til
að reyna að finna einhverja leið út úr
þessari afar erfiðu stöðu. Út úr öllum
þessum samræðum og hugmyndum
sem skoðaðar voru kom áherslan á
mikilvægi þess að við séum ein þjóð.
Við erum öll Rúandabúar og gamla
skiptingin í hútúa og tútsa þyrfti að
hverfa. Hútúar og tútsar eiga raunar
margt sameiginlegt og við vitum að
saman getum við náð langt en sundr-
aðir komumst við ekkert.“
Eitt af því fyrsta sem gert var, strax
í júlí 1994, var að taka úr persónuskil-
ríkjum fólks skráningu um það hvort
viðkomandi sé hútúi eða tútsi. En í
reynd var þetta erfitt ferli fyrir íbúa
landsins og er það enn í dag.
„Þetta gerðist í þorpunum og þar
vita menn nákvæmlega hver drap
hvern, og þekkja þá með nafni. Það
tók okkur töluverðan tíma að geta
undirbúið það, að byggja upp traust á
meðal íbúanna sjálfra, en það var afar
mikilvægt. Og það þurfti að byggja
upp traust til ríkisvaldsins, því það
var fyrrverandi stjórn sem skipulagði
morðin. Traustið var ekki lengur fyrir
hendi.“
Niðurstaðan varð sú að leita aftur
til gamalla hefða og endurvekja þær
til að byggja upp nýtt samfélag. Þessi
leið er í raun einstæð fyrir Rúanda og
hefur reynst vel, þótt misjafnlega hafi
gengið.
„Við tókum upp þessar gömlu
hefðir og aðlöguðum þær sam-
félagi samtímans. Við kölluðum þær
heimagerðar lausnir, lausnir sem
koma beint úr hefðum okkar og hafa
rúandísk heiti, þannig að allir skilja
strax að þetta er eitthvað sem Rúanda
stendur fyrir,“ segir hún.
„Sú vinsælasta kallast gacaca,
en það er eins konar hefðbundið
úrskurðarvald í ágreiningsmálum.
Við sáum að ef við ættum að fara
með öll afbrot tengd þjóðarmorðinu
í gegnum réttarkerfið þá myndi það
taka meira en hundrað ár, því við
vorum þá komin með 120 þúsund
fanga vegna þjóðarmorðsins. En við
þurftum að leita réttlætis til að geta
náð sáttum og byggja upp nýtt sam-
félag. Þannig að við fundum þessa
hefð sem við köllum gacaca, og hún
virkar ekki ósvipað gamla alþinginu
ykkar: Fólk kemur saman og ræðir
málin og finnur lausn.“
Hún segir að oft séu margir ekkert
almennilega sáttir við niðurstöðuna,
en viti samt að þetta sé það besta sem
hægt var að gera í stöðunni.
„Það mikilvægasta er ekki endilega
að refsa heldur að finna lausn til þess
að fólk geti haldið áfram að búa áfram
saman. Einn fær það á tilfinninguna
að réttlætinu hafi að einhverju leyti
verið náð fram, og annar fær það á til-
finninguna að hann geti komið aftur
inn í samfélagið eftir að hafa verið
kannski 15 eða 20 ár í fangelsi.“
Þetta er einmitt það sem er að
gerast núna. Þeir sem tóku þátt í
þjóðarmorðinu eru að koma aftur
inn í samfélagið eftir tuttugu ár eða
svo í fangelsi.
„Þeir eru að koma aftur inn í gömlu
hverfin, til sama fólksins sem þeir
voru kannski að reyna að drepa á
sínum tíma en gátu ekki. Fólkið lifði
af og býr nú í hverfinu eins og áður.
Þannig er ástandið og þetta er oft
mjög erfitt. En við erum með mjög
góðar aðgerðaráætlanir, bæði stjórn-
völd og óháð félagasamtök, sem eiga
að hjálpa fólki að ná saman og finna
sættir, fræða fólk um fyrirgefninguna
og um mannréttindi, að maður verði
að virða líf annarra. Þetta er gert til
þess að koma í veg fyrir að þessar
hörmungar endurtaki sig.“
Uppbyggingin hefur gengið ótrú-
lega vel. Hagvöxtur hefur verið mik-
ill á nánast hverju ári allt frá alda-
mótum, unnið hefur verið markvisst
gegn spillingu og verulega hefur
dregið úr fátækt þótt enn búi 37 pró-
sent landsmanna við mikla fátækt.
Ferðaþjónusta er hratt vaxandi
og Rúanda er eitt öruggasta land í
heimi. Og landið er orðið þekkt fyrir
það hve góður árangur hefur náðst í
því að jafna stöðu kynjanna.
„Konur eru nú 64 prósent þing-
manna í Rúanda,“ segir Nkulikiy-
inka. Hvergi er þetta hlutfall hærra.
Hún segist telja að sterk staða
kvenna í stjórnkerfinu eigi tölu-
verðan þátt í því hve vel hefur gengið
að ná sáttum í samfélaginu og vinna
að uppbyggingu.
„Konur gegna afar mikilvægu
hlutverki í samfélaginu, og það á
öllum sviðum. Þess vegna var það
svo mikilvægt að gefa konum tæki-
færi til að taka þátt í að byggja upp
samfélagið og vinna að sáttum,“
segir hún. „En það mikilvægasta í
þessu eru samt þau skýru skilaboð
sem stjórnvöld hafa gefið frá sér,
um að við séum ein þjóð og allir eigi
virðingu skilda. Það ríkir mikil bjart-
sýni í landinu núna.“
Konur gegndu lykilhlutverki
við uppbyggingu Rúanda
Rúandabúar hafa náð ótrúlega miklum árangri við að reisa landið úr rústum eftir þjóðarmorðið árið
1994. Öll áhersla hefur verið lögð á að ná sáttum og útrýma þeirri hatrömmu skiptingu í þjóðflokka
sem leiddi af sér hörmungarnar. Nú horfa þeir bjartsýnir til framtíðarinnar eftir að hafa fundið lausnina.
Christine Nkulikiyinka, sendiherra Rúanda, segir landið nú með þeim öruggustu í heimi. FRéttablaðið/EyþóR
Rúanda er fjöllótt smáríki í
mið-austanverðri Afríku, þrisvar
sinnum minna en Ísland að
flatarmáli en þar búa 12 milljónir
manna.
Stóri harmleikurinn í sögu
Rúanda er þjóðarmorðið árið 1994
þegar hútúar, sem eru í yfirgnæf-
andi meirihluta íbúa, réðust gegn
minnihlutahópi tútsa og myrtu
ríflega milljón manns á rúmlega
þremur mánuðum. Hinir myrtu
voru flestir tútsar en einnig urðu
hófsamir hútúar, sem vildu hlífa
tútsum, fyrir barðinu á morð-
æðinu.
Paul Kagame hefur verið forseti
síðan 2000, er nú 59 ára og sækist
eftir kjöri fyrir næsta kjörtímabil
í kosningum sem haldnar verða í
ágúst næstkomandi. Hann var yfir-
maður í þjóðernisfylkingu Rúanda,
FPR, stjórnmálaflokki útlægra tútsa
sem gripu til vopna og stöðvuðu á
endanum þjóðarmorðið.
Hann hefur stýrt uppbyggingu
landsins eftir þjóðarmorðið og
náð miklum árangri. Efnahagsupp-
gangur hefur verið mikill á síðustu
árum, fátækt hefur minnkað veru-
lega og lýðræði er í hávegum haft.
Hlutur kvenna í stjórn landsins
er nú meiri en í nokkru öðru ríki
heims.
Hlutur kvenna í stjórn Rúanda er nú meiri en í
nokkru öðru ríki heims. Paul Kagame er forseti.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Endurvaktar hefðir
GaCaCa
Hefðbundið úrskurðarvald:
Almenningur kemur saman til að
leysa úr ágreiningi og taka ákvarð-
anir með samræðum
GiRiNka
Ein kýr handa hverri fjölskyldu:
Þeir sem eru betur stæðir gefa fá-
tækri fjölskyldu eina kú, sem bæði
styrkir fjárhag hennar og eykur
virðingu hennar í samfélaginu. Hún
á síðan að gefa fyrsta kálfinn til
annarrar fátækrar fjölskyldu.
imihiGo
Frammistöðusamningur: Allir
embættismenn undirrita samning
um þau verkefni sem þeir ætla að
inna af hendi. Árlega er svo farið
yfir árangurinn.
UmUGaNda
Samfélagsstörf síðasta laugardag í
hverjum mánuði: Nágrannar koma
saman til að þrífa í hverfinu, lagfæra
og fegra umhverfið og huga að
ýmsu sem þarf að sinna
Við erum öll Rú-
andabúar og gamla
skiptingin í hútúa og tútsa
þyrfti að hverfa.
Christine Nkulikiyinka
Það mikilvægasta er
ekki endilega að
refsa heldur að finna lausn til
þess að fólk geti haldið að
búa áfram saman.
Christine Nkulikiyinka
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
8
-9
5
8
C
1
C
7
8
-9
4
5
0
1
C
7
8
-9
3
1
4
1
C
7
8
-9
1
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K