Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 12
Ný skýrsla Hagfræði-stofnunar Háskóla Íslands um lofts-lagsmál dregur fram skýra mynd, að mati þeirra sem gerst þekkja. Ekkert annað en stór- tækar aðgerðir duga til ef við sem þjóð ætlum að standa undir alþjóð- legum skuldbindingum okkar. Langþráð plagg Hagfræði stofn un (HHÍ) afhenti stjórnvöldum greiningarskýrslu sína um möguleika Íslands til að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti á mánudag. Umhverf- isráðherra bað um greininguna strax árið 2015 og átti að birta hana fyrir Parísarráðstefnuna í desember sama ár. Skýrslan skilaði sér ekki í tíma en lítur þess í stað ljós fyrst núna. Hins vegar kynnti þáverandi ríkisstjórn sóknar áætlun sína í loftslagsmálum sem var harðlega gagnrýnd af forsvarsmönnum nátt- úruverndarsamtaka, stjórnarand- stöðuþingmönnum á Alþingi og fleirum. Höfðu menn á orði að erfitt væri að koma auga á í hverju sóknin fælist. Þar er að finna kafla um raf- bílavæðingu, aðgerðir í landbúnaði, átak gegn matarsóun og eflingu kol- efnisbindingar með skógrækt, land- græðslu og endurheimt votlendis, eins og í mörgum öðrum skýrslum, kannski öllum, sem unnar hafa verið síðustu árin. En engin tíma- sett markmið um samdrátt í losun eða kolefnisbindingu var að finna fyrir þessa þætti eða hve mikið fjár- magn ætti að tryggja í hvern og einn þeirra. Þetta er meira áætlun um að gera áætlun, sagði framkvæmda- stjóri Landverndar í viðtali við Fréttablaðið. Allir virðast sammála um að skýrsla HHÍ sé vel unnin – skýr og læsileg. Ekkert sem þar er að finna komi hins vegar á óvart. Horft aftur – ekki fram Stefán Gíslason, umhverfisstjórn- unarfræðingur hjá ráðgjafarfyrir- tækinu Environice, segir stjórnvöld hafi verið „óhóflega værukær“. Mikið hafi verið gert af því að tala upp stöðu Íslands en afrek fortíðar- innar nýtt í því samhengi. Þar sé til dæmis vinsælt að tala um hitaveitu- byltinguna þegar nærtækara væri að ræða verkefnin sem liggja vel skilgreind á borðinu – og hafa gert um langt árabil. „Loftslagsmálin, og umhverfismál almennt, þurfa að hætta að vera afgangsmál á borðs- horninu sem kíkt er á eftir vinnu, ef svo má segja. Þetta verður að vera aðalmálið ef við ætlum að komast inn í framtíðina,“ segir Stefán. Hann nefnir fjölmargt sem blasi við að þurfi að vera í forgangi. Fyrst af öllu að hætta við öll áform um olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Allt slíkt tal sé hjákátlegt þegar fyrir liggur að stór hluti allrar olíu og allra kola sem fundist hafa verði að liggja óhreyfður í jörðu ef ekki á mjög illa að fara. „Hverjum dettur í hug að leita að því sem þegar er til miklu meira af en hægt verður að nota?“ spyr Stefán sem vill staðfesta viðauka við Marpol-samninginn til að geta sett strangari reglur um mengun í efna- hagslögsögunni og banna urðun líf- ræns úrgangs. Þá sé nauðsynlegt, í þeirri stöðu sem við erum komin í, að ekki einungis umbuna fyrir það sem vel er gert, heldur taka fast á þeim sem ekki lúta leikreglum. „Við verðum að nota vendi, ekki bara gulrætur. Kolefnisgjald er dæmi um vönd. Það þarf að verð- leggja ótæka hegðun út af mark- aðnum,“ segir Stefán og lýsir eftir græna hagkerfinu, máli sem var klárað á Alþingi árið 2012 í þver- pólitískri sátt. „Skýrslan er til. Nú er ráð að dusta af henni rykið. Þar er fullt af mótuðum tillögum sem enn eru í fullu gildi,“ segir Stefán sem dregur feitt strik undir tafarlausar aðgerðir til rafvæðingar samgangna sem sjálfsagt viðbragð við stöðunni sem uppi er. „En ég er að vissu leyti bjart- sýnn. Núverandi ríkisstjórn, með umhverfisráðherra í broddi fylk- ingar, hefur sýnt þessum málaflokki miklu meiri áhuga en áður hefur þekkst. Þau þurfa bara að gera sér grein fyrir að það er ekki nóg að vinna fleiri góðverk. Það þarf líka að láta af vondum verkum. Hér verður ekki bæði sleppt og haldið,“ segir Stefán. Tólf ár til stefnu Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, sem ritstýrði og vann að gerð skýrslu HHÍ, sagði í viðtali við Fréttablaðið á mánudag að það væru aðgerðir í hverjum ein- asta geira sem hægt væri að ráðast í og eru tæknilega mögulegar í dag. Nema í stóriðjunni. Margar þeirra geti skilað þjóðhagslegum ábata þegar horft er til lengri tíma. „Þetta er eins og með hitaveituvæðinguna sem var dýr – en það má líta rafbíla- væðingu sömu augum,“ sagði Bryn- hildur. Sigurður Ingi Friðleifsson, fram- kvæmdastjóri Orkuseturs, hefur að öðrum ólöstuðum helst haldið kostum rafbílavæðingar á lofti síð- ustu misserin. Hann, kjarnyrtur að Fortíðardýrkun að reynast okkur dýr í umhverfismálum Dýrmætum tíma hefur verið sólundað og veik staða Íslands í loftslagsmálum er því til sönnunar. Stjórnvöld ríghalda í afrek fortíðar en hafa vanrækt verkefni sem hafa fyrir löngu verið skilgreind. Niðurstaðan er að stórtækar og sársaukafullar aðgerðir verða ekki umflúnar ef standa á við alþjóðlegar skuldbindingar. Ný skýrsla staðfestir það sem hefur lengi verið vitað – vegasamgöngur eru helsta matarholan við að draga úr losun hérlendis. En við erum jafnframt að falla á tíma. FréTTabLaðið/PjETur 26% aukning á heildarút- streymi gróður- húsaloftteg- unda (GHL) frá 1990 til 2014. 15% aukning ef tillit er tekið til bindingar í landgræðslu og skógrækt. 79% aukning frá iðnaði og efna- notkun. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Við verðum að nota vendi, ekki bara gulrætur. Kolefnisgjald er dæmi um vönd. Það þarf að verðleggja ótæka hegðun út af markaðnum. Stefán Gíslason, umhverfisstjórn- unarfræðingur hjá Environice Ef við gerum ekki eitthvað stórtækt þá stöndum við ekki við skuldbindingar okkar. Það væri alger yfirmáta skandall fyrir land og þjóð, hneisa. Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs Rótgrónar greinar eru fyrirmyndir vanda, segir að málið sé sprungið í andlitið á þjóðinni. „Ef við gerum ekki eitthvað stórtækt þá stöndum við ekki við skuldbindingar okkar. Það væri alger yfirmáta skandall fyrir land og þjóð, hneisa,“ segir Sig- urður sem hefði viljað að stóriðjan væri klofin frá í skýrslunni og fjallað um hana sérstaklega. Ekki sé hægt að tala um skuldbindingar Íslands og stóriðju í sömu setningu, og því drepi það umræðunni á dreif að fjalla um hana samhliða öðru sem varðar alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum. Hann kastar fram þeirri spurningu af hverju nauð- synlegt sé að fjalla um stóriðjuna í þessu samhengi þegar útstreymi vegna millilandaflugs sé ekki metið. Góðu fréttirnar eru, að mati Sig- urðar, það sem er löngu vitað. Raf- orkuframleiðsla er afar kolefnislág á Íslandi; húshitun er kolefnisfrí á Íslandi og sjávarútvegur hefur þegar náð viðunandi samdrætti miðað við 1990. „Þannig að nákvæmlega öll vötn renna til vegasamgangna. Þar verð- ur að fara verulega grimmt inn. Sem betur fer eru allar lausnir tilbúnar og ekkert því til fyrirstöðu að kýla á þetta. Það verður einfaldlega að setja hærra verð á kolefnið og gera þannig loftslagsvænar lausnir meira aðlaðandi,“ segir Sigurður sem bendir á að ganga eigi hreint til verks með allar þær aðgerðir sem eru tiltölulega ódýrar og listaðar eru upp í skýrslunni – og eru þær margar. Hann bendir á að það séu ekki nema tæp tólf ár til stefnu. „Ef þú kaupir nýjan bíl núna þá er líklegt að hann verði enn að skila nei- kvæðum tölum inn í bókhaldið okkar 2030 hvort sem þú átt hann þá eða einhver annar. Ákvörðunin um að kaupa hann var þín og hann er því á þína ábyrgð í bókhaldinu. Með öðrum orðum, þá verður alltaf stærri og stærri ákvörðun að kaupa ekki raf- eða metanbíl. Bílakaup mín geta því haft neikvæð áhrif á þig með þeim hætti að þú verður íbúi lands sem ekki stóð við skuldbind- ingar sínar – sem er afar neikvæð ímynd. Skýrslan segir okkur að bif- reiðakaup eru ekki lengur einkamál hvers og eins og ekkert óeðlilegt við að þeim sé stýrt í ákveðna átt með sköttum og ívilnunum.“ svavar@frettabladid.is 52% aukning frá úrgangi. 69% aukning frá orkufram- leiðslu. 39% aukning frá samgöngum. 43% minnkun á útstreymi frá sjávarútvegi. 4% minnkun á útstreymi frá landbúnaði. 1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r12 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð 1 6 -0 2 -2 0 1 7 0 5 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 F -4 3 4 C 1 C 3 F -4 2 1 0 1 C 3 F -4 0 D 4 1 C 3 F -3 F 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.