Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 34
Dans-, söngva- og gleðimyndin La La Land fer nú sigurför um heiminn og er tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna, meðal annars fyrir búninga. Búningahönnuð- ur myndarinnar, Mary Zophres, hefur komið víða við á glæstum ferli og sett mark sitt á myndir eins og The Big Lebowsky, Fargo og Interstellar. Fyrir þessa mynd sótti hún innblástur til stjörnu- stíls þeirra Julie Christie, Ingrid Bergman, Grace Kelly og Kathar- ine Hepburn. Búast má við að áhrifa myndar- innar gæti strax í sumar í tískunni og hér eru nokkur góð ráð til að dvelja í La La Landi í allt sumar. Ekki vEra hrædd við að vEra í lit Myndin er öðrum þræði óður til þeirrar byltingar sem litmyndirn- ar voru og leiddi af sér það sem hefur verið kallað gullöld Holly- wood. Aðalpersónan Mia, sem leikin er af Emmu Stone, og vin- konur hennar klæðast aðallega einlitum flíkum; sterkgulum, skærbláum, djúpgrænum og há- rauðum. Á leiðinni í partí syngja þær um að það borgi sig að vera sýnilegur því einhver gæti verið á staðnum sem léti draumana ræt- ast. Ekki vera hrædd við að skera þig úr. Blandaðu saman gömlu og nýju Þó það sé stefnan að vera í „vint- age“ þarf ekki allt að koma af sama flóamarkaðinum. Það er inni núna að blanda saman gömlu og nýju, í La La Landi ekur fólk um á blæjubílum frá sjötta ára- tugnum og talar í farsímann um leið og á sama hátt er gaman að vera í fínum kjól sem gæti verið frá miðri síðustu öld og grófum skóm eða stígvélum. toppurinn að vEra í tEinóttu Það er líka allt í lagi að leggja stundum litríku kjólunum og taka Ingrid Bergman sér til fyrirmynd- ar. Teinótt jakkaföt, kremlit silki- skyrta og eldrauður varalitur gera oft gæfumuninn og ekki er verra ef hárið er sett upp í hnút. Finndu til mEð Fótunum Í einu atriði myndarinnar er Mia í þeirri aðstöðu að þurfa mögu- lega að ganga langa leið á hæla- skóm sem hvorki eru gerðir fyrir gönguferðir né götudans. Hún reynist vera með flatbotna skó í töskunni sinni, nokkuð sem allir ættu að taka sér til fyrirmyndar. vErtu mEð til vara Og að lokum eitt ráð sem snýr að þægindum og hagkvæmni. Mia lendir í því í myndinni að ein- hver sullar kaffi yfir hana nokkr- um mínútum áður en hún fer í áheyrnarprufu. Ef þú ferð út á lífið í hvítri skyrtu eða bol marg- faldast líkurnar á því að einhver helli niður á þig. Það er bara þann- ig. Vertu í einhverju innan undir sem virkar eitt og sér eða taktu með aukabol. Hér undirbúa þau Mia, sem leikin er af Emmu Stone, og Sebastian, sem leikinn er af Ryan Gosling, steppdansinn en það er mjög skynsamlegt að vera með sléttbotna skó í töskunni sinni ef slík tækifæri bjóðast á leið heim úr partíi. Ef þú vilt láta sjá þig eru sterkir litir málið. Hér eru Mia og vinkonur hennar að búa sig undir að fara í veislu þar sem skiptir öllu máli að vera áberandi. Kvikmyndagyðjur fjórða og fimmta áratugarins eru innblástur Miu á örlagastundu í lífinu. nokkur góð ráð úr lala landi Kvikmyndin La La Land fer sigurför um heiminn og má reikna með að áhrifa frá henni gæti fljótt í tískunni. Þar má ennfremur grípa nokkra góða fatasiði sem kynnu að koma sér vel við ýmsar aðstæður. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Gömlu ónýtu fötin gætu verið verðmæt Við bjóðum viðskiptavinum okkara að fá eitthvað fyrir gömlu ónýtu fötin sín, með því að koma með þau til okkar í Belladonna á endurvinnsludögum NO SECRET og notaðu gömlu þau sem hluta af greiðslu upp í nýja flík. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl. 11–18 laugardaga kl. 11-15 „Kryddaðu fataskápinn” Kjóll á 7.900 kr. - einn litur: army/ svart/kremhvítt - stærð: 36 - 46/48 Leggingsbuxur á 6.500 kr. - 5 litir: svart, blátt, grátt, grænt, brúnt - stærð: 36 - 48 FÖSTUDAGA KL. 21:15 1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r6 f ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a 1 6 -0 2 -2 0 1 7 0 5 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 F -2 5 A C 1 C 3 F -2 4 7 0 1 C 3 F -2 3 3 4 1 C 3 F -2 1 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.