Lystræninginn - 01.06.1982, Blaðsíða 23

Lystræninginn - 01.06.1982, Blaðsíða 23
flrni L Jónsson: Ónæði Við liggjum tvö og látum okkur dreyma, - þá er barið (??) ÞAÐ ER ENGINN HEIMA. Sexapíl Hryllilegar hrellingar, hraunið, rokið, svaðið. ,,Komið þið sælar kerlingar, - hvar er Morgunblaðið?” Ferðalok Hún kemur inn og kyssir mig, — á vangann. „Hvernig fór svo Keflavíkurgangan?” Miskunnarlevsi „Viltu deyja?” ,Já.” „Deyðu þá.” Spstirin Stundum fer ég stuta ferð að finna stúlku sem ég þekki. — Hún er ósköp siðsöm en systir hennar er það ekki AdólfÓlofsson: Draumur hún hvíslaði hljómþýðri röddu undurblíð orð í eyra mér hugfanginn hlustaði ég á kliðmjúk kærleiksorð andgufa yljaði mér sem vonin á vanga varir mjúkar votar hlýjar krystalstærar kysstu mínar slíkur var draumur minn Gunnor Svorrisson: I minningu Brésneffallinn, moldar til, hamar sigð er merkið, Rússnesk þjóð, vill gera skil, hans kvitta lífs fyr, verkið. Brésneffallinn moldar til, fa.ll sem seint mun gleymast, nú verður svo, um stundar bil, sá útvaldi, mun leynast. Á meðan syrgir rússnesk þjóð, Brésnef, vininn góða, því hann var mikill, fylginn sér, þekktur meðal þjóða. 23

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.