Fréttablaðið - 16.02.2017, Side 54
byko.is
BÓN, Hard Wax, 500ml
1.495kr
90503012
SVAMPUR, Multi
495kr
90504280
ÞVOTTA LÖGUR,
glans
795kr
90503143
RÚÐUVÖKVI
3 l., -21°C
RÚÐUVÖKVI
5 l., -18°C
595kr
42356587
895kr
90503840
BÍLLINN Á ÞAÐ
BESTA SKILIÐ
3 l.
5 l.
Leikfélag Akureyrar er að verða hundrað ára og pressan er sett á þig? „Já, þegar þú segir það svona, en ég verð að játa að ég hafði ekki hugsað alla
leið, áttaði mig bara á þessu þegar
ég var að lesa yfir leikskrána í gær-
kvöldi,“ segir Sara Martí Guðmunds-
dóttir leikstjóri, annar af tveimur
höfundum verksins Núnó og Júnía
sem verður frumsýnt í Hofi á laugar-
daginn. Verkið er jafnframt 322. svið-
setning Leikfélags Akureyrar sem var
stofnað þann 19. apríl árið 1917. Sara
hlær yfir pressunni og bætir við að
það sé nú bara gaman að vera treyst
til góðra verka á þessum stóru tíma-
mótum Leikfélagsins.
Á síðasta leikári setti Sara upp
barna- og fjölskyldusýninguna Pílu
Pínu hjá Leikfélaginu og sú sýning
fékk góða dóma og gekk vel. Sara
segir að velgengni þeirrar sýningar
hafi svo markað upphafið að því
sem hún er að takast á við núna.
„Eftir velgengni Pílu Pínu þá hafði
Jón Páll, leikhússtjóri LA, samband
og spurði hvort ég hefði áhuga á
því að leikstýra aftur á þessu leikári
fyrir norðan. Við fórum að skoða hin
og þessi verk til þess að fara með á
fjalirnar en það var alltaf eitthvert
vesen með þau. Þannig að við Sig-
rún Huld Skúladóttir, sem skrifaði
með mér leikgerðina að Pílu Pínu,
komum bara með hugmynd að verki
sem Jón Páll kveikti strax á. Í fram-
haldinu fórum við á fullt að skrifa
síðasta sumar og vorum að því langt
inn í haustið.“
Afburðafólkið
En hvernig verk er Núnó og Júnía?
„Já, ég ætla að reyna að halda þessu
einföldu sem er reyndar frekar erfitt,
en í stuttu máli þá er þetta framtíðar-
spennuleikrit fyrir alla fjölskylduna.
Verkið gerist í veröld sem heitir
Kald ónía og þar stendur fólk frammi
fyrir því að tíu árum áður kom plága
yfir samfélagið sem kallast Þokan og
veldur því að fólk verður ósýnilegt.
Yfirvöld tóku til þess ráðs, til þess að
reyna að hamla útbreiðslu, að allir
sem smitast eru fluttir inn í dal sem
kallast Þokudalurinn. Eina fólkið
sem virðist ekki smitast af Þokunni
er það sem geta talist afburðafólk.
Þannig að ef maður ætlar að sleppa
við að fá Þokuna og verða ósýni-
legur er ekkert annað að gera en að
lifa hvern einasta mánuð eins og
það væri meistaramánuður. Bara
alla helvítis daga, þannig að það er
ekkert grín, því annars áttu á hættu
að fá Þokuna og að vera skutlað inn í
Þokudal til þess að vera þar um aldur
og ævi þar til þú hverfur.
Þetta er veröldin sem við stillum
upp en í upphafi verksins er afreks-
maðurinn Núnó að fá stöðu sendi-
herra Kaldóníu og hann er svona
eins og Íþróttaálfurinn þar á bæ.
Núnó er boðberi metnaðar og gaur-
inn sem hvetur alla áfram en daginn
eftir að hann tekur við þessari mikil-
vægu stöðu þá vaknar hann upp
við það að önnur höndin er orðin
ósýnileg, hann er sem sagt kominn
með Þokuna. Það er bara eins og að
Íþróttaálfurinn fengi sykursýki tvö
eða einhvern viðlíka lífsstílssjúk-
dóm. Það gengur ekki þar sem hann
er þarna rétt við toppinn á tilverunni
heldur ákveður hann að leyna þessu
og reyna að komast að rót vandans.“
Öll ófullkomin
Sara bendir á að það megi því eigin-
lega segja að Núnó og Júnía sé eins
konar dystópískt verk fyrir alla
fjölskylduna. „Þetta eru auðvitað
ömurlegar aðstæður en þetta er
engu að síður pressa sem við setjum
flest á okkur alla daga. Börnin okkar
búa meira að segja við miklu meiri
pressu en mín kynslóð ólst upp við
þannig að við þurfum auðvitað ekk-
ert að vera hissa á því að allur tíundi
bekkurinn sýni kvíðaeinkenni. Þetta
er heimurinn sem við höfum skapað
okkur sjálfum og börnunum okkar.
Við lifum við fáránlega pressu frá
degi til dags og okkur Sigrúnu Huld
langaði til þess að taka þetta fyrir í
leikhúsinu. Nýta fantasíuna til þess
að skoða samfélagið.“
Sara hefur orð á því að þessi sam-
félagslega pressa virðist því miður
vera að aukast ef eitthvað er. „Sam-
félagsmiðlarnir og þessi sífelldi
samanburður á milli fólks veldur
gríðarlegu álagi. Það er orðið alveg
glæpsamlegt að vera ófullkomin
eða ekki í einhverri staðlaðri mynd,
en þó erum við það öll ef að er gáð.“
Miklir töfrar
Að setja upp heila framtíðarveröld
á leiksviði er væntanlega flókið og
erfitt verkefni og Sara tekur undir að
það sé „brjálæðislega erfitt. En við
erum inni á stóra sviðinu í Hamra-
borg og Hof er gott hús. En það
að láta fólk hverfa, smátt smátt, er
auðvitað ekki það einfaldasta sem
maður gerir í leikhúsinu en með
mjög mikilli og góðri samvinnu á
milli ljósa, sviðsmyndar, búninga
og hreinlega allra þá hefst þetta. En
þetta er mikið leikhús, brjálæðislega
sjónrænt, með miklum töfrum. Svo
erum við líka með frábæra tónlist
eftir Stefán Örn Gunnlaugsson sem
á eflaust eftir að heilla marga.
Það er líka gaman að vera þarna
með tvo unga leikara, þau Alexand-
er Dantes Erlendsson og Dominique
Gyðu Sigrúnardóttur, sem eru bæði
að stíga sín fyrstu skref í atvinnuleik-
húsi og með þeim er svo Bjarni Snæ-
björnsson sem útskrifaðist reyndar
úr skólanum með mér á sínum tíma.
En við erum líka með fimmtán auka-
leikara og þau búa að miklu leyti til
þennan heim fyrir okkur.
Heim sem ég vona að Akureyr-
ingar og helst allir landsmenn komi
og sjái í leikhúsinu á næstunni. Ég er
viss um að fólk á eftir að hafa gaman
af því að koma til okkar og eftir sýn-
inguna er gott að velta henni fyrir sér
og ræða um það að við erum í raun
fullkomin í ófullkomleika okkar.“
Það er orðið glæpsamlegt að vera ekki fullkomin
Núnó og Júnía er nýtt leikrit, eftir þær Söru Martí Guðmundsdóttur og Sigrúnu Huld Skúladóttur, sem
verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á laugardaginn en leikfélagið á aldarafmæli um þessar mundir.
Sara Martí Guðmundsdóttir,leikstýrir
Núnó og Júníu. MyNd/SAMANthA WeSt
Bjarni Snæbjörnsson og Alexander dantes erlendsson í hlutverkum sínum í verkinu Núnó og Júnía hjá Leikfélagi Akureyrar.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð
menning
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
E
-F
E
2
C
1
C
3
E
-F
C
F
0
1
C
3
E
-F
B
B
4
1
C
3
E
-F
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K