Fréttablaðið - 18.03.2017, Blaðsíða 112

Fréttablaðið - 18.03.2017, Blaðsíða 112
Svala Björgvins undirbýr sig um þessar mundir fyrir að syngja þakið af húsinu í Kiev í maí. l í f i ð ∙ f R É T T A - Fyrsta flúrið mitt er dreki sem Fjölnir gerði fyrir löngu síðan. Ég er fædd á ári drekans og fékk mér svokallaðan „water dragon“ á magann,“ segir Svala Björgvinsdóttir söngkona, en eins og flestir hafa tekið eftir er Svala með fjölda fallegra húðflúra sem hún hefur fengið sér í gegn um tíðina. Öll flúrin sem Svala er með eiga að geyma persónulega minningar. Ári eftir að Svala lifði af alvarlegt bíl- slys 9. apríl 2008, fékk hún sér til að mynda japanska ermi, eða eins og það er kallað í tattúheiminum „full sleeve“ sem vinkona hennar Sophia Estrella hannaði og flúraði. „Hún var á þeim tíma að vinna á Reykjavík Ink. Ég vildi fá mér fallegt listaverk á allan handlegginn til að fagna lífinu og það tók fimm skipti að búa til flúrið og fimm til sex klukkutíma í hvert skipti,“ útskýrir Svala. Nýjasta flúrið hennar Svölu vakti talsverða athygli, þegar hún kom fram og sigraði söngvakeppni sjón- varpsins sem fram fór um síðustu helgi. Flúrið var virkilega áberandi og á mjög sjaldgæfum stað. „Þegar ég átti afmæli á þessu ári, gaf Einar eiginmaðurinn minn mér eitt fallegasta flúr í heiminum, hannað af Fran Fernandez sem er frægur flúrari frá Barcelona og mikill listamaður. Það vildi svo skemmti- lega til að hann var gesta flúrari hjá Memoria Collective hér í Reykavík og ég var heppin að komast að hjá honum og fá á bringuna mína Hið heilaga geómetríska lífstré eða „sacred geometric tree of life“ tákn- ið. Það er mjög táknrænt fyrir sam- band okkar Einars,“ útskýrir Svala, en hún og Einar hafa verið saman frá árinu 1994 og giftu sig árið 2013. Í kjölfarið fékk Svala sér haus- kúputattú eða svokallað sugarskull í Los Angeles, en þau Einar hafa verið búsett þar síðustu átta ár. „Sugarskull flúrið var gert á Dark Horse tattú-stofunni af honum Adam sem er svaka listamaður, Einar var nefnilega með sugarskull og okkur langaði að vera með eins tattú,“ segir hún. Svala hefur þó líka fengið sér húðflúr sem hún hefur ekki fílað. „Ég fékk mér risastóran svartan hlé- barða yfir allt mjóbakið til að hylja gamalt „tribal“ húðflúr sem ég fílaði aldrei og það kom rosa vel út, því það sést ekkert að þar hafi verið flúr áður af því að hlébarðinn er svo stór og dökkur,“ segir Svala. Í fyrra kynntist Svala strákunum á Memoria Collective í Reykjavík, en þar fékk hún Hauk til að hanna fyrir sig ugluna og einhyrninginn í kvik- myndinni Blade Runner. „Blade Runner er ein af mínum uppáhaldsmyndum. Mig hafði dreymt um að fá mér þessi tvö flúr mjög lengi. En uglan og „origami“ einhyrningurinn eru mjög táknræn í myndinni,“ segir hún. Það er óhætt að segja að Svala hikar ekki mikið þegar kemur að nýjum flúrum en fljótlega fékk hún Hauk til að hanna fleiri flúr á sig. „Ég fékk hann til að gera ótrú- lega fallegan örn og rósir í kring. Mér finnst ernir svo fallegir og svo mikið tákn um sjálfstæði og styrk,“ segir Svala og bætir við að fyrir henni eru húðflúr listaverk sem maður safnar á líkamann og það sé ótrúlega sérstök tilfinning þegar maður fær verk frá annarri persónu, það e i n f a l d l e g a kemur ein- hver ótrúleg orka með því. gudrunjona@frettabladid. is Húðflúr sem geyma persónulegar minningar Svala vekur athygli fyrir einstaklega litríkan og skemmtilegan stíl. Uglan úr kvik- myndinni Blade runner. Haukur hjá Memoria Collective í Reykjavík, hannaði þetta flúr fyrir Svölu, henni þykir ernir fallegir og tákn um sjálf- stæði og styrk. Eiginmaður Svölu, Einar Egilsson, gaf henni húðflúrið Hið heilaga geómetríska lífstré, sem Svala segir vera einstak- lega táknrænt fyrir samband þeirra. Flúrið er hannað af Fran Fernandez sem er frægur flúrari frá Barcelona. Svala Björgvinsdóttir söng- kona hefur í gegnum tíðina fengið sér mörg falleg og litrík húðflúr. Fyrir henni eru húðflúr listaverk sem maður safnar á líkama sinn. Sem stendur er Svala í miðjum undirbúningi fyrir Eurovision sem fram fer í Kiev í byrjun maí. Íslenska tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival verður haldin helgina 7.-9. júlí næstkomandi. Þetta er í átt- unda sinn sem hátíðin fer fram, en í ár verður hún haldin í Reykjavík í fyrsta sinn – í fyrrasumar var hún haldin í Vík í Mýrdal, þar á undan á Hellissandi og árið 2014 í Berlín. „Eftir margar áskoranir ákváðum við að halda þetta í Reykjavík, fólk hefur mikið talað um það við okkur að það vanti svona viðburð í Reykja- vík í júlí. Síðan er þetta líka bara til að ná sem flestum – það eru ekkert alltaf allir sem komast í ferðalag út á land. Síðan er aldrei að vita hvar við höldum hátíðina næst,“ segir Pan Thorarensen, einn aðstandenda hátíðarinnar. Meðal þeirra sem munu koma fram í ár eru The Orb, Another Fine Day, Mixmaster Morris, Studnitzky, Yagya, Jón Ólafsson & Futuregrapher, Stereo Hypnosis,Tonik Ensemble, Jónas Sen, Mikael Lind, Skurken og fleiri. „The Orb er eitt stærsta raftónlist- arband allra tíma. Þetta er stórfrétt í raftónlistarheiminum á Íslandi,“ segir Pan um goðsagnirnar í bresku hljómsveitinni The Orb en hljóm- sveitina skipa þeir Alex Paterson og Jimmi Cauty. Miðasalan á hátíðina er hafin á midi.is.. – sþh Miðasala hafin á Extreme Chill-hátíðina Eftir Margar áskor- anir ákváðuM við að Halda þEtta í rEykjavík. 1 8 . m A R s 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R64 Lífið 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 7 8 -C 6 E C 1 C 7 8 -C 5 B 0 1 C 7 8 -C 4 7 4 1 C 7 8 -C 3 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.