Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 6

Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 6
nýsköpun Þekkingarfyrirtækið Matís og Rannsóknarstofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunar- fræðum hafa fengið samþykki Vís- indasiðanefndar fyrir rannsókn á áhrifum blöðruþangs á bólguþætti hjá of þungum, fullorðnum ein- staklingum. Eins verður kannað hvort blöðruþang hafi áhrif á blóð- sykur og blóðfitu – og efnin geti nýst í baráttunni við þekkta lífsstílssjúk- dóma. Hörður G. Kristinsson, rann- sókna- og nýsköpunarstjóri Matís, útskýrir að svokallaðir bólguþættir séu undirliggjandi orsök í mörgum sjúkdómum – hjarta- og æðasjúk- dómum og liðagigt, svo dæmi séu tekin. „Við erum þó að skoða fleira, til dæmis andoxunarvirkni og hvort þangið geti jafnvel haft áhrif á þá þætti sem valda sykursýki. Við erum því að gera víðtæka skimun á þessu efni sem búið er að þróa. Rannsókn- in er til þess að sjá hvernig efnið virkar við inntöku hjá mönnum, en mikið liggur þegar fyrir úr til- raunum sem lofa mjög góðu,“ segir Hörður. Hráefnið blöðruþang, sem einn- ig er nefnt bóluþang, vex eingöngu í fjörum og er víða algengt í Norður- Evrópu – ekki síst hér á Íslandi. „Þetta var eitthvað nýtt hér fyrr á öldum en hefur verið vannýtt í samanburði við sumar aðrar þang- tegundir. Það skýrist af því að það er ekki sérstaklega bragðgott þegar það er borðað eitt og sér. Það sem við erum að gera er að draga út virku efnin í þanginu sem hægt er að neyta beint eða blanda í önnur matvæli,“ segir Hörður og bætir því við að þangið er nýtt annars staðar í heiminum en í litlum mæli – og ekkert hér á Íslandi í dag. En hvað ef þessi tilraun eða rann- sókn skilar góðum árangri? „Við erum að líta til fæðubótar- efna og markaðar fyrir þau. Þá væri hugmyndin sú að setja á fót fram- leiðslu hérna á Íslandi og framleiða meðal annars úr þessu þangi, og þá fyrir erlendan markað.  Ef vel gengur myndum við reyna að búa til nýjan iðnað úr ónýttu hráefni,“ segir Hörður en allt þangið er, og yrði, handskorið og þess gætt að hvert svæði sé vel hvílt á milli. Helstu matarholurnar eru kannski Breiðafjörður en mikið er af þessu þangi við Faxaflóa og Reykjanes – og reyndar í fjörum um allt land. svavar@frettabladid.is Kanna hvort blöðruþang nýtist gegn lífsstílssjúkdómum Matís og Rannsóknastofa í öldrunarfræðum hafa fengið grænt ljós frá Vísindasiðanefnd um rannsókn á áhrifum þangs gegn þekktum lífstílssjúkdómum. Nýr iðnaður í fæðingu ef vel tekst til. Mikið af þanginu finnst í íslenskum fjörum og er ónýtt hráefni í dag. Virku efnin í þanginu eru dregin út og notuð í matvæli. Handskera þarf blöðruþangið og ekki má taka of mikið í einu. Mynd/Matís l Þátttakendur í rannsókninni þurfa að vera fullorðnir ein- staklingar, 40 ára og eldri, með líkamsþyngdarstuðul (BMI) ≥ 27.  l Þungaðar konur eða konur með barn á brjósti eru útilokaðar frá þátttöku. l Einstaklingar sem hafa samband og hafa áhuga á að taka þátt í rannsókninni þurfa að draga úr neyslu á matvælum sem innihalda omega-3 og forðast lýsi í tvær vikur áður en íhlutun hefst og meðan á þátttöku stendur. l Blöðruþang/bóluþang (Fucus vesiculosus) er ríkt af joði, ómeltanlegri sterkju, salti og lífvirkum efnum. l Þangduftið verður til þegar ákveðin lífvirk efni eru dregin út úr því og einangruð. l Lífvirku efnin eru sett í hylki úr gelatíni til að auðvelda inntöku. l Notkun á þanginu til mann- eldis er þekkt og rannsóknir á lífvirkum efnum í því benda til þess að duft úr þanginu gæti haft jákvæð áhrif á lífeðlisfræði- legar breytur (bólguþætti og blóðsykur). Syrgðu fallna vini Íbúar í vesturhluta írösku borgarinnar Mósúl syrgja fallna ættingja og vini sem fórust í loftárás í gær sem beindist að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Íraski herinn reynir nú að bola hryðjuverkasamtökunum úr borginni og er hart barist. nordicpHotos/aFp Ef vel gengur myndum við reyna að búa til nýjan iðnað úr ónýttu hráefni. Hörður G. Kristins- son, rannsókna- og nýsköpunar- stjóri Matís Fyrir 40 ára og eldri í yfirþyngd stjórnsýsla Minnihluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur óskað eftir sérstökum fundi nefndarinnar vegna nýfallins dóms Mannrétt- indadómstóls Evrópu í máli Stein- gríms Sævars Ólafssonar. Minnihlutinn telur dóminn vekja spurningar um núverandi lagaum- gjörð tjáningarfrelsis á Íslandi. Að mati minnihlutans þarfnast málefnið frekari skoðunar og ósk- aði hann því eftir að nefndin haldi sérstakan fund. Vill minnihlutinn að boðaður verði álitsgjafar og sér- fræðingar til þess að ræða málið sem allra fyrst. Í tilkynningu sem Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sendi fjölmiðlum segir að efni fundarins muni snúast um hvernig bæta megi íslenska lagaum- gjörð til þess að tryggja betur vernd tjáningarfrelsis á Íslandi. Einnig verði að komast að því hvernig best verði tryggt að Ísland uppfylli kröfur Mannréttindasátt- mála Evrópu um vernd tjáningar- frelsis, sem og sambærilegra ákvæða í öðrum mannréttindasáttmálum sem ríkið hefur gengist við. Minnihlutinn hefur því óskað eftir að fá á fundinn fulltrúa frá Hæstarétti Íslands, fulltrúa frá dómsmálaráðuneytinu, fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu, fulltrúa frá mannréttindaskrifstofu Íslands eða mannréttindaskrifstofu Háskóla Íslands auk sérfræðinga í dómum Mannréttindadómsstóls Evrópu. Þá hefur fulltrúa blaðamanna verið boðið á fundinn en fimm sinnum hefur Mannréttindadómstóllinn snúið við dómi Hæstaréttar . – jhh Vilja fund eftir dóm Steingríms Þórhildur sunna Ævarsdóttir, þing- maður pírata samfélag Hjólasöfnun Barna- heilla - Save the Children á Íslandi er hafin. Er þetta í sjötta sinn sem hjólasöfnunin fer fram en hún er unnin í samstarfi við Æskuna, Sorpu og ýmsa velunnara. Er mark- miðið að koma ónotuðum hjólum í notkun á ný. Hjólin  eru gefin börnum sem hafa ekki kost á að kaupa sér reið- hjól og er hægt að sækja um hjól hjá félagsþjónustu sveitarfélaga. Verður hjólunum safnað á endur- vinnslustöðvum Sorpu, þau gerð upp af sjálfboðaliðum og svo afhent. Í tilkynningu frá Barnaheillum kemur fram að um 1.200 börn hafi notið góðs af fyrri hjólasöfnunum. Í ár afhenti Vilhelm Anton Jónsson, leikari og tón- l i s t a r m a ð u r , fyrsta hjólið. – þea Villi Naglbýtur gaf fyrsta hjólið í hjólasöfnun Barnaheilla í ár Vilhelm anton Jónsson 1 8 . m a r s 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 7 8 -B 3 2 C 1 C 7 8 -B 1 F 0 1 C 7 8 -B 0 B 4 1 C 7 8 -A F 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.