Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 92

Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 92
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Markúsar Sigurðssonar Rjúpnasölum 10, Kópavogi. Sjöfn Ottósdóttir Markús Þór Markússon Ingibjörg Jónasdóttir Ottó Svanur Markússon Sigurður G. Markússon Sigríður Eysteinsdóttir Erla María Markúsdóttir Þorgrímur H. Guðmundsson Guðrún Markúsdóttir Bjarni Ólafsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Óskarsson byggingaverkfræðingur, Suðurvangi 19a, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 9. mars síðastliðinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Svava Gísladóttir Guðrún Guðmundsdóttir Rúnar H. Steinsen Guðmundur Rafn Guðmundsson Edda Freyja Frostadóttir Óskar Guðmundsson Helga Jóna Sigurðardóttir Ásgerður Guðmundsdóttir Jón Garðar Ögmundsson Svava Guðmundsdóttir Eyþór Sigfússon afabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Lundberg Neskaupstað, sem lést 14. mars, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 23. mars kl. 14.00. Sigurður R. Ragnarsson Ragnheiður Hall Sigurborg Ragnarsdóttir Kristrún Ragnarsdóttir Snorri Styrkársson ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem vegna andláts móður okkar, Jórunnar Viðar tónskálds, sendu okkur blóm, skeyti og kveðjur. Sérstakar þakkir fær Anna Sigríður Pálsdóttir prestur sem jarðsöng hana. Allir þeir frábæru tónlistarmenn sem komu að útförinni gerðu hana ógleymanlega. Starfsfólki á Droplaugarstöðum þökkum við frábæra umönnun undanfarin sjö ár. Lárus, Katrín og Lovísa Fjeldsted. Elskuleg, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Aðalbjörg Jóna Guðmundsdóttir Lalla, Garðabraut 45, Akranesi, lést á Landspítalanum mánudaginn 13. mars. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 24. mars klukkan 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Gylfi Þórðarson Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir Sólveig Jóna Ásgeirsdóttir Ásgeir Ásgeirsson Hege Viken Guðmundur Ásgeirsson Margrét Ýr Einarsdóttir Agnar Ásgeirsson Elsa Jóna Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Sigríðar Ketilsdóttur fyrrum húsmóður, Torfum, Eyjafjarðarsveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks Aspar- og Beykihlíðar fyrir einstaka alúð og umönnun. Smári Helgason Anna Jóhannesdóttir Ketill Helgason Anna Gunnbjörnsdóttir Sigurjón Helgason Sólrún Sveinbergsdóttir Níels Helgason Sveinbjörg Helgadóttir Jónína Helgadóttir Kristján Gunnþórsson Guðjón Þór Helgason Erla Halls Regína Helgadóttir Gunnhildur Helgadóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Hjartans þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og frænku, Elsu Finnsdóttur Klapparstíg 42, Reykjavík, sem lést 12. febrúar sl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Grundar. Örn Arnar Ingólfsson Karl Arnar Arnarson Rakel Edda Ólafsdóttir Örn Arnar Karlsson Silja Jóhannsdóttir Thelma Karlsdóttir Sindri S. Kolbeinsson Elsa Rún, Matthildur Ylfa og Karólína Karlsdætur Finnur Arnar Arnarson Áslaug Thorlacius Salvör Thorlacius Finnsd. Árni Tómasson Elsa Árnadóttir Kristján, Hallgerður og Helga Thorlacius Finnsbörn Guðrún Magnúsdóttir „Jóhannes er tvífari minn og oft hefur verið nefnt við okkur að við  ættum að koma  fram saman.  Hann er líka skemmtilegur og það er glatt í kring­ um hann,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, og á hér auð­ vitað við Jóhannes Kristjánsson eftir­ hermu.  Nú  ætla þeir félagar  að gera sér dagamun og halda hátíðir þar sem eftirherman og orginalinn láta gamm­ inn geisa. „Það er náttúrlega óborganlegt að fylgjast með Jóhannesi breytast í hinn og þennan karakterinn því hann verður eins í framan og þeir sem hann hermir eftir,“ bendir Guðni á og segir okkur Íslendinga hafa átt margar góðar eftirhermur en það sé eins og Jóhannes sé miðill. „Hann holdgervist, verður eins og fórnarlambið og nær töktum allra.“  Guðni segir Jóhannes oft hafa komið í þinghúsið þegar hann starfaði þar sjálfur. Þangað hafi hann komið til að læra á nýja og nýja menn. „Þá sat hann á svölunum og horfði á menn í ræðustóln­ um því hann fer ekkert að herma eftir mönnum nema ná öllu fasinu. Hann á í fórum sínum heilmikið gallerí því hann er búinn að vera fjöllistamaður í 40 ár.“ Það er sem sagt ekki þannig að Jóhannes ætli bara að sérhæfa sig í Guðna þegar þeir troða upp saman. „Þá mundu menn ruglast á því hvor er hvor,“ bendir Guðni réttilega á. Segir það reyndar ekkert nýtt að þeim sé ruglað saman. Það hafi oft gerst meðan hann var landbúnaðarráðherra að fólk hafi undið sér að Jóhannesi, heilsað honum sem Guðna og farið að ræða við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Þeir séu sláandi líkir en Jóhannes sé auk þess sérfræðingur í tugum manna. Guðni kveðst ekki hafa eftirhermu­ listina á sínu valdi en hann kunni margar sögur af skemmtilegu fólki. „Ég hef heilmikið gert af því að vera sagna­ maður á samkomum og stjórna veislum. Mér þykir gaman að létta lund hjá fólki og fá það til að hlæja.“ Tvíeykið ætlar að byrja í Félagsheimil­ inu á Flúðum 24. mars. „Þeir eru óskap­ lega skemmtilegir í uppsveitunum, Tungnamenn, Hrunamenn, Skeiðamenn og Gnúpverjar, það leikur um þá svo ferskt fjallaloft. Við ætlum að sýna þeim þann heiður að starta prógramminu hjá þeim,“ segir Guðni hátíðlegur. „Daginn eftir verðum við í nýju hóteli á Hvolsvelli sem heitir Midgard. Rangæingar verða með okkur þar. Síðan erum við ráðnir bæði í Salinn í Kópavogi á tvær hátíðir og á Landnámssetrið í Borgarnesi. Von­ andi förum við miklu víðar. Þetta eru bara fyrstu skrefin.“ gun@frettabladid.is Fólk spyr sig hvor sé hvor Félagarnir þeir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson eru að fara í skemmtibrans- ann saman í tilefni nýlegs 40 ára starfsafmælis Jóhannesar sem eftirhermu á Íslandi. Þeir kunna að slá á létta strengi og fá fólk til að hlæja félag- arnir Guðni og Jóhannes. Fréttablaðið/ GVa Ég hef heilmikið gert af því að vera sagnamaður á samkomum og stjórna veisl- um. Mér þykir gaman að létta lund hjá fólki og fá það til að hlæja. Guðni Ágústsson 1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r44 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 7 8 -A 9 4 C 1 C 7 8 -A 8 1 0 1 C 7 8 -A 6 D 4 1 C 7 8 -A 5 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.