Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2017, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 16.02.2017, Qupperneq 56
Hér eru til að mynda meistara- verk Heimsbókmenntanna fáanleg í mörgum mismun- andi þýðingum sem er mjög áHugavert. ára s. 511 1100 | www.rymi.is ...fyrir alla muni SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík Sími: 517 0900 / 777 1901 www.kaelivirkni.is VIÐHALD OG VIÐGERÐIR Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM VIÐ SJÁUM UM Þýðingar eru bókmennt-um gríðarlega mikil-vægar og þá sérstaklega þeim verkum sem eru skrifuð á tungumáli á borð við íslenskuna sem er eðli málsins samkvæmt smátt málsvæði. Á undanförnum árum hefur vegur íslenskra höfunda farið mjög vaxandi í Þýskalandi en á meðal ötullra þýðenda þar í landi er Kristof Magnusson sem starfar bæði sem rithöfundur og þýðandi. Kristof hlaut fyrir skömmu hin virtu þýðingarverðlaun Rowohlt- stofnunarinnar fyrir þýðingar sýnar á íslenskum bókmenntum. Kristof er búsettur í Berlín og hann segir að menningarlífið í borginni sé orðið svo íslenskt og með miklum ágætum að það sé farið að minna á hundrað og einn. „Ég var reyndar einmitt að koma úr upplestrarferð með Hallgrími Helgasyni um Þýskaland, þannig að þetta er hérna allt saman.“ Þórbergur mannraun Kristof, sem er fæddur og uppalinn í Hamborg og á íslenskan föður en þýska móður, segir að hann hafi reyndar hafið ferilinn sem rithöf- undur. „Ég sendi frá mér mína fyrstu skáldsögu fyrir um það bil tólf árum og hún gerist að hluta til á Íslandi. Að auki þá hef ég alltaf verið mikill aðdáandi verka Einars Kárasonar og hans verk hafa sterk áhrif á mig og minn stíl. En eftir að fyrsta skáld- saga mín kom út þá hringdi útgef- andi Einars í mig og sagði mér að stíllinn hjá mér hefði nú minnt sig á Einar og hvort ég væri ekki til í að taka að mér að þýða Storm. Svona byrjaði það.“ Á þeim árum sem hafa liðið síðan Kristof byrjaði að glíma við þýð- ingarnar samhliða eigin ritstörfum hefur hann tekist á við fjölbreytt verk. Þar á meðal má nefna Grettis sögu, Íslenskan aðal eftir Þórberg Þórðarson og verk samtímahöf- unda á borð við Einar Kárason, Hallgrím Helgason, Sigurbjörgu Þrastardóttur og Auði Jónsdóttur. En Kristof hefur afar jákvætt hugar- far gagnvart þessu fjölbreytta verk- efnavali. „Það er margt skemmti- legt í boði og gott ef maður getur aðeins valið. Þar sem ég er bæði þýðandi og rithöfundur þá er ég í þeirri þægilegu stöðu að geta tekið að mér einvörðungu það sem mér finnst spennandi og áhugavert. Íslenskur aðall var vissulega dæmi um það en hins vegar þá var það óneitanlega talsverð mannraun. Ég er reyndar á þeirri skoðun að það sé engin betri menntun til fyrir rit- höfund en að þýða. Það felur í sér stöðuga endurmenntun sem maður fær greitt fyrir.“ Úrval þýðinga Kristof segir að bókamarkaðurinn í Þýskalandi sé sérstakur að því leyti að þar sé mun meiri áhersla á þýðingar en víðast annars staðar í svo stórum málsamfélögum. „Af einhverjum ástæðum hefur þetta alltaf verið þannig. Hlutfallið af þýddum bókmenntum er miklu hærra en t.d. í Bretlandi og Banda- ríkjunum þar sem það er svona um 4% en í Þýskalandi er þetta sama hlutfall um 20-30% sem er ótrú- lega hátt. En það hefur alltaf verið mikil þýðingamenning í Þýskalandi allt frá því að Martin Luther fór að þýða Biblíuna yfir á þýsku og síðan þá hefur þetta verið viðurkennt sem mikilvægur hluti af menningunni.“ Kristof segir að þetta efli ekki aðeins bókmenninguna í heild sinni heldur hafi þetta afar jákvæð áhrif á umhverfi þýskra rithöfunda. „Hér eru til að mynda meistaraverk heimsbókmenntanna fáanleg í mörgum mismunandi þýðingum sem er mjög áhugavert. Sem dæmi má nefna að á síðustu fimmtán árum hafa komið út tvær nýjar þýð- ingar á Meistaranum og Margarítu eftir Búlgakov og það að geta lesið mismunandi þýðingar er sannkall- að ríkidæmi. En svo eru líka margir íslenskir rithöfundar að þýða eins og ég og við það skapast líka áhuga- vert og gefandi samtal.“ Þjóðverjar rómantískir Kristof fer mikið um Þýskaland með íslenskum höfundum til þess að lesa úr verkum þeirra. Hann segir að það sé reyndar mjög sérstakt við bókmenntalífið í þýskumælandi löndum hversu mikið er um upp- lestra. „Í flestum smábæjum og satt best að segja krumma skuðum þá er allt- af annaðhvort menningarfélag eða bókabúð sem er að skipuleggja upp- lestra. Þangað mætir alltaf mikið af fólki sem hefur áhuga á Íslandi og íslenskum bókmenntum og þessi upplestrarmenning er gríðarlega mikilvæg fyrir bókmenntirnar í Þýskalandi. Þjóðverjum finnst svo gaman að sitja og segja sér sögu. Ég held að Þjóðverjar séu að einhverju leyti mjög rómantískir, þrátt fyrir að þeir vilji ekki viðurkenna það, en þetta er svona stemning eins og að sitja framan við arininn og afi er að lesa sögu.“ En að hverju skyldi Kristof vera að vinna um þessar mundir? „Ég þýddi Ósjálfrátt eftir Auði Jóns- dóttur og hún kom út hér fyrir nokkrum mánuðum. En núna er ég á lokasprettinum með Sturlunga- bækurnar hans Einars og þær eiga að koma allar fjórar í einu bindi. Ég er mjög spenntur fyrir þessu því það var búið að gefa út Ofsa og Óvina- fagnað hér en núna er forlagið búið að ákveða að gefa þetta út í einni bók og markaðssetja það sem eitt af mikilvægari bókmenntaverkum sem hafa komið út á Íslandi. Ég á bara svona um fjörutíu blaðsíður eftir og svo kemur þetta út í maí og ég hlakka mikið til.“ Engin betri menntun fyrir rithöfund en að þýða Kristof Magnusson hefur tekist á við fjölbreytta flóru íslenskra verka í þýðingum sínum á síðustu árum, allt frá Grettis sögu til Auðar Jónsdóttur. Mynd/GunnAr KlAcK kristof magnus- son, rithöfundur og þýðandi ís- lenskra bókmennta á þýsku, hlaut á dögunum virt þýð- ingarverlaun. Hann segir að þýðingar séu stærri hluti af bókmenntaheimin- um í þýskalandi en víða annars staðar í veröldinni. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi Sími 557 4848 / www.nitro.is VARA- OG AUKAHLUTIR Naglar Belti Meiðar Reimar Skíði Getum útvegað original varahluti í flestar gerðir sleða Karbítar Hitahandföng í allar tegundir af vélsleðum Snjóklórur Gler MIKIÐ ÚRVAL AF FATNAÐI OG FYLGIHLUTUM Olíur Demparar Bensínbrúsar Síur 1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r40 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð 1 6 -0 2 -2 0 1 7 0 5 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 F -0 C F C 1 C 3 F -0 B C 0 1 C 3 F -0 A 8 4 1 C 3 F -0 9 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.