Fréttablaðið - 16.02.2017, Page 12
Ný skýrsla Hagfræði-stofnunar Háskóla Íslands um lofts-lagsmál dregur fram skýra mynd, að mati þeirra sem
gerst þekkja. Ekkert annað en stór-
tækar aðgerðir duga til ef við sem
þjóð ætlum að standa undir alþjóð-
legum skuldbindingum okkar.
Langþráð plagg
Hagfræði stofn un (HHÍ) afhenti
stjórnvöldum greiningarskýrslu
sína um möguleika Íslands til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda og auka bindingu kolefnis úr
andrúmslofti á mánudag. Umhverf-
isráðherra bað um greininguna
strax árið 2015 og átti að birta hana
fyrir Parísarráðstefnuna í desember
sama ár. Skýrslan skilaði sér ekki í
tíma en lítur þess í stað ljós fyrst
núna.
Hins vegar kynnti þáverandi
ríkisstjórn sóknar áætlun sína í
loftslagsmálum sem var harðlega
gagnrýnd af forsvarsmönnum nátt-
úruverndarsamtaka, stjórnarand-
stöðuþingmönnum á Alþingi og
fleirum. Höfðu menn á orði að erfitt
væri að koma auga á í hverju sóknin
fælist. Þar er að finna kafla um raf-
bílavæðingu, aðgerðir í landbúnaði,
átak gegn matarsóun og eflingu kol-
efnisbindingar með skógrækt, land-
græðslu og endurheimt votlendis,
eins og í mörgum öðrum skýrslum,
kannski öllum, sem unnar hafa
verið síðustu árin. En engin tíma-
sett markmið um samdrátt í losun
eða kolefnisbindingu var að finna
fyrir þessa þætti eða hve mikið fjár-
magn ætti að tryggja í hvern og einn
þeirra. Þetta er meira áætlun um að
gera áætlun, sagði framkvæmda-
stjóri Landverndar í viðtali við
Fréttablaðið.
Allir virðast sammála um að
skýrsla HHÍ sé vel unnin – skýr og
læsileg. Ekkert sem þar er að finna
komi hins vegar á óvart.
Horft aftur – ekki fram
Stefán Gíslason, umhverfisstjórn-
unarfræðingur hjá ráðgjafarfyrir-
tækinu Environice, segir stjórnvöld
hafi verið „óhóflega værukær“.
Mikið hafi verið gert af því að tala
upp stöðu Íslands en afrek fortíðar-
innar nýtt í því samhengi. Þar sé til
dæmis vinsælt að tala um hitaveitu-
byltinguna þegar nærtækara væri
að ræða verkefnin sem liggja vel
skilgreind á borðinu – og hafa gert
um langt árabil. „Loftslagsmálin,
og umhverfismál almennt, þurfa að
hætta að vera afgangsmál á borðs-
horninu sem kíkt er á eftir vinnu, ef
svo má segja. Þetta verður að vera
aðalmálið ef við ætlum að komast
inn í framtíðina,“ segir Stefán.
Hann nefnir fjölmargt sem blasi
við að þurfi að vera í forgangi. Fyrst
af öllu að hætta við öll áform um
olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Allt
slíkt tal sé hjákátlegt þegar fyrir
liggur að stór hluti allrar olíu og
allra kola sem fundist hafa verði
að liggja óhreyfður í jörðu ef ekki á
mjög illa að fara.
„Hverjum dettur í hug að leita
að því sem þegar er til miklu meira
af en hægt verður að nota?“ spyr
Stefán sem vill staðfesta viðauka við
Marpol-samninginn til að geta sett
strangari reglur um mengun í efna-
hagslögsögunni og banna urðun líf-
ræns úrgangs. Þá sé nauðsynlegt, í
þeirri stöðu sem við erum komin í,
að ekki einungis umbuna fyrir það
sem vel er gert, heldur taka fast á
þeim sem ekki lúta leikreglum.
„Við verðum að nota vendi, ekki
bara gulrætur. Kolefnisgjald er
dæmi um vönd. Það þarf að verð-
leggja ótæka hegðun út af mark-
aðnum,“ segir Stefán og lýsir eftir
græna hagkerfinu, máli sem var
klárað á Alþingi árið 2012 í þver-
pólitískri sátt. „Skýrslan er til. Nú er
ráð að dusta af henni rykið. Þar er
fullt af mótuðum tillögum sem enn
eru í fullu gildi,“ segir Stefán sem
dregur feitt strik undir tafarlausar
aðgerðir til rafvæðingar samgangna
sem sjálfsagt viðbragð við stöðunni
sem uppi er.
„En ég er að vissu leyti bjart-
sýnn. Núverandi ríkisstjórn, með
umhverfisráðherra í broddi fylk-
ingar, hefur sýnt þessum málaflokki
miklu meiri áhuga en áður hefur
þekkst. Þau þurfa bara að gera sér
grein fyrir að það er ekki nóg að
vinna fleiri góðverk. Það þarf líka að
láta af vondum verkum. Hér verður
ekki bæði sleppt og haldið,“ segir
Stefán.
Tólf ár til stefnu
Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor
í umhverfis- og auðlindafræði við
Háskóla Íslands, sem ritstýrði og
vann að gerð skýrslu HHÍ, sagði í
viðtali við Fréttablaðið á mánudag
að það væru aðgerðir í hverjum ein-
asta geira sem hægt væri að ráðast
í og eru tæknilega mögulegar í dag.
Nema í stóriðjunni. Margar þeirra
geti skilað þjóðhagslegum ábata
þegar horft er til lengri tíma. „Þetta
er eins og með hitaveituvæðinguna
sem var dýr – en það má líta rafbíla-
væðingu sömu augum,“ sagði Bryn-
hildur.
Sigurður Ingi Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs, hefur
að öðrum ólöstuðum helst haldið
kostum rafbílavæðingar á lofti síð-
ustu misserin. Hann, kjarnyrtur að
Fortíðardýrkun að reynast
okkur dýr í umhverfismálum
Dýrmætum tíma hefur verið sólundað og veik staða Íslands í loftslagsmálum er því til sönnunar. Stjórnvöld
ríghalda í afrek fortíðar en hafa vanrækt verkefni sem hafa fyrir löngu verið skilgreind. Niðurstaðan er að
stórtækar og sársaukafullar aðgerðir verða ekki umflúnar ef standa á við alþjóðlegar skuldbindingar.
Ný skýrsla staðfestir það sem hefur lengi verið vitað – vegasamgöngur eru helsta matarholan við að draga úr losun hérlendis. En við erum jafnframt að falla á tíma.
FréTTabLaðið/PjETur
26% aukning
á heildarút-
streymi gróður-
húsaloftteg-
unda (GHL) frá
1990 til 2014.
15% aukning
ef tillit er tekið
til bindingar í
landgræðslu og
skógrækt.
79%
aukning frá
iðnaði og efna-
notkun.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Við verðum að nota
vendi, ekki bara
gulrætur. Kolefnisgjald er
dæmi um vönd. Það þarf að
verðleggja ótæka hegðun út
af markaðnum.
Stefán Gíslason,
umhverfisstjórn-
unarfræðingur hjá
Environice
Ef við gerum ekki
eitthvað stórtækt þá
stöndum við ekki við
skuldbindingar okkar. Það
væri alger yfirmáta skandall
fyrir land og
þjóð, hneisa.
Sigurður Ingi
Friðleifsson,
framkvæmdastjóri
Orkuseturs
Rótgrónar greinar eru
fyrirmyndir
vanda, segir að málið sé sprungið í
andlitið á þjóðinni. „Ef við gerum
ekki eitthvað stórtækt þá stöndum
við ekki við skuldbindingar okkar.
Það væri alger yfirmáta skandall
fyrir land og þjóð, hneisa,“ segir Sig-
urður sem hefði viljað að stóriðjan
væri klofin frá í skýrslunni og fjallað
um hana sérstaklega. Ekki sé hægt
að tala um skuldbindingar Íslands
og stóriðju í sömu setningu, og því
drepi það umræðunni á dreif að
fjalla um hana samhliða öðru sem
varðar alþjóðlegar skuldbindingar
í loftslagsmálum. Hann kastar fram
þeirri spurningu af hverju nauð-
synlegt sé að fjalla um stóriðjuna
í þessu samhengi þegar útstreymi
vegna millilandaflugs sé ekki metið.
Góðu fréttirnar eru, að mati Sig-
urðar, það sem er löngu vitað. Raf-
orkuframleiðsla er afar kolefnislág
á Íslandi; húshitun er kolefnisfrí á
Íslandi og sjávarútvegur hefur þegar
náð viðunandi samdrætti miðað við
1990.
„Þannig að nákvæmlega öll vötn
renna til vegasamgangna. Þar verð-
ur að fara verulega grimmt inn. Sem
betur fer eru allar lausnir tilbúnar
og ekkert því til fyrirstöðu að kýla
á þetta. Það verður einfaldlega
að setja hærra verð á kolefnið og
gera þannig loftslagsvænar lausnir
meira aðlaðandi,“ segir Sigurður
sem bendir á að ganga eigi hreint
til verks með allar þær aðgerðir sem
eru tiltölulega ódýrar og listaðar
eru upp í skýrslunni – og eru þær
margar.
Hann bendir á að það séu ekki
nema tæp tólf ár til stefnu. „Ef þú
kaupir nýjan bíl núna þá er líklegt
að hann verði enn að skila nei-
kvæðum tölum inn í bókhaldið
okkar 2030 hvort sem þú átt hann
þá eða einhver annar. Ákvörðunin
um að kaupa hann var þín og hann
er því á þína ábyrgð í bókhaldinu.
Með öðrum orðum, þá verður alltaf
stærri og stærri ákvörðun að kaupa
ekki raf- eða metanbíl. Bílakaup
mín geta því haft neikvæð áhrif á þig
með þeim hætti að þú verður íbúi
lands sem ekki stóð við skuldbind-
ingar sínar – sem er afar neikvæð
ímynd. Skýrslan segir okkur að bif-
reiðakaup eru ekki lengur einkamál
hvers og eins og ekkert óeðlilegt við
að þeim sé stýrt í ákveðna átt með
sköttum og ívilnunum.“
svavar@frettabladid.is
52%
aukning frá
úrgangi.
69%
aukning frá
orkufram-
leiðslu.
39%
aukning frá
samgöngum.
43%
minnkun á
útstreymi frá
sjávarútvegi.
4%
minnkun á
útstreymi frá
landbúnaði.
1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r12 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
F
-4
3
4
C
1
C
3
F
-4
2
1
0
1
C
3
F
-4
0
D
4
1
C
3
F
-3
F
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K