Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 11
Fréttir 11Helgarblað 8.–11. janúar 2016 Aukagjöldin sem er dýrt að taka ekki með í reikninginn n Ekki villandi að tilgreina ekki aukagjöld við auglýst verð 12 þúsund krónur verða 15 Síminn aftur á móti býður upp á Heimilispakkann, sem auglýstur er rækilega á 12 þúsund krónur á mánuði. Í honum fá viðskiptavinir aðgang að frelsi og tímaflakki Skjá­ sEins, sjónvarpi Símans, erlendum stöðum, tónlistarveitunni Spotify Premium, frítt í sex mánuði, ókeypis heimasímanotkun innanlands og óháð kerfi svo eitthvað sé nefnt. Auk háhraðanettengingar þar sem inni­ falin eru 75 GB af gagnamagni. Einn veigamesti munurinn á pökkum Símans og 365 er að farsíma­ áskrift er ekki innifalin í Heimili­ spakka Símans. Ef hjónin í dæmi okkar hér að framan vildu bæta inn tveimur sambærilegum farsíma­ áskriftum og eru í tilboði 365 gætu þau til dæmis valið áskriftarleiðina Sveigjanlegur – Bestur og fengið 120 mínútur á mánuði, 10 GB í gagna­ magn á 3.990 krónur fyrir hvorn síma. Alls 7.980 krónur fyrir hjónin á mánuði sem leggjast myndu ofan á verð Heimilispakkans. Á móti kemur hins vegar að þar fylgir netbeinir þannig að enginn aukakostnaður leggst á vegna hans. En það sem þó leggst við verð Heim­ ilispakkans er línugjald, sem getur verið mismunandi milli þjónustuað­ ila, en er hjá Símanum 2.390 krónur á mánuði. Annað verð er síðan í Hvalfjarðarsveit, hjá Tengi á Akureyri og í Skeiða­ og Gnúpverjahreppi. „Við töldum því réttast að láta gjaldið standa utan við pakkann svo við gæt­ um auglýst þetta hagstæða verð á pakkanum og haft framsetninguna eins skýra og hægt er,“ segir Gunn­ hildur Arna Gunnarsdóttir, upplýs­ ingafulltrúi Símans. Ef línugjald Símans leggst á 12 þúsund króna pakkann kostar hann 14.390 krónur á mánuði í raun. Eða 28.680 krónum meira á ári, en en áætla mætti út frá auglýstu verði. Í áðurnefndri umfjöllun DV um mælingar fjarskiptafyrirtækja á gagnamagni í fyrra kom fram í svari Símans að 75 prósent viðskiptavina Símans noti undir 75 GB á mánuði. Þannig liggur fyrir að heldur minni líkur eru á að hefðbundnir notendur klári innifalið gagnamagn í Heimili­ spakka Símans en til að mynda þau 20 GB sem innifalin eru hjá 365. En fari svo er hægt að bæta við auka 150 GB við Heimilispakkann fyrir 1.000 krónur á mánuði. Þá kostar pakkinn 15.390 krónur á mánuði. Ef við gefum okkur að hjónin í dæmi okkar vilji halda öllum sínum fjarskiptaviðskiptum á einum og sama stað, og bæta við farsíma­ áskriftum sínum líka getur fjar­ skiptareikningur heimilisins því auðveldlega numið á bilinu 22.370 til 23.370 krónum á mánuði eftir því hvort þau velji aukið gagnamagn fyrir netið eður ei. Þurfa ekki að tilgreina heildarkostnaðinn En hvernig komast fjarskiptafyrir­ tæki upp með að auglýsa verð á þjón­ ustuleiðum, án þess að tilgreindir séu mikilvægir kostnaðarliðir sem geta hafa umtalsverð áhrif á endan­ legt verð þjónustunnar? Í lok maí 2012 kvað Neytendastofa upp úrskurð í máli Nova gegn samkeppnisaðilanum Símanum þar sem Nova hafði kvartað undan auglýsingu Símans á mánaðar verði ADSL þjónustuleiða fyrirtækisins. Vildu forsvarsmenn Nova meina að auglýsingarnar væru villandi, einmitt vegna þess að þar væri ekki greint frá mikilvægum kostnað­ arliðum. Í viðbrögðum Símans við kvörtun Nova segir meðal annars: „Það væri ekki með skynsamleg­ um hætti hægt að halda því fram að þau fyrirtæki sem bjóði upp á ADSL þjónustu þurfi að tiltaka allt það sem viðskiptavinurinn þurfi að gera til þess að geta notað þjónustuna enda verði að ætla að neytendum sé al­ mennt kunnugt um í hverju ADSL þjónusta felist.“ Niðurstaðan varð að Neytenda­ stofa taldi Símann ekki hafa farið rangt með mánaðarverð ADSL þjón­ ustuleiðanna þar sem neytendur gætu ýmist komist hjá því að greiða þá kostnaðarliði sem Nova tilgreindi í kvörtun sinni eða keypt búnað, eins og netbeini, hjá öðrum en Símanum. Taldi Neytendastofa Símann einnig hafa gert fullnægjandi ráðstafanir til að gera upplýsingar um kostnaðar­ liðina aðgengilega á heimasíðu Símans. Af þessu má því ráða að fjar­ skiptafyrirtæki þurfa ekki að til­ greina heildarkostnað áskriftarleiða, þjónustuleiða eða tilboða varðandi aukabúnað sem telja má nauðsyn­ legan til að nýta sér áðurnefnda þjónustu. Einfaldlega vegna þess að hægt sé að nálgast eða eignast þann búnað með öðrum leiðum eða vegna þess að upplýst er um þann auka­ kostnað í smáa letri þjónustunnar á heimasíðum fyrirtækjanna. n 365 – Skemmtipakkinn Dæmi um áskrift hjóna: n 6 sjónvarpsstöðvar: Stöð 2, Stöð 3, Bíóstöðin, Krakkastöðin, Gullstöðin, Bravó. n Maraþon: Hægt að nálgast nýjar og eldri þáttaraðir sem sýndar eru á Stöð 2. n Ljóshraðanet: Allt að 100mb/s nettenging og 20 GB af gagnamagni. n Heimasími: 100 mínútur í íslenska heimasíma. n 365 GSM þrep: 60 mínútur í alla síma innanlands og 10 GB af gagnamagni á 0 kr. fylgja. Ef þú ferð umfram 60 mínútur og upp í allt að 365 mínútur greiðir þú 2.990 krónur. Auglýst verð samtals: 9.290 krónur á mánuði Mánaðarleg aukagjöld n Aðgangsgjald Míla: 2.580 kr. n Leiga á ZyXEL beini: 590 kr. n Sjónvarp 365: 1.690 kr. Samtals Skemmtipakki og aukagjöld, haldi hjónin sig innan uppgefins gagnamagns og mínútna: 14.150 kr. á mánuði. Mismunur á auglýstu verði og raunverði: 4.860 kr. á mánuði, eða 58.320 kr. á ári. Ef þau halda sig ekki innan uppgefins lágmarks bætist við: n Aukið gagnamagn 150 GB: 1.990 kr. n Tveir GSM-símar fara yfir 60 mín. í notkun: 5.980 kr. Samtals Skemmtipakki og aukagjöld: 19.540 kr. á mánuði. Mismunur á auglýstu verði og raunverði: 10.250 kr. á mánuði, eða 123.000 kr. á ári. Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is Sérfræðingar í prenthylkjum Bleksprautuprentari: 16.900 kr. 5 hylkja sett: 3.900 kr. Mono Laserprentari: 24.900 kr. Tónerhylki í P1102W prentara: 6.590 kr. Hagstæðar prentlausnir fyrir heimili og allar stærðir fyrirtækja - kíktu til okkar og við finnum réttu lausnina fyrir þig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.