Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 56
Hér eru til að
mynda meistara-
verk Heimsbókmenntanna
fáanleg í mörgum mismun-
andi þýðingum sem er mjög
áHugavert.
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
...fyrir alla muni
SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
Þýðingar eru bókmennt-um gríðarlega mikil-vægar og þá sérstaklega þeim verkum sem eru skrifuð á tungumáli á borð við íslenskuna
sem er eðli málsins samkvæmt
smátt málsvæði. Á undanförnum
árum hefur vegur íslenskra höfunda
farið mjög vaxandi í Þýskalandi en
á meðal ötullra þýðenda þar í landi
er Kristof Magnusson sem starfar
bæði sem rithöfundur og þýðandi.
Kristof hlaut fyrir skömmu hin
virtu þýðingarverðlaun Rowohlt-
stofnunarinnar fyrir þýðingar sýnar
á íslenskum bókmenntum.
Kristof er búsettur í Berlín og
hann segir að menningarlífið í
borginni sé orðið svo íslenskt og
með miklum ágætum að það sé
farið að minna á hundrað og einn.
„Ég var reyndar einmitt að koma
úr upplestrarferð með Hallgrími
Helgasyni um Þýskaland, þannig
að þetta er hérna allt saman.“
Þórbergur mannraun
Kristof, sem er fæddur og uppalinn
í Hamborg og á íslenskan föður en
þýska móður, segir að hann hafi
reyndar hafið ferilinn sem rithöf-
undur. „Ég sendi frá mér mína fyrstu
skáldsögu fyrir um það bil tólf árum
og hún gerist að hluta til á Íslandi.
Að auki þá hef ég alltaf verið mikill
aðdáandi verka Einars Kárasonar
og hans verk hafa sterk áhrif á mig
og minn stíl. En eftir að fyrsta skáld-
saga mín kom út þá hringdi útgef-
andi Einars í mig og sagði mér að
stíllinn hjá mér hefði nú minnt sig
á Einar og hvort ég væri ekki til í að
taka að mér að þýða Storm. Svona
byrjaði það.“
Á þeim árum sem hafa liðið síðan
Kristof byrjaði að glíma við þýð-
ingarnar samhliða eigin ritstörfum
hefur hann tekist á við fjölbreytt
verk. Þar á meðal má nefna Grettis
sögu, Íslenskan aðal eftir Þórberg
Þórðarson og verk samtímahöf-
unda á borð við Einar Kárason,
Hallgrím Helgason, Sigurbjörgu
Þrastardóttur og Auði Jónsdóttur.
En Kristof hefur afar jákvætt hugar-
far gagnvart þessu fjölbreytta verk-
efnavali. „Það er margt skemmti-
legt í boði og gott ef maður getur
aðeins valið. Þar sem ég er bæði
þýðandi og rithöfundur þá er ég í
þeirri þægilegu stöðu að geta tekið
að mér einvörðungu það sem mér
finnst spennandi og áhugavert.
Íslenskur aðall var vissulega dæmi
um það en hins vegar þá var það
óneitanlega talsverð mannraun. Ég
er reyndar á þeirri skoðun að það
sé engin betri menntun til fyrir rit-
höfund en að þýða. Það felur í sér
stöðuga endurmenntun sem maður
fær greitt fyrir.“
Úrval þýðinga
Kristof segir að bókamarkaðurinn
í Þýskalandi sé sérstakur að því
leyti að þar sé mun meiri áhersla
á þýðingar en víðast annars staðar
í svo stórum málsamfélögum. „Af
einhverjum ástæðum hefur þetta
alltaf verið þannig. Hlutfallið af
þýddum bókmenntum er miklu
hærra en t.d. í Bretlandi og Banda-
ríkjunum þar sem það er svona um
4% en í Þýskalandi er þetta sama
hlutfall um 20-30% sem er ótrú-
lega hátt. En það hefur alltaf verið
mikil þýðingamenning í Þýskalandi
allt frá því að Martin Luther fór að
þýða Biblíuna yfir á þýsku og síðan
þá hefur þetta verið viðurkennt sem
mikilvægur hluti af menningunni.“
Kristof segir að þetta efli ekki
aðeins bókmenninguna í heild
sinni heldur hafi þetta afar jákvæð
áhrif á umhverfi þýskra rithöfunda.
„Hér eru til að mynda meistaraverk
heimsbókmenntanna fáanleg í
mörgum mismunandi þýðingum
sem er mjög áhugavert. Sem dæmi
má nefna að á síðustu fimmtán
árum hafa komið út tvær nýjar þýð-
ingar á Meistaranum og Margarítu
eftir Búlgakov og það að geta lesið
mismunandi þýðingar er sannkall-
að ríkidæmi. En svo eru líka margir
íslenskir rithöfundar að þýða eins
og ég og við það skapast líka áhuga-
vert og gefandi samtal.“
Þjóðverjar rómantískir
Kristof fer mikið um Þýskaland
með íslenskum höfundum til þess
að lesa úr verkum þeirra. Hann segir
að það sé reyndar mjög sérstakt við
bókmenntalífið í þýskumælandi
löndum hversu mikið er um upp-
lestra.
„Í flestum smábæjum og satt best
að segja krumma skuðum þá er allt-
af annaðhvort menningarfélag eða
bókabúð sem er að skipuleggja upp-
lestra. Þangað mætir alltaf mikið af
fólki sem hefur áhuga á Íslandi og
íslenskum bókmenntum og þessi
upplestrarmenning er gríðarlega
mikilvæg fyrir bókmenntirnar í
Þýskalandi. Þjóðverjum finnst svo
gaman að sitja og segja sér sögu. Ég
held að Þjóðverjar séu að einhverju
leyti mjög rómantískir, þrátt fyrir
að þeir vilji ekki viðurkenna það, en
þetta er svona stemning eins og að
sitja framan við arininn og afi er að
lesa sögu.“
En að hverju skyldi Kristof vera
að vinna um þessar mundir? „Ég
þýddi Ósjálfrátt eftir Auði Jóns-
dóttur og hún kom út hér fyrir
nokkrum mánuðum. En núna er ég
á lokasprettinum með Sturlunga-
bækurnar hans Einars og þær eiga
að koma allar fjórar í einu bindi. Ég
er mjög spenntur fyrir þessu því það
var búið að gefa út Ofsa og Óvina-
fagnað hér en núna er forlagið búið
að ákveða að gefa þetta út í einni
bók og markaðssetja það sem eitt
af mikilvægari bókmenntaverkum
sem hafa komið út á Íslandi. Ég á
bara svona um fjörutíu blaðsíður
eftir og svo kemur þetta út í maí og
ég hlakka mikið til.“
Engin betri menntun
fyrir rithöfund en að þýða
Kristof Magnusson hefur tekist á við fjölbreytta flóru íslenskra verka í þýðingum
sínum á síðustu árum, allt frá Grettis sögu til Auðar Jónsdóttur. Mynd/GunnAr KlAcK
kristof magnus-
son, rithöfundur
og þýðandi ís-
lenskra bókmennta
á þýsku, hlaut á
dögunum virt þýð-
ingarverlaun. Hann
segir að þýðingar
séu stærri hluti af
bókmenntaheimin-
um í þýskalandi en
víða annars staðar
í veröldinni.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
VARA- OG AUKAHLUTIR
Naglar
Belti
Meiðar
Reimar
Skíði
Getum útvegað original varahluti í flestar gerðir sleða
Karbítar
Hitahandföng
í allar tegundir af vélsleðum
Snjóklórur
Gler
MIKIÐ ÚRVAL
AF FATNAÐI OG
FYLGIHLUTUM
Olíur
Demparar
Bensínbrúsar
Síur
1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r40 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
F
-0
C
F
C
1
C
3
F
-0
B
C
0
1
C
3
F
-0
A
8
4
1
C
3
F
-0
9
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K