Lystræninginn - 01.06.1982, Blaðsíða 22
Gunnar Svsrrisson:
HsimirMár:
Raffrétt
Bráðum vorar
Tveir pólar mætast af makt,
jákvætt og neikvætt
af viti,
því rafvirkinn
hefur mikið í verkið lagt,
því útleiðir Amors alsherjar hiti.
Þá rafvirkinn veit
að vinna sín funkerar rétt,
hið fullkomna kerfi vinnur með stöku blossa.
Tveir andstæðir pólar,
nágrennið öryggja þétt,
finnst kjörið að leika með jákvæða ncikvæða kossa.
Og þegar kerfið um stund
hefur unnið rétt
og rafvirkinn veit
hversu af því nú vænta megi.
I fjölmiðlum öllum kemur hin mikla frétt
um kerfi sem funkerar rétt
á þess vígslu degi.
Þegar myrkrið
læðist
að glugganum
mínum
á köldum
vetrarnóttum
og hvíslar
nú er kalt
og dimmt
þá horfi ég
brosandi
útí nóttina
og hvísla
en bráðum vorar
í mannheimum.
Hrafn Rndrésson:
Ammci
Amma gamla vissi hvað hún söng.
Hún söng fátt og sjaldan.
En það sem hún söng
söng hún vel.
Að vísu söng hún engin lög
en það sem hún sagði voru
lög.
Hún hélt illa lagi
en hafði lag á
því sem hún söng.
Hún vissi hvað hún söng.
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
22