Fréttablaðið - 18.03.2017, Blaðsíða 92
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
Markúsar Sigurðssonar
Rjúpnasölum 10, Kópavogi.
Sjöfn Ottósdóttir
Markús Þór Markússon Ingibjörg Jónasdóttir
Ottó Svanur Markússon
Sigurður G. Markússon Sigríður Eysteinsdóttir
Erla María Markúsdóttir Þorgrímur H. Guðmundsson
Guðrún Markúsdóttir Bjarni Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Óskarsson
byggingaverkfræðingur,
Suðurvangi 19a, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 9. mars síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Svava Gísladóttir
Guðrún Guðmundsdóttir Rúnar H. Steinsen
Guðmundur Rafn Guðmundsson Edda Freyja Frostadóttir
Óskar Guðmundsson Helga Jóna Sigurðardóttir
Ásgerður Guðmundsdóttir Jón Garðar Ögmundsson
Svava Guðmundsdóttir Eyþór Sigfússon
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Lundberg
Neskaupstað,
sem lést 14. mars, verður jarðsungin
frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn
23. mars kl. 14.00.
Sigurður R. Ragnarsson Ragnheiður Hall
Sigurborg Ragnarsdóttir
Kristrún Ragnarsdóttir Snorri Styrkársson
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem vegna andláts móður okkar,
Jórunnar Viðar
tónskálds,
sendu okkur blóm, skeyti og kveðjur.
Sérstakar þakkir fær Anna Sigríður
Pálsdóttir prestur sem jarðsöng hana. Allir
þeir frábæru tónlistarmenn sem komu að útförinni gerðu
hana ógleymanlega. Starfsfólki á Droplaugarstöðum
þökkum við frábæra umönnun undanfarin sjö ár.
Lárus, Katrín og Lovísa
Fjeldsted.
Elskuleg, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Aðalbjörg Jóna
Guðmundsdóttir
Lalla,
Garðabraut 45, Akranesi,
lést á Landspítalanum mánudaginn
13. mars. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 24. mars klukkan 13.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Gylfi Þórðarson
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir
Sólveig Jóna Ásgeirsdóttir
Ásgeir Ásgeirsson Hege Viken
Guðmundur Ásgeirsson Margrét Ýr Einarsdóttir
Agnar Ásgeirsson Elsa Jóna Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Sigríðar Ketilsdóttur
fyrrum húsmóður,
Torfum, Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Aspar- og Beykihlíðar
fyrir einstaka alúð og umönnun.
Smári Helgason Anna Jóhannesdóttir
Ketill Helgason Anna Gunnbjörnsdóttir
Sigurjón Helgason Sólrún Sveinbergsdóttir
Níels Helgason Sveinbjörg Helgadóttir
Jónína Helgadóttir Kristján Gunnþórsson
Guðjón Þór Helgason Erla Halls
Regína Helgadóttir
Gunnhildur Helgadóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
vegna fráfalls ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og frænku,
Elsu Finnsdóttur
Klapparstíg 42, Reykjavík,
sem lést 12. febrúar sl. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki hjúkrunarheimilisins Grundar.
Örn Arnar Ingólfsson
Karl Arnar Arnarson Rakel Edda Ólafsdóttir
Örn Arnar Karlsson Silja Jóhannsdóttir
Thelma Karlsdóttir Sindri S. Kolbeinsson
Elsa Rún, Matthildur Ylfa og Karólína Karlsdætur
Finnur Arnar Arnarson Áslaug Thorlacius
Salvör Thorlacius Finnsd. Árni Tómasson
Elsa Árnadóttir
Kristján, Hallgerður og Helga Thorlacius Finnsbörn
Guðrún Magnúsdóttir
„Jóhannes er tvífari minn og oft hefur
verið nefnt við okkur að við ættum
að koma fram saman. Hann er líka
skemmtilegur og það er glatt í kring
um hann,“ segir Guðni Ágústsson,
fyrrverandi ráðherra, og á hér auð
vitað við Jóhannes Kristjánsson eftir
hermu. Nú ætla þeir félagar að gera
sér dagamun og halda hátíðir þar sem
eftirherman og orginalinn láta gamm
inn geisa.
„Það er náttúrlega óborganlegt
að fylgjast með Jóhannesi breytast í
hinn og þennan karakterinn því hann
verður eins í framan og þeir sem hann
hermir eftir,“ bendir Guðni á og segir
okkur Íslendinga hafa átt margar góðar
eftirhermur en það sé eins og Jóhannes
sé miðill. „Hann holdgervist, verður eins
og fórnarlambið og nær töktum allra.“
Guðni segir Jóhannes oft hafa komið
í þinghúsið þegar hann starfaði þar
sjálfur. Þangað hafi hann komið til að
læra á nýja og nýja menn. „Þá sat hann á
svölunum og horfði á menn í ræðustóln
um því hann fer ekkert að herma eftir
mönnum nema ná öllu fasinu. Hann á í
fórum sínum heilmikið gallerí því hann
er búinn að vera fjöllistamaður í 40 ár.“
Það er sem sagt ekki þannig að
Jóhannes ætli bara að sérhæfa sig í
Guðna þegar þeir troða upp saman.
„Þá mundu menn ruglast á því hvor er
hvor,“ bendir Guðni réttilega á. Segir það
reyndar ekkert nýtt að þeim sé ruglað
saman. Það hafi oft gerst meðan hann
var landbúnaðarráðherra að fólk hafi
undið sér að Jóhannesi, heilsað honum
sem Guðna og farið að ræða við hann
um landsins gagn og nauðsynjar. Þeir
séu sláandi líkir en Jóhannes sé auk þess
sérfræðingur í tugum manna.
Guðni kveðst ekki hafa eftirhermu
listina á sínu valdi en hann kunni
margar sögur af skemmtilegu fólki. „Ég
hef heilmikið gert af því að vera sagna
maður á samkomum og stjórna veislum.
Mér þykir gaman að létta lund hjá fólki
og fá það til að hlæja.“
Tvíeykið ætlar að byrja í Félagsheimil
inu á Flúðum 24. mars. „Þeir eru óskap
lega skemmtilegir í uppsveitunum,
Tungnamenn, Hrunamenn, Skeiðamenn
og Gnúpverjar, það leikur um þá svo
ferskt fjallaloft. Við ætlum að sýna þeim
þann heiður að starta prógramminu hjá
þeim,“ segir Guðni hátíðlegur. „Daginn
eftir verðum við í nýju hóteli á Hvolsvelli
sem heitir Midgard. Rangæingar verða
með okkur þar. Síðan erum við ráðnir
bæði í Salinn í Kópavogi á tvær hátíðir
og á Landnámssetrið í Borgarnesi. Von
andi förum við miklu víðar. Þetta eru
bara fyrstu skrefin.“
gun@frettabladid.is
Fólk spyr sig hvor sé hvor
Félagarnir þeir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson eru að fara í skemmtibrans-
ann saman í tilefni nýlegs 40 ára starfsafmælis Jóhannesar sem eftirhermu á Íslandi.
Þeir kunna
að slá á létta
strengi og
fá fólk til að
hlæja félag-
arnir Guðni og
Jóhannes.
Fréttablaðið/
GVa
Ég hef heilmikið gert af
því að vera sagnamaður
á samkomum og stjórna veisl-
um. Mér þykir gaman að létta
lund hjá fólki og fá það til að
hlæja.
Guðni Ágústsson
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r44 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
7
8
-A
9
4
C
1
C
7
8
-A
8
1
0
1
C
7
8
-A
6
D
4
1
C
7
8
-A
5
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K