Fréttablaðið - 18.03.2017, Side 40
Elsa Nielsen, grafískur hönnuður og myndlistamaður. myNd/gva
Í dag verður opnuð sýningin Stóll í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ þar sem fjöldi stóla
eftir íslenska hönnuði verður til
sýnis. Samhliða sýningunni mun
Elsa Nielsen, grafískur hönn-
uður og myndlistarmaður, sýna
teikningar sínar af hluta stólanna
undir heitinu #einnádag auk þess
sem veggspjald og póstkort með
teikningum hennar verða til sölu í
safninu.
Það var Harpa Þórsdóttir, for-
stöðumaður Hönnunarsafnsins,
sem hafði samband við Elsu á
síðasta ári eftir að hafa fylgst með
#einádag teikningunum hennar
árið 2015. Þar skrásetti Elsa líf sitt
með því að teikna eina mynd á dag
úr lífi sínu og birta á Facebook og
Instagram.
Upphaflega bað hún Elsu um að
teikna nokkra valda gripi úr safn-
eigninni og varð stólasafnið fyrir
valinu. Þá segist Elsa hafa komið
með hugmyndina að teikna einn
stól á dag í febrúar og leyfa þannig
fólki að fylgjast með verkefninu
fæðast. „Þannig fléttaðist skipulag
sýningar þeirra og teikningarnar
mínar svona skemmtilega saman.
Í tilefni af HönnunarMars hóf ég
leikinn á Safnanótt, þann 3. febrúar
síðastliðinn, og teiknaði einn stól
á dag í febrúar, #einnádag. Það
var erfitt að velja stólana því það
eru margir áhugaverðir stólar til á
safninu. Starfsfólk safnsins valdi
28 stóla út frá hönnunarsögu og
einnig með það í huga að sýna fjöl-
breytileikann í íslenskri hönnun.
Stólarnir eru eftir jafn marga flotta
ólíka hönnuði.“
Fræðandi
verkefni
Veggspjaldið
sem selt er í
Hönnunarsafn-
inu er í stærðinni
50x70 cm og
einnig verður selt
úrval gjafakorta
með teikningum
af íslenskum
stólum. „Ágóði af
sölu þessara vara
rennur til upp-
byggingar safn-
kosts safnsins, sem
felst í að kaupa íslenska hönnun af
íslenskum hönnuðum.“
Elsa segir verkefnið hafa verið
mjög skemmtileg og fræðandi.
„Marga af þessum stólum þekkti ég
fyrir, en það voru einnig nokkrir
sem ég hef oft séð og ekki áttað
mig á að væru íslensk hönnun.
Það sem mér fannst samt standa
upp úr er þegar Sóley vinkona mín
sá teikninguna af stólnum Sóley
á Instagram undir #einnádag. Þá
sagði hún mér að pabbi hennar,
Valdimar Harðarson, hefði hannað
hann á sínum tíma og nefnt
stólinn í höfuðið á henni. Stór-
skemmtileg fróðleiksviðbót sem
ég vissi ekki af. Stóllinn Sóley er
eitt fárra íslenskra húsgagna sem
hefur náð vinsældum á alþjóðavísu
og vakti mikla athygli þegar hann
kom á markað árið 1984.“
Nýjar vörur á leiðinni
Myndasería Elsu frá 2015, #einádag,
hefur heldur betur dregið dilk á
eftir sér. „Ég fékk styrk frá Hönn-
unarsjóði til að efla vörulínu úr
#einádag teikningunum mínum og
nú bíð ég spennt eftir sýnishorni af
sængurverasetti og fleiri servíettum.
Þetta litla teikniverkefni sem hófst
1. janúar 2015 er því aldeilis búið að
taka skemmtilega stefnu upp á við.“
Nú styttist í HönnunarMars og
ætlar Elsa að vera vakandi og næra
sálina með fallegri hönnun og fróð-
leik að eigin sögn. „Svo er ég með
í samsýningu á Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsinu, en þar sýnum
við nokkrir grafískir hönnuðir
góðar tillögur sem var hafnað og
litu aldrei dagsins ljós. Svo vonast
ég til að samstarf mitt við Hönn-
unarsafn Íslands haldi
áfram og ég fái að
teikna fleiri hluti úr
sameign safnsins í
framtíðinni.“
Sýningin Stóll
verður opnuð í
dag, laugardaginn
18. mars kl. 15, og
stendur yfir til sunnu-
dagsins 18. júní. Nán-
ari upplýsingar má
finna á www.honn-
unarsafn.is. Fylgjast
má með teikningum Elsu á
Instagram (@ elsanielsen).
Einn íslenskur stóll á dag
Úrval íslenskra stóla frá liðnum áratugum verður til sýnis í Hönnunarsafni
Íslands næsta mánuðinn ásamt teikningum Elsu Nielsen af hluta þeirra.
Vörunúmer: 34268-0000
Í Danmörk kr 15.883*
Í Svíþjóð kr 13.680*
*skv.verðskrá levi.com og gengistöflu
Íslandsbanka 16.03.17
501 SKINNY KR.
13.990
Leví s Kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi
4 KyNNINgaRBLaÐ FÓLK 1 8 . m a r s 2 0 1 7 L aU g a R dag U R
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
7
9
-1
5
E
C
1
C
7
9
-1
4
B
0
1
C
7
9
-1
3
7
4
1
C
7
9
-1
2
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K