Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 58
Fifty Shades Darker
HHHHH
Leikstjóri: James Foley
Handrit: Niall Leonard
Tónlist: Danny Elfman
Aðalhlutverk: Dakota Johnson,
Jamie Dornan, Kim Basinger
Fifty Shades-bækurnar eftir E.L.
James munu seint teljast til menn-
ingarlegra eða vandaðra bók-
mennta, en einhverja ánægju virð-
ist markhópurinn fá út úr þeim.
Skemmst er frá því að segja að
það sama á við um bíómyndirnar,
þessar tvær sem nú eru komnar
út. Af báðum að dæma hefur verið
óskaplega lítið innihald til staðar til
þess að bera örlátan sýningartíma
uppi. Einnig hefur lítið gagnast að
brjóta upp efniviðinn með sveittum
athöfnum þegar persónurnar eru
svona óspennandi og kemistrían á
milli þeirra er sama og steindauð.
Í Fifty Shades Darker er þráðurinn
tekinn upp þar sem frá var horfið.
Anastasia Steele er á uppleið í líf-
inu eftir að hafa losað sig við vafa-
sama auðkýfinginn Christian Grey.
En það líður ekki langur tími þar
til Grey kallinn er farinn að betla
sig aftur inn í líf hennar, með því
loforði að verða stilltur strákur. Af
óskiljanlegum orsökum ákveður
Anastasia að slá til og prófa hvernig
gangi að þróa „vanillu“-samband
með honum, eins og hún kallar það;
engar bindingar, engin leikherbergi
og lítið um flengingar. Á meðan
Christian gerir sitt besta til að halda
aftur af sér birtast einstaklingar úr
fortíð hans sem þykja líklegir til
að velta öllu um koll, þar á meðal
snargeðveikur, fyrrverandi „skjól-
stæðingur“ hans og eldri kona sem
kenndi honum allt sem hann kann
á sviði BDSM.
Aðalleikararnir, þau Dakota
Johnson og Jamie Dornan, líta
kannski ágætlega út og það að þau
geti flutt línurnar sínar án þess að
bíta í vör eða óvart springa úr hlátri
er vissulega afrek í sjálfu sér. Hins
vegar er enginn hiti á milli þeirra og
kemur þetta fyrir vikið
út eins og að horfa á
systkini para sig. Ekki
fallegt. Framvindan er
líka svo þunn, uppfull
af endurtekningum
og ómeðvituðum
aulahrolli að öflugra
samspil á milli þeirra
hefði litlu bjargað.
E.L. James vill
meina að þetta séu
ástarsögur en þetta
spilast meira eins og
harmleikur. Skila-
boð þessara Fifty
S h a d e s - m y n d a
virðast stafa það
út að fullkomlega sé í lagi
að vera í sambandi með heimtu-
frekum, afskiptasömum, köldum
og ógeðfelldum manni svo lengi
sem hann er heitur í rúminu annað
slagið (sérstaklega ef hann er ríkur
og gefur þér fartölvu stöku sinnum
ef þú ert þæg). Ég hugsaði oft um
hversu miklu betra efni þetta væri
ef handritið færi
bara alla leið með
Christian Grey og
breytti honum í
f j ö l d a m o r ð i n g j a
sem Ana væri að
reyna að sleppa frá.
Hann ber sig oft eins
og hann eigi betur
heima í American
Psycho.
A ð ka l l a F i f t y
Shades Darker eins
konar pyntingu er of
auðvelt skotmark. Allir sem berja
þessa sandpappírsþunnu lostasögu
augum vita fullvel hvað þeir eru
að fara út í, en kallast það þá ekki
ákveðin vörusvik þegar þú færð
hvorki áherslu á losta né almenni-
lega sögu? Þú færð bara stefnulaust
sápuóperudrama og væl í fólki sem
fer greinilega ekki vel saman. Kyn-
lífssenurnar eru flestar smekklega
gerðar, en stuttar, hálfkjánalegar og
í besta falli á pari við það sem sést
reglulega í HBO-þáttum, sem hljóta
að vera talsverð vonbrigði miðað við
það sem bækurnar eru þekktar fyrir.
Að auki eru u.þ.b. þrír litlir
söguþræðir hér í gangi sem stefna
hvergi og ekkert er gert við (Kim
Basinger fær t.d. sama og ekkert
að gera). Myndin hefur ekki einu
sinni almennilegan endi. Hún bara
... klárast. Undirritaður getur sam-
viskusamlega sagt að fyrri myndin
sé ögn betri því í henni gerðist eitt-
hvað að minnsta kosti – eða stefndu
hlutir eitthvert! Fifty Shades Darker
er ekki einu sinni svo slæm að hún
verði ánægjuleg, því hvet ég alla sem
slysast á hana til þess að mæta með
góðan kodda. Tómas Valgeirsson
NiðurStaða: Kjánaleg, hlægileg og
ákaflega leiðinleg saga um losta, þar
sem merkilega lítið er um losta eða
sögu.
Vond samtöl og svæfandi stunur
Dakota Johnson og Jamie Dornan fara með aðalhlutverkið í myndinni Fifty Shades Darker. NORDICPHOTOS/AFP
Fifty Shades Darker fær
5,0 í einkunn á IMDb.
Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni
á Vísi og í Fréttablaðs-appinu
ALLTAF
VIÐ HÖNDINA
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
... allt sem þú þarft
1 6 . F e b r ú a r 2 0 1 7 F i M M t u D a G u r42 M e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ð
bíó
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
F
-2
0
B
C
1
C
3
F
-1
F
8
0
1
C
3
F
-1
E
4
4
1
C
3
F
-1
D
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K