Fréttablaðið - 18.03.2017, Qupperneq 96
Snyrtistofan Ha lik
MARGIR HALDA ÞAÐ SÉ EKKI HÆGT AÐ
FJARLÆGJA HÁRÆÐASLIT ÚR ANDLITI
HÁRÆÐASLITSMEÐFERÐ
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Fyrir Eftir
Fyrir Eftir
Hekla Björt
Haraldsdóttir
níu ára er höf-
undur þessarar
myndar.
Listaverkið
Bragi Halldórsson
241
„Næsta þraut er eldspýtnaþraut,“ sagði Lísaloppa. „Þá fer nú fyrst að
vera gaman,“ tísti í Kötu. „Eigum við kanski að kveikja í einhverju?“
bætti hún við glottandi. „Nei,“ sagði Lísaloppa. „Við eigum að færa
þrjár eldspýtur, þannig að það myndist eingöngu þrír ferhyrningar.“
„Auðvitað veit ég hvernig eldspýtnaþrautir eru,“ sagði Kata. „ég var
bara að grínast “
Getur þú hjálpað Lísuloppu og Kötu að leysa þessa eldspýtnaþraut?
Færðu þrjár eldspýtur svo úr verði þrír ferhyrningar.
Leikurinn hefst á því að
leikmenn stilla sér upp í
röð út frá vegg, þannig
að einn stendur bak
við annan. Sá fremsti
kastar boltanum í
vegginn fyrir framan
sig og hoppar yfir
hann þegar
hann kemur til baka
þannig að boltinn fer
gegnum klofið á honum.
Sá sem er næstur í röðinni á að
grípa boltann og gera síðan
alveg eins en sá sem
var fremstur færir sig
aftur fyrir röðina.
Þannig gengur það
koll af kolli þangað
til aftur kemur
að þeim fyrsta,
þá hoppar hann
tvisvar, svo þrisvar
og svo koll af kolli. Ef
einhverjum mistekst er sá
fúlegg og er úr leik.
Hænan verpir eggjum
Ísak Leó Freysson er 10 ára drengur
sem býr í Norðlingaholti. Hann
verður 11 ára í ágúst. Hann horfir á
Svamp Sveinsson ef hann kveikir á
sjónvarpinu en þess á milli teiknar
hann á blað og gerir það listavel.
Hvað horfir þú helst á í sjónvarp-
inu? Svamp Sveinsson.
Áttu sérstök áhugamál? Já.
Nokkur. Að teikna finnst mér
skemmtilegt og dansa.
Ef þú værir sögupersóna í ævin-
týri, hver myndir þú helst vilja
vera? Ég veit það ekki alveg. Ég er
ekki alveg viss.
Hvað er það skrýtnasta sem þú
hefur lent í? Það hefur ekki neitt
skrýtið komið fyrir mig.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Grjónagrautur sem mamma
og pabbi gera.
Hvaða matur finnst þér verstur?
Fiskurinn í skólanum.
Í hverju ertu bestur? Örugglega
að teikna. Ég er eiginlega alltaf að
teikna.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Bíða. Það er ekkert
skemmtilegt við það.
Áttu einhver gæludýr? Já. Ég á
hund sem heitir Hneta.
Hvað langar þig mest að verða
þegar þú verður stór? Ég er ekki
alveg viss.
Hvað langar þig alls ekki að
verða þegar þú verður stór?
Skurðlæknir. Þeir eru alltaf að
vinna með svo mikið blóð.
Ekkert skemmtilegt
að þurfa að bíða
Ísak Leó Freysson er efnilegur teiknari. FréttabLaðið/Eyþór
Ísak Leó finnst fátt
betra en þegar for-
eldrar hans elda
grjónagraut. Fiskur-
inn, sem í boði er í
skólanum hans, er
hins vegar ekki jafn
góður. Hann á einn
hund sem heitir
Hneta.
1 8 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r48 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
7
8
-D
0
C
C
1
C
7
8
-C
F
9
0
1
C
7
8
-C
E
5
4
1
C
7
8
-C
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K