Fréttablaðið - 16.02.2017, Qupperneq 66
Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kaffihúsa Te & kaffi,
byrjar flesta daga á að drekka
matcha- te. Halldór segir teið gefa
kraft og ýta undir einbeitingu.
Halldór byrjaði að drekka matcha-
te fyrir um sex árum. „Fyrst kunni ég
ekki alveg að meta það en þegar ég
lærði að laga það rétt varð það mjög
gott. Núna reyni ég að byrja daginn
á einum bolla af matcha, það kemur
sér vel þegar ég stunda jóga og hug-
leiðslu á morgnana. Matcha gefur
manni aukinn kraft og skerpir hug-
ann.
Ef maður veit hvað maður er að
gera er mjög lítið vesen að laga það,“
segir Halldór sem mælir með að nota
vigt og hitamæli þegar matcha- teið er
útbúið.“ Það er nefnilega mikilvægt
að vatnið sé ekki of heitt, það má
ekki vera heitara en 80°C. Einnig er
mikilvægt að bursta teið rétt svo það
freyði vel.“
„Matcha er mjög ríkt af and-
oxunar efnum og gefur manni auka-
orku og skarpan huga,“ segir Halldór
meðal annars aðspurður af hverju
hann drekki matcha. „Matcha er
mjög hollur og virðulegur drykkur
en það hefur verið drukkið í yfir 800
ár. Hér áður fyrr voru einungis fáir
útvaldir sem áttu kost á að drekka
matcha. Teið er unnið úr einu
besta afbrigði af grænu te sem
er fáanlegt í Japan og það er
malað á ákveðinn hátt
svo að þegar teið er
drukkið er allt teið
nýtt,“ útskýrir
Halldór sem
hefur und-
anfarið tekið
eftir auknum
vinsælum matcha-
tesins.
Halldór segir matcha-
te vera góðan kost fyrir þá
sem eru að taka sig á í Meist-
aramánuði og vilja t.d. minnka
gosdrykkju. „Já, klárlega, ef fólk
vill bæta hollum og góðum drykk við
næringuna þá mæli ég hiklaust með
mathca. Einnig mæli ég með því ef
fólk stundar hugleiðslu því matcha
hjálpar til við að auka einbeitingu.“
Eins og áður sagði reynir Halldór
að byrja hvern dag á bolla af matcha
en eftir það tekur kaffið við. „Ég
vinn við að smakka kaffi svo suma
daga eru ansi margir kaffibollar
drukknir en ætli ég drekki ekki
fimm til sex bolla af kaffi yfir
daginn.“
Fyrir þá sem hafa
aldrei vanið sig á að
drekka te mælir
Halldór með
að kynna sér
h v e r n i g
á að laga
ferskt te
o g d ra g a
fram það besta
úr hráefninu. „Það er allt of
algengt að te sé rangt lagað – vit-
laust hitastig á vatninu, of mikið
magn af telaufum á móti vatni eða að
teið er látið trekkja of lengi skemmir
fyrir,“ segir Halldór sem mælir með
að fólk prófi sig bara áfram til að
finna te við sitt hæfi. – gha
Byrjar daginn á meinhollu matcha-tei
Halldór Guðmundsson er aðdáandi matcha-tes. Fréttablaðið/GVa
Það er ekkert flókið að útbúa
matcha te að sögn Halldórs.
Fréttablaðið/GVa
Dagbjört Þorsteins-dóttir hjá bakarí-inu 17 sortir hefur undanfarið orðið þess vör að mikil vakning hefur orðið
í tengslum við veganisma og eftir-
spurnin eftir vegan kökum er alltaf
að aukast. „Eftirspurnin hefur aukist
undanfarnar vikur og mánuði. Og
fólk er í auknum mæli að uppgötva
að við bjóðum upp á þennan val-
kost,“ útskýrir Dagbjört.
„Nei, en þegar við byrjuðum þá
höfðum við enga reynslu af vegan
bakstri, og maður þarf í rauninni
að hugsa þetta upp á svolítið nýjan
máta þar sem undirstöðuhráefnin í
venjulegri köku eru mjólkurvörur og
egg,“ segir hún aðspurð hvort það sé
flóknara að gera vegan kökur heldur
en hefðbundnar kökur. „En við erum
með nokkrar góðar grunnuppskriftir
sem við getum útfært á marga mis-
munandi máta.“
„Af okkar daglegu mismunandi 17
sortum eru tvær sortir sem eru ýmist
vegan eða glútenfríar eða hvort
tveggja,“ segir Dagbjört.
gudnyhronn@365.is
Algjör óþarfi
að fórna
kökunum
Íris björk Óskarsdóttir, yfirbakari 17 sorta, er orðin sjóuð í vegan bakstri. Fréttablaðið/EyÞÓr
Vegan kökudeig
300 g smjörlíki
300 g sykur
150 g rúsínur eða trönuber
450 ml vatn
1 msk. kanill
1 ½ tsk. negull
Allt sett í pott og látið bráðna saman
og svo látið sjóða í 3 mínútur. Kælið
örlítið.
450 g hveiti
1 msk. lyftiduft
1 ½ tsk. natron
Þurrefnum er blandað saman í
skál og rúsínukryddblöndunni er
blandað saman við.
Deiginu er deilt á milli þriggja
kringlóttra forma sem eru 22 cm
í þvermál, u.þ.b. 500 g fara í hvert
form. Bakað við 175°C í 12-16
mínútur. Botnarnir eru losaðir úr
formunum þegar þeir eru orðnir
nægilega kaldir. Einnig er hægt
að baka kökuna í ofnskúffu eða
brownie-formi.
Dúnmjúk vegAn kAkA með vAnillukremi
Margt fólk virðist
óttast að veganismi
þýði endalausar
fórnir góðgætis. En
svo er víst ekki.
Til að sýna það og
sanna fengum við
Dagbjörtu Þorsteins-
dóttur, rekstrarstjóra
17 sorta, til að deila
með okkur uppskrift
að vegan köku.
1 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r50 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð
1
6
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
F
-2
F
8
C
1
C
3
F
-2
E
5
0
1
C
3
F
-2
D
1
4
1
C
3
F
-2
B
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K