Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 16
Hlutabréfaverð verslunarfyrirtækisins Haga og Fjarskipta hf. lækkaði um þrjú
prósent í Kauphöll Íslands í gær.
Bréf Haga lækkuðu í 506 milljóna
króna viðskiptum en velta með
hluti í Fjarskiptum nam 509 millj
ónum.
Samkvæmt viðmælendum Vísis á
hlutabréfamarkaði hafði frétt Mark
aðarins, fylgirits Fréttablaðsins um
viðskipti og efnahagsmál, um áhrif
komu Costco á heildsöluverð inn
flutningsfyrirtækja, að öllum lík
indum talsverð áhrif á gengi bréfa
Haga. Þeir eiga og reka innflutn
ingsfyrirtækið Aðföng. Sérfræðingar
hagfræðideildar Landsbankans gáfu
í september síðastliðnum út að
Hagar gætu misst um tvo milljarða
króna af ársveltu sinni til Costco
þegar fyrirtækið opnar hér í maí.
Bréf VÍS lækkuðu einnig eða um
2,6 prósent. Þar á eftir kom upp
lýsingatæknifyrirtækið Nýherji
með lækkun upp á 1,9 prósent.
Icelandair Group var aftur á móti
hástökkvari dagsins en gengi bréfa
flugfélagsins hækkaði um 1,3 pró
sent. Alls hækkuðu sjö félög á Aðal
listanum í virði en níu sáu rauðar
tölur. Bréf tryggingafélaganna Sjó
vár og TM stóðu í stað. – hg
Bréf Haga lækkuðu um 3%
Afar lítið er um einkafjárfesta í hluthafahópi Icelandair Group sem eiga u m þ e s s a r mundir tals
verða eignarhluti í félag
inu. Samkvæmt lista yfir
alla hluthafa flugfélags
ins síðastliðinn mánu
dag, sem Fréttablaðið
hefur séð, eru tíu stærstu
einkafjárfestar á hluthafa
lista félagsins samanlagt
aðeins með um 1,9 pró
sent í Icelandair. Markaðs
virði Icelandair hefur minnkað
um 115 milljarða frá því í lok apríl
2016 samhliða því að hlutabréfa
verð félagsins hefur lækkað um 60
prósent.
Í þessum hópi einkafjárfesta er
eignarhaldsfélagið Brimgarðar,
sem er í eigu Guðnýjar, Eggerts,
Halldórs og Gunnars Gíslabarna,
umsvifamest með tæplega 0,7 pró
senta eignarhlut. Í árslok 2015 átti
félagið hins vegar 0,35 prósenta hlut
í Icelandair og hefur því tvöfaldað
stöðu sína í félaginu á rúmlega einu
ári. Miðað við gengi bréfa Icelandair
við lokun markaða í gær er hlutur
Brimgarða metinn á um 545 millj
ónir króna. Enga einkafjárfesta er að
finna á opinberum lista yfir tuttugu
stærstu hluthafa flugfélagsins en
íslenskir lífeyrissjóðir eiga saman
lagt vel yfir helmingshlut.
Þá á Högni Pétur Sigurðsson,
fjárfestir og einn eigenda Domino’s
á Íslandi, um 0,35 prósenta hlut í
Icelandair, bæði í eigin nafni og eins
í gegnum eignarhaldsfélagið Naut
ica. Hjónin Bogi Þór Siguroddsson
og Linda Björk Ólafsdóttir, sem
eiga meðal annars Johan Rönning,
eru með 0,2 prósenta hlut í gegnum
félagið Sindrandi ehf. en sá hlutur
er í dag metinn á um 159 milljónir.
Í árslok 2015, samkvæmt hluthafa
lista Icelandair Group á þeim tíma,
átti sama félag þeirra hjóna hins
vegar 0,57 prósenta hlut.
Rétt er að taka fram að hluthafa
listi Icelandair gefur ekki tæmandi
mynd af því hvaða einkafjárfestar
eru í reynd í eigendahópi félagsins
hverju sinni. Margir þeirra kunna
meðal annars að eiga talsverða
hlutafjáreign í flugfélaginu í gegn
um safnreikninga sem eru skráðir í
nafni fjármálafyrirtækja eða fram
virka samninga sem þeir hafa gert
um hlutabréfaviðskipti í Icelandair.
Erlendir sjóðir með tvö prósent
Frá því var greint í Markaðnum,
fylgiriti Fréttablaðsins um við
skipti og efnahagsmál, í gær að fjórir
bandarískir fjárfestingasjóðir ættu
um þessar mundir rúmlega tveggja
prósenta eignarhlut í Icelandair
Group. Enginn einn fjárfestinga
sjóðanna kemst þó á opinberan
lista yfir tuttugu stærstu hluthafa
flugfélagsins. Markaðsvirði þeirra
bréfa sem eru í eigu sjóðanna er
í dag samtals um 1.600 milljónir.
Fjárfestingasjóðirnir byrjuðu að
kaupa bréf í Icelandair á árinu 2015
og frá því í ársbyrjun 2016 hafa
sjóðirnir nærri þrefaldað eignarhlut
sinn í félaginu.
Talsverð viðskipti hafa verið með
bréf Icelandair Group á undanförn
um dögum og síðastliðinn mánudag
kom fjárfestir að kaupum á 50 millj
ónum hluta í félaginu á genginu 16,
eða sem jafngildir eins prósents
eignarhlut í Icelandair. Það voru
markaðsviðskipti Kviku banka sem
voru milligönguaðilar með þeim
viðskiptum. Fram kom í Morgun
blaðinu að samkvæmt heimildum
blaðsins væru viðskiptin tengd
stjórnarkjöri á aðalfundi Icelandair
Group sem fer fram 3. mars næst
komandi. Frestur til að skila inn
framboði til stjórnar er þar til fimm
dögum fyrir aðalfund.
Horft til breytinga á stjórn
Margir fjárfestar í Icelandair, ásamt
öðrum markaðsaðilum, horfa til
þess að breytingar verði gerðar á
stjórn félagsins á aðalfundinum.
Hafa ýmsir gagnrýnt yfirstjórnend
ur Icelandair, bæði stjórnarmenn og
aðra helstu stjórnendur félagsins,
fyrir að hafa ekki komið fyrr fram
með trúverðuga aðgerðaáætlun til
að bregðast við vaxandi erfiðleikum
í rekstrarumhverfi Icelandair. Afar
líklegt er því talið að ýmsir hlut
hafar muni vilja sjá ný andlit í stjórn
flugfélagsins.
Fjórir stærstu eigendur Iceland
air Group – Lífeyrissjóður versl
unarmanna, Stefnir, Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins (LSR) og Gildi
lífeyrissjóður – eiga samanlagt 46
prósent. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins stendur ekki annað
til hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna
en að styðja áfram Úlfar Stein
dórsson, varaformann stjórnar,
til stjórnarsetu og slíkt hið sama
áformar LSR hvað varðar stuðning
sinn við Magnús Magnússon. Meiri
óvissa er um áform Stefnis, sem á
14,3 prósent í gegnum tvo hluta
bréfasjóði í stýringu félagsins, en
fram til þessa hefur sjóðastýringar
fyrirtækið ekki stutt neinn tiltekinn
einstakling til setu í stjórninni. Það
gæti breyst á næsta aðalfundi.
Íhugar framboð
Svanhildur Nanna, sem er á meðal
stærstu hluthafa, ásamt með eigin
manni sínum, Guðmundi Erni Þórð
arsyni, í VÍS og Kviku, bauð sig fram
í stjórn Icelandair á aðalfundi flug
félagsins í mars í fyrra en hlaut ekki
brautargengi. Í frétt Markaðarins 8.
febrúar sagði Svanhildur aðspurð
að það kæmi vissulega til greina að
bjóða sig fram á ný sæi hún fram á
að hluthafar væru tilbúnir í breyt
ingar á stjórn félagsins. Svanhildur
sagðist löngum hafa verið þeirrar
skoðunar að það væri mikilvægt
að jafnvægi ríkti milli svonefndra
óháðra stjórnarmanna og stjórnar
manna sem hafa beina hagsmuni
af árangri félaganna. „Það skortir
nokkuð á það jafnvægi í stjórn Ice
landair eins og sakir standa.“
Þau hjónin hafa minnkað lítillega
hlut sinn í Icelandair að undanförnu
en Svanhildur staðfesti að þau ættu
engu að síður um 15 milljónir hluta,
sem jafngildir um 0,3 prósenta hlut.
Sá hlutur er hins vegar ekki á þeirra
eigin nafni eða fjárfestingafélags
þeirra, samkvæmt hluthafalista
Icelandair 13. febrúar síðastliðinn.
Einkafjárfestar hverfandi í Icelandair
Fáir einkafjárfestar eiga verulegan hlut í flugfélaginu. Sá stærsti er einkahlutafélagið Brimgarðar með 0,7 prósenta hlut, samkvæmt
hluthafalista Icelandair á mánudag. Lífeyrissjóður verslunarmanna og LSR hyggjast styðja Úlfar og Magnús áfram til setu í stjórn.
Hagnaður Vodafone nam 1.007 milljónum króna á árinu 2016 og dróst saman
um 22 prósent frá fyrra ári. Þá
lækkuðu heildartekjur fjarskipta
fyrirtækisins um eitt prósent á
milli ára og voru samtals 13.655
milljónir. EBITDAhagnaður
félagsins – afkoma fyrir fjármagns
liði, afskriftir og skatta – nam 3.060
milljónum á síðasta ári og dróst
saman um sex prósent.
Þetta kom fram í afkomutilkynn
ingu sem Vodafone sendi frá sér í
gær en þar segir að EBITDAaf
komuspá félagsins fyrir árið 2017
sé hækkuð á ný og er áætluð um
3.250 milljónir.
Í tilkynningu er haft eftir Stefáni
Sigurðssyni, forstjóra Vodafone, að
árið 2016 hafi að mörgu leyti verið
„sérstakt ár í rekstri Fjarskipta hf.
þar sem margt fór saman; miklar
launahækkanir í tengslum við
kjarasamninga, einskiptiskostn
aður vegna húsnæðismála, hag
ræðingaraðgerða og vinnu sér
fræðinga við áreiðanleikakönnun
vegna hugsanlegra kaupa á 365
miðlum hf. Á sama tíma höfðu
markaðsaðstæður neikvæð áhrif
á meðaltekjur af viðskiptavinum.
Mótvægisaðgerðir gengu vel þar
sem vöxtur í fjölda viðskiptavina
hefur ekki verið meiri í seinni tíð
eða 7%. Sjónvarpsvörur félagsins
skiluðu mikilli aukningu í tekjum
sem unnu á móti fyrrgreindum
neikvæðum þáttum þrátt fyrir
lækkun tekna í heildsöludreifingu
sjónvarps. Horfur í rekstri félagsins
fyrir árið 2017 eru betri, þar sem
ætla má að hagræðingaraðgerðir
árið 2016 og vöxtur viðskiptavina
skili sér í betri rekstri árið 2017.“
Stefán segir að enn sé unnið
að gerð kaupsamnings vegna
fyrirhugaðra kaupa á ljósvaka og
fjarskiptahluta 365 miðla og eru
bundnar vonir við að sú vinna
klárist fyrir lok fyrsta ársfjórðungs.
– hae
Hagnaður Vodafone minnkaði um 22%
markaðurinn
1,9 %
er samanlagður eignarhlutur
tíu stærstu einkafjárfestanna
á hluthafalista icelandair.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Aðföng annast innkaup, birgðahald og
dreifingu fyrir Haga. FréttAblAðið/VAlli
Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone,
segist búast við betri afkomu árið 2017.
13,7
milljarðar króna voru tekjur
Vodafone á árinu 2016.
Gengi icelandair Group hækkaði um 1,27 prósent í 226 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í gær. bréfin hafa lækkað um
28 prósent frá afkomuviðvörun félagsins sem gefin var út í lok janúarmánaðar. FréttAblAðið/pjétur
Einkafjárfestar í Icelandair
brimgarðar ehf. (Guðný, Eggert, Halldór og Gunnar Gíslabörn) 0,69% 546 milljónir
Sindrandi ehf. (Hjónin Bogi Þór og Linda Björk, eigendur Johann Rönning) 0,20% 159 milljónir
Nautica ehf. (Högni Pétur Sigurðsson, fjárfestir og einn eiganda Domino’s) 0,18% 143 milljónir
Högni pétur Sigurðsson 0,17% 136 milljónir
Mini market ehf. (eigendur samnefndrar pólskrar matvöruverslunar) 0,12% 97 milljónir
Frístundabíllinn ehf. (Gísli S. Friðjónsson, fyrrverandi eigandi Hópbíla) 0,12% 97 milljónir
Þarabakki ehf. (Daníel Helgason, fjárfestir) 0,12% 97 milljónir
Ólafur björnsson (eigandi heildverslunarinnar Innness) 0,11% 84 milljónir
Gunnar i. Hafsteinsson (fyrrverandi útgerðarmaður) 0,11% 84 milljónir
Heimild: Hluthafalisti Icelandair Group 13. febrúar 2017.
Hlutur Virði
506
milljóna króna velta var í
viðskiptum með bréf Haga.
1 6 . f E b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r16 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
F
-1
B
C
C
1
C
3
F
-1
A
9
0
1
C
3
F
-1
9
5
4
1
C
3
F
-1
8
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K