Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 88

Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 88
Frakkar sendu árið 1802 herlið til Haítí til að berja niður í eitt skipti fyrir öll þrælauppreisn sem þar hafði staðið nánast samfleytt í áratug. Her- förin varð misheppnuð. Sjúkdómar, einkum gulusótt, hjuggu stór skörð í hersveitirnar og þótt frönsku her- foringjarnir litu niður á þeldökka stjórnendur óvinanna, reyndust heimamennirnir slyngari og gerðu innrásarhernum ýmsar skráveifur. Ógöngur franska herliðsins á Haítí reyndust afdrifaríkar fyrir þróun heimsmála. Þær urðu þeim mikill álitshnekkir og drógu úr trú umheimsins og Frakka sjálfra á að þeir hefðu bolmagn til að verja lönd og áhrifasvæði sín í Vesturheimi. Napóleon, sem mátti heita einráður í Frakklandi um þessar mundir, komst að sömu niðurstöðu og ákvað að gefa upp á bátinn alla stórveldisdrauma í Norður-Ameríku, en einbeita sér þess í stað að yfirvofandi átökum í Evrópu. Í ljósi þessarar nýju stefnu gengu ríkisstjórnir Frakklands og Banda- ríkjanna til samninga árið 1803, þar sem stjórnin í Washington festi kaup á Louisiana. Um var að ræða gríðarstórt land- svæði sem náði allt frá núverandi l a n d a m æ r u m Kanada suður til New Orleans við Mexíkóflóa og má því ekki rugla saman við samnefnt ríki í Bandaríkjunum í dag. K a u p i n vöktu hörð v i ð b r ö g ð m a r g r a Bandaríkja- manna, sem margir sök- uðu forsetann um að taka sér völd og bentu á að stjórn- arskráin veitti enga heimild til slíkrar útþenslustefnu. Þá voru ýmsir ósáttir við að Bandaríkin legðu Frökkum lið gegn Bretum með svo beinum hætti, en hagnaðurinn af sölu landsins rann beint í stríðsundirbúning. Með tímanum fékk kaupsamning- urinn góð eftirmæli og er talinn hafa skipt sköpum fyrir útþenslu hins unga ríkis vestur á bóginn. Þegar leið að aldarafmæli Louisiana-samkomu- lagsins vildu íbúar hinna ört vaxandi svæða vestan Mississ ippi-árinnar minnast þess með veglegum hætti. Því var ákveðið að efna til heimssýn- ingar í borginni St. Louis í Missouri. Deigla heimsins „Louisiana Purchase Exposition“ eða heimssýningin í St. Louis var opnuð fyrir gestum þann 30. apríl árið 1904 og stóð í hálft ár. Enn í dag eru heims- sýningar haldnar sem vekja athygli víða um lönd, en þær komast þó ekki í hálfkvisti við það sem tíðkaðist á gullöld slíkra samkoma á ofanverðri nítjándu öld og framan af þeirri tuttugustu. Heimsýningar þessar voru oftar en ekki haldnar í minningu stór- viðburða í sögu gestgjafalandanna. Stjórnir viðkomandi ríkja veittu þá drjúgar fjárhæðir til að gera sýning- arnar sem veglegastar, auk þess sem borgarstjórnir litu á þær sem auglýs- ingu og tilefni til stórfelldrar innviða- uppbyggingar. Heimssýningarnar gegndu því svipuðu hlutverki og Ólympíuleikar eða stórmót í k n a t t s p y r n u gera í dag. Ö l l h e l st u fyrirtæki heims vildu láta ljós sitt skína á heims- s ý n i n g u n u m , enda var vöru- sýningarhlutinn einna mikilvæg- asti þáttur þeirra. Þar voru veitt verðlaun í hinum ýmsu flokkum og þótti mikil upp- hefð fyrir framleið- endur að geta bætt viðurkenningum frá heimssýningum á umbúðir varnings síns. Uppfinningamenn kepptust við að sýna snilli sína á heimssýning- unum, enda var áherslan á tækni og framfarir yfirleitt mikil í dagskránni. Þótt uppfinningarnar væru sjaldn- ast búnar til sérstaklega með sýning- ar þessar í huga voru þær vettvangur til að kynna þær fyrir heiminum. Þannig vakti röntgentæknin fyrst heimsathygli á St. Louis-sýningunni. Á sviði rafmagnsfræðinnar gat sömu- leiðis margt að líta, þannig útbjó vesturíslenski hugvitsmaðurinn Hjörtur Þórðarson fyrsta milljón volta spenninn í heiminum og sýndi þar. Jafnvel matargerðarlistin varð ekki ósnortin. Þannig munu skyndirétt- irnir hamborgari, pylsa og ís í brauð- formi allir hafa slegið fyrst í gegn í St. Louis og þaðan breiðst út um Banda- ríkin. Rétt er þó að taka öllum slíkum upprunaskýringum með nokkrum fyrirvara. Sýningarsvæðið var ógnarstórt og vitaskuld þurftu gestirnir að hafa fleira fyrir stafni en að dást að varn- ingi og tækninýjungum. Boðið var upp á ókjörin öll af listviðburðum og skemmtunum. Þriðju nútímaól- ympíuleikarnir og þeir fyrstu sem haldnir voru í Ameríku, fóru fram í tengslum við sýninguna, eins og áður hefur verið rakið á þessum vettvangi. Líkt og fjórum árum fyrr, þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í París í tengslum við stóra vöru- sýningu, vildu íþróttirnar drukkna í öllum hamaganginum. Enn í dag þrefa íþróttasagnfræðingar um hvaða íþróttaviðburði eigi að telja til form- legra Ólympíukeppna frá þessum óreiðukenndu sumardögum í St. Louis. Manneskjur til sýnis Líklega voru fæstir þeirra sem mættu á heimssýninguna mikið að hugsa um íþróttaúrslit, en öðru máli gegndi um allar mannfræðisýningarnar sem drógu til sín torfur áhorfenda. Mannfræðisýningar voru keimlíkar furðufyrirbæra- sýningum þeim sem lengi höfðu tíðkast í vestrænum fjölleikahúsum og minntu í raun á mennskan dýragarð. Þannig gátu gestir gegn vægu gjaldi fengið að berja augum sjálfan Geronimo, indíánahöfðingjann fræga, sem sat fjörgamall og hreyf- ingarlítill á stól til sýnis. Aðstandendur mann- fræðisýninganna í St. Louis höfnuðu því þó alfarið að þær ættu neitt sameiginlegt með ómerkilegum fjölleika- húsum. Þvert á móti væri um hávísindalegt verkefni að ræða sem unnið væri í samvinnu við fræðimenn og háskólastofnanir. Um og fyrir aldamótin 1900 höfðu Bandaríkin unnið mikla hernaðar- sigra á Spánverjum og komist til áhrifa í mörgum fjarlægum löndum, svo sem í Austur-Asíu og á Kyrrahafi. Þar komust þeir í kynni við ýmis óvenjuleg samfélög innfæddra, sem vöktu mikla forvitni landsmanna. Bandaríkin voru skyndilega orðin hálfgert nýlenduveldi, líkt og evr- ópsku stórþjóðirnar og brugðust að mörgu leyti eins við þeirri stöðu. Á fyrri heimssýningum höfðu mennskir dýragarðar verið settir upp og vakið mikla athygli. Þar höfðu fáeinar fjölskyldur, til dæmis af „frumstæðum“ afrískum þjóðflokk- um, verið hafðar til sýnis á sviði eða innan girðingar þar sem undrandi góðborgarar gátu gónt á klæðalitla og húðflúraða blökkumennina. Í St. Louis voru sýningarnar allt aðrar og stærri í sniðum. „Sýningar- gripirnir“ voru ekki taldir í tugum heldur mátti sjá vel á annað þúsund manns frá öllum heimshornum. Litlir ættbálkar frá örsmáum Kyrra- hafseyjum, fjöldi Japana sem klæddir voru í gamaldags skrautbúninga, norðuramerískir indíánar og afrískir búskmenn – öllu ægði saman. Til að upplifun gestanna yrði sem eðlileg- ust var mikil áhersla lögð á að skapa sem réttast umhverfi. Heilu afrísku þorpunum og indíánatjaldbúðunum var komið upp svo áhorfendur fengju sem raunsæjasta innsýn í daglegt líf fólksins á sýningunni. Leiktjöldin voru þó vitaskuld blekking og þátttakendurnir í raun leikarar sem löguðu sig að væntingum áhorfenda og hegðuðu sér frekar í sam- ræmi við þær hugmyndir sem sýningargestir höfðu um atferli fjarlægra þjóða en raunveruleikann. Stjórnendur mannfræði- sýninganna í St. Louis litu svo á að starf þeirra væri hávísindalegt, í dag eru þær taldar með groddalegri birt- ingarmyndum þeirra rasísku erfðafræðihugmynda sem riðu húsum á Vesturlöndum á þessum árum. Skipuleggj- endurnir gáfu sér þá for- sendu að hvítir Evrópubúar og afkomendur þeirra væru komnir lengst allra á þróun- arbrautinni. Markmið þeirra var því einkum að bera saman hina „óæðri“ kynþætti og leggja mat á þróunarstig einstakra hópa. Blásið til keppni Þar sem mannfræðisýningarnar og Ólympíuleikarnir voru hvort tveggja hluti af sömu heimssýningunni, kviknaði sú hugmynd að slá þrjár flugur í einu höggi: að nýta íþrótt- irnar til að flokka kynþættina, stað- festa yfirburði hvíta mannsins og skapa skemmtilega sýningu fyrir áhorfendur. Útkoman varð furðuleg blanda af vísindatilraun og íþrótta- keppni, sem tveir menn báru öðrum fremur ábyrgð á. Þeir voru mann- fræðingurinn William John McGee og íþróttaforkólfurinn James Edward Sullivan. McGee var aðalumsjónarmaður mannfræðisýninganna í St. Louis en Sullivan var aðalskipuleggjandi Ólympíuleikanna. Sem forystumað- ur í íþróttahreyfingunni var hann afar íhaldssamur og stóð til að mynda gegn því að konur kepptu í íþróttum fyrir hönd Bandaríkjanna. Að hans mati höfðu bandarískir háskólar náð fullkomnun í íþróttaþjálfun og bandarískir, hvítir háskólaíþrótta- menn væru því hraustustu og heil- brigðustu mannverur í heimi. Þeir McGee og Sullivan sáu sér nú leik á borði að sanna þá kenningu. Íþróttakeppni kynþáttanna var kynnt með pompi og prakt. „Hver er konungur villimannanna?“ – var spurt í auglýsingum. Safnað var saman fulltrúum allra þeirra kyn- þátta sem til sýnis voru á heims- sýningunni og þeir látnir keppa innbyrðis í fjölda íþróttagreina. Útkoman varð hreinasta ringulreið. Í fyrsta lagi var fólkið af sýning- unni engir sérstakir íþróttamenn og hafði jafnvel aldrei spreytt sig á þeim greinum sem keppa átti í. Þeir McGee og Sullivan ákváðu að banna keppendunum að æfa sig, þar sem það gæti spillt niðurstöðum til- raunarinnar. Í tæknigreinum á borð við spjótkast, bogfimi og hástökk varð frammistaðan því afar döpur. Þá gleymdist að útvega túlka til að útskýra reglurnar fyrir í þátttak- endum. Ekki bætti úr skák að Sullivan leit svo á að þar sem keppnin væri óbeint hluti af Ólympíuleikunum yrðu áhugamannareglur þeirra að gilda. Enginn fékk því greitt fyrir þátt- tökuna, sem þýddi að fólkið á sýning- unni hafði takmarkaðan áhuga á að taka þátt. Til samanburðar við þennan her- skara af byrjendum, létu þeir McGee og Sullivan hóp þjálfaðra banda- rískra íþróttamanna keppa í sömu greinum. Útkoman varð vitaskuld sigur hvíta mannsins. Þótt þessi fáránlegi aðstöðumunur hefði mátt vera öllum ljós, töldu félagarnir sig hafa fengið endanlega sönnun á ras- ískum hugmyndum sínum og voru miklar ályktanir dregnar af tilraun- inni um atgervi og stöðu einstakra kynþátta á þróunarbrautinni. Í dag ber þó vonandi öllum saman um að keppnin sé ljótur blettur á sögu nútímaólympíuleikanna, enda hefur Alþjóðaólympíunefndin reynt að má hana snyrtilega úr öllum sínum plöggum. Skrælingjaleikarnir Mannfræðisýningar voru keimlíkar furðufyrirbærasýningum þeim sem lengi höfðu tíðkast í vestrænum fjölleikahúsum og minntu í raun á mennskan dýragarð. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um vísindi á villigötum. Útkoman varð furðuleg blanda af víSinda- tilraun og íþrótta- kePPni 1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 7 8 -D 5 B C 1 C 7 8 -D 4 8 0 1 C 7 8 -D 3 4 4 1 C 7 8 -D 2 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.