Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 88
Frakkar sendu árið 1802 herlið til Haítí til að berja niður í eitt skipti fyrir öll þrælauppreisn sem þar hafði staðið nánast samfleytt í áratug. Her-
förin varð misheppnuð. Sjúkdómar,
einkum gulusótt, hjuggu stór skörð
í hersveitirnar og þótt frönsku her-
foringjarnir litu niður á þeldökka
stjórnendur óvinanna, reyndust
heimamennirnir slyngari og gerðu
innrásarhernum ýmsar skráveifur.
Ógöngur franska herliðsins á
Haítí reyndust afdrifaríkar fyrir
þróun heimsmála. Þær urðu þeim
mikill álitshnekkir og drógu úr trú
umheimsins og Frakka sjálfra á að
þeir hefðu bolmagn til að verja lönd
og áhrifasvæði sín í Vesturheimi.
Napóleon, sem mátti heita einráður í
Frakklandi um þessar mundir, komst
að sömu niðurstöðu og ákvað að gefa
upp á bátinn alla stórveldisdrauma
í Norður-Ameríku, en einbeita sér
þess í stað að yfirvofandi átökum í
Evrópu.
Í ljósi þessarar nýju stefnu gengu
ríkisstjórnir Frakklands og Banda-
ríkjanna til samninga árið 1803,
þar sem stjórnin í
Washington festi
kaup á Louisiana.
Um var að ræða
gríðarstórt land-
svæði sem náði
allt frá núverandi
l a n d a m æ r u m
Kanada suður
til New Orleans
við Mexíkóflóa
og má því ekki
rugla saman við
samnefnt ríki í
Bandaríkjunum
í dag.
K a u p i n
vöktu hörð
v i ð b r ö g ð
m a r g r a
Bandaríkja-
manna, sem
margir sök-
uðu forsetann um
að taka sér völd og bentu á að stjórn-
arskráin veitti enga heimild til slíkrar
útþenslustefnu. Þá voru ýmsir ósáttir
við að Bandaríkin legðu Frökkum lið
gegn Bretum með svo beinum hætti,
en hagnaðurinn af sölu landsins rann
beint í stríðsundirbúning.
Með tímanum fékk kaupsamning-
urinn góð eftirmæli og er talinn hafa
skipt sköpum fyrir útþenslu hins
unga ríkis vestur á bóginn. Þegar leið
að aldarafmæli Louisiana-samkomu-
lagsins vildu íbúar hinna ört vaxandi
svæða vestan Mississ ippi-árinnar
minnast þess með veglegum hætti.
Því var ákveðið að efna til heimssýn-
ingar í borginni St. Louis í Missouri.
Deigla heimsins
„Louisiana Purchase Exposition“ eða
heimssýningin í St. Louis var opnuð
fyrir gestum þann 30. apríl árið 1904
og stóð í hálft ár. Enn í dag eru heims-
sýningar haldnar sem vekja athygli
víða um lönd, en þær komast þó ekki
í hálfkvisti við það sem tíðkaðist á
gullöld slíkra samkoma á ofanverðri
nítjándu öld og framan af þeirri
tuttugustu.
Heimsýningar þessar voru oftar
en ekki haldnar í minningu stór-
viðburða í sögu gestgjafalandanna.
Stjórnir viðkomandi ríkja veittu þá
drjúgar fjárhæðir til að gera sýning-
arnar sem veglegastar, auk þess sem
borgarstjórnir litu á þær sem auglýs-
ingu og tilefni til stórfelldrar innviða-
uppbyggingar. Heimssýningarnar
gegndu því svipuðu hlutverki og
Ólympíuleikar
eða stórmót í
k n a t t s p y r n u
gera í dag.
Ö l l h e l st u
fyrirtæki heims
vildu láta ljós sitt
skína á heims-
s ý n i n g u n u m ,
enda var vöru-
sýningarhlutinn
einna mikilvæg-
asti þáttur þeirra.
Þar voru veitt
verðlaun í hinum
ýmsu flokkum og
þótti mikil upp-
hefð fyrir framleið-
endur að geta bætt
viðurkenningum
frá heimssýningum
á umbúðir varnings
síns. Uppfinningamenn kepptust við
að sýna snilli sína á heimssýning-
unum, enda var áherslan á tækni og
framfarir yfirleitt mikil í dagskránni.
Þótt uppfinningarnar væru sjaldn-
ast búnar til sérstaklega með sýning-
ar þessar í huga voru þær vettvangur
til að kynna þær fyrir heiminum.
Þannig vakti röntgentæknin fyrst
heimsathygli á St. Louis-sýningunni.
Á sviði rafmagnsfræðinnar gat sömu-
leiðis margt að líta, þannig útbjó
vesturíslenski hugvitsmaðurinn
Hjörtur Þórðarson fyrsta milljón
volta spenninn í heiminum og sýndi
þar.
Jafnvel matargerðarlistin varð ekki
ósnortin. Þannig munu skyndirétt-
irnir hamborgari, pylsa og ís í brauð-
formi allir hafa slegið fyrst í gegn í St.
Louis og þaðan breiðst út um Banda-
ríkin. Rétt er þó að taka öllum slíkum
upprunaskýringum með nokkrum
fyrirvara.
Sýningarsvæðið var ógnarstórt
og vitaskuld þurftu gestirnir að hafa
fleira fyrir stafni en að dást að varn-
ingi og tækninýjungum. Boðið var
upp á ókjörin öll af listviðburðum
og skemmtunum. Þriðju nútímaól-
ympíuleikarnir og þeir fyrstu sem
haldnir voru í Ameríku, fóru fram
í tengslum við sýninguna, eins og
áður hefur verið rakið á þessum
vettvangi. Líkt og fjórum árum fyrr,
þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir
í París í tengslum við stóra vöru-
sýningu, vildu íþróttirnar drukkna
í öllum hamaganginum. Enn í dag
þrefa íþróttasagnfræðingar um hvaða
íþróttaviðburði eigi að telja til form-
legra Ólympíukeppna frá þessum
óreiðukenndu sumardögum í St.
Louis.
Manneskjur til sýnis
Líklega voru fæstir þeirra sem mættu
á heimssýninguna mikið að hugsa
um íþróttaúrslit, en öðru máli gegndi
um allar mannfræðisýningarnar
sem drógu til sín torfur áhorfenda.
Mannfræðisýningar voru
keimlíkar furðufyrirbæra-
sýningum þeim sem lengi
höfðu tíðkast í vestrænum
fjölleikahúsum og minntu í
raun á mennskan dýragarð.
Þannig gátu gestir gegn
vægu gjaldi fengið að berja
augum sjálfan Geronimo,
indíánahöfðingjann fræga,
sem sat fjörgamall og hreyf-
ingarlítill á stól til sýnis.
Aðstandendur mann-
fræðisýninganna í St. Louis
höfnuðu því þó alfarið að
þær ættu neitt sameiginlegt
með ómerkilegum fjölleika-
húsum. Þvert á móti væri
um hávísindalegt verkefni
að ræða sem unnið væri í
samvinnu við fræðimenn
og háskólastofnanir.
Um og fyrir aldamótin 1900 höfðu
Bandaríkin unnið mikla hernaðar-
sigra á Spánverjum og komist til
áhrifa í mörgum fjarlægum löndum,
svo sem í Austur-Asíu og á Kyrrahafi.
Þar komust þeir í kynni við ýmis
óvenjuleg samfélög innfæddra, sem
vöktu mikla forvitni landsmanna.
Bandaríkin voru skyndilega orðin
hálfgert nýlenduveldi, líkt og evr-
ópsku stórþjóðirnar og brugðust að
mörgu leyti eins við þeirri stöðu.
Á fyrri heimssýningum höfðu
mennskir dýragarðar verið settir
upp og vakið mikla athygli. Þar
höfðu fáeinar fjölskyldur, til dæmis af
„frumstæðum“ afrískum þjóðflokk-
um, verið hafðar til sýnis á sviði eða
innan girðingar þar sem undrandi
góðborgarar gátu gónt á klæðalitla
og húðflúraða blökkumennina.
Í St. Louis voru sýningarnar allt
aðrar og stærri í sniðum. „Sýningar-
gripirnir“ voru ekki taldir í tugum
heldur mátti sjá vel á annað þúsund
manns frá öllum heimshornum.
Litlir ættbálkar frá örsmáum Kyrra-
hafseyjum, fjöldi Japana sem klæddir
voru í gamaldags skrautbúninga,
norðuramerískir indíánar og afrískir
búskmenn – öllu ægði saman. Til að
upplifun gestanna yrði sem eðlileg-
ust var mikil áhersla lögð á að skapa
sem réttast umhverfi. Heilu afrísku
þorpunum og indíánatjaldbúðunum
var komið upp svo áhorfendur fengju
sem raunsæjasta innsýn í daglegt líf
fólksins á sýningunni. Leiktjöldin
voru þó vitaskuld blekking
og þátttakendurnir í raun
leikarar sem löguðu sig að
væntingum áhorfenda og
hegðuðu sér frekar í sam-
ræmi við þær hugmyndir
sem sýningargestir höfðu
um atferli fjarlægra þjóða
en raunveruleikann.
Stjórnendur mannfræði-
sýninganna í St. Louis litu
svo á að starf þeirra væri
hávísindalegt, í dag eru þær
taldar með groddalegri birt-
ingarmyndum þeirra rasísku
erfðafræðihugmynda sem
riðu húsum á Vesturlöndum
á þessum árum. Skipuleggj-
endurnir gáfu sér þá for-
sendu að hvítir Evrópubúar
og afkomendur þeirra væru
komnir lengst allra á þróun-
arbrautinni. Markmið þeirra var því
einkum að bera saman hina „óæðri“
kynþætti og leggja mat á þróunarstig
einstakra hópa.
Blásið til keppni
Þar sem mannfræðisýningarnar og
Ólympíuleikarnir voru hvort tveggja
hluti af sömu heimssýningunni,
kviknaði sú hugmynd að slá þrjár
flugur í einu höggi: að nýta íþrótt-
irnar til að flokka kynþættina, stað-
festa yfirburði hvíta mannsins og
skapa skemmtilega sýningu fyrir
áhorfendur. Útkoman varð furðuleg
blanda af vísindatilraun og íþrótta-
keppni, sem tveir menn báru öðrum
fremur ábyrgð á. Þeir voru mann-
fræðingurinn William John McGee
og íþróttaforkólfurinn James Edward
Sullivan.
McGee var aðalumsjónarmaður
mannfræðisýninganna í St. Louis
en Sullivan var aðalskipuleggjandi
Ólympíuleikanna. Sem forystumað-
ur í íþróttahreyfingunni var hann
afar íhaldssamur og stóð til að mynda
gegn því að konur kepptu í íþróttum
fyrir hönd Bandaríkjanna. Að hans
mati höfðu bandarískir háskólar
náð fullkomnun í íþróttaþjálfun og
bandarískir, hvítir háskólaíþrótta-
menn væru því hraustustu og heil-
brigðustu mannverur í heimi. Þeir
McGee og Sullivan sáu sér nú leik á
borði að sanna þá kenningu.
Íþróttakeppni kynþáttanna var
kynnt með pompi og prakt. „Hver
er konungur villimannanna?“ – var
spurt í auglýsingum. Safnað var
saman fulltrúum allra þeirra kyn-
þátta sem til sýnis voru á heims-
sýningunni og þeir látnir keppa
innbyrðis í fjölda íþróttagreina.
Útkoman varð hreinasta ringulreið.
Í fyrsta lagi var fólkið af sýning-
unni engir sérstakir íþróttamenn
og hafði jafnvel aldrei spreytt sig á
þeim greinum sem keppa átti í. Þeir
McGee og Sullivan ákváðu að banna
keppendunum að æfa sig, þar sem
það gæti spillt niðurstöðum til-
raunarinnar. Í tæknigreinum á borð
við spjótkast, bogfimi og hástökk
varð frammistaðan því afar döpur.
Þá gleymdist að útvega túlka til að
útskýra reglurnar fyrir í þátttak-
endum.
Ekki bætti úr skák að Sullivan
leit svo á að þar sem keppnin væri
óbeint hluti af Ólympíuleikunum
yrðu áhugamannareglur þeirra að
gilda. Enginn fékk því greitt fyrir þátt-
tökuna, sem þýddi að fólkið á sýning-
unni hafði takmarkaðan áhuga á að
taka þátt.
Til samanburðar við þennan her-
skara af byrjendum, létu þeir McGee
og Sullivan hóp þjálfaðra banda-
rískra íþróttamanna keppa í sömu
greinum. Útkoman varð vitaskuld
sigur hvíta mannsins. Þótt þessi
fáránlegi aðstöðumunur hefði mátt
vera öllum ljós, töldu félagarnir sig
hafa fengið endanlega sönnun á ras-
ískum hugmyndum sínum og voru
miklar ályktanir dregnar af tilraun-
inni um atgervi og stöðu einstakra
kynþátta á þróunarbrautinni. Í dag
ber þó vonandi öllum saman um
að keppnin sé ljótur blettur á sögu
nútímaólympíuleikanna, enda hefur
Alþjóðaólympíunefndin reynt að
má hana snyrtilega úr öllum sínum
plöggum.
Skrælingjaleikarnir
Mannfræðisýningar voru keimlíkar furðufyrirbærasýningum þeim sem lengi höfðu tíðkast í vestrænum fjölleikahúsum og minntu í raun á mennskan dýragarð.
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um vísindi á
villigötum.
Útkoman
varð
furðuleg
blanda af
víSinda-
tilraun og
íþrótta-
kePPni
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
7
8
-D
5
B
C
1
C
7
8
-D
4
8
0
1
C
7
8
-D
3
4
4
1
C
7
8
-D
2
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K