Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 8–11. janúar 20164 Leikur að læra - Kynningarblað Meðferðardáleiðsla er huglæg endurforritun S kólastjóri Dáleiðsluskóla Ís- lands, Ingibergur Þorkelsson, segir að 22 daga námskeið skólans í meðferðardáleiðslu geti gefið ýmsum starfsstétt- um ný og öflug verkfæri sem ekki bjóðist í öðrum skólum á Íslandi. Hann segir að allir sem vinni með fólki hagnist af þessari þjálfun og læri heilmikið um sjálfa sig og geti breytt lífi sínu til batnaðar. Ingibergur segir að orð séu svo öflug að það jafnist á við galdra hvort sem þau eru notuð til góðs eða ills. Þannig skipti það sköp- um í uppeldi barna að hvetja barnið og hrósa því. Þannig getur einstak- lingurinn sigrast á öllum vandamál- um í lífinu á meðan barn sem hefur verið sagt að það sé ómögulegt og geti ekkert gert rétt muni eiga erfitt með að ná árangri jafnvel við bestu mögulegar aðstæður. „Læknir sem kann orðfæri dáleiðslunnar getur létt sjúklingum sínum lífið að mörgu leyti. Ef hann sýnir sjúklingum sínum að hann sé bjartsýnn um árangur af með- ferð, aðgerð eða lyfjagjöf gengur það venjulega eftir. Sjúklingurinn fer áhyggjulaus í aðgerðina, líður betur eftir hana og batinn er hraðari,“ segir Ingibergur. „Ef læknirinn hins vegar notar orð eða viðmót sem gefur sjúklingnum tilefni til að ætla að að- gerðin verði erfið er líklegt að sjúk- lingurinn upplifi meiri sársauka og kvíða og grói hægar,“ bætir hann við. Sálfræðingar almennt frábært fólk „Ég auglýsti um daginn í Fréttablað- inu og benti ýmsum stéttum á hvert gagn þær gætu haft af því að kunna dáleiðslumeðferð, þar á meðal sál- fræðingum. Sagði meðal annars að það væri betra að geta fundið og eytt orsök vandans í undirvitund- inni en að glíma við hann í meðvit- undinni,“ segir Ingibergur. „Stjórn Sálfræðingafélags Íslands misskildi líklega þessi skilaboð og brást illa við, sagði að ég væri að draga heila starfsstétt niður í svaðið,“ held- ur Ingibergur áfram. „Ég ber mikla virðingu fyrir sálfræðingum og í mínu meðferðarstarfi hitti ég oft fólk sem segir mér að þessi sálfræðingur hafi hreinlega bjargað lífi þess eða hinn hjálpað þeim að yfirstíga vanda sem virtist óleysanlegur. Mér finnst hins vegar að sálfræðingar hafi ekki nógu góð verkfæri. Það er alveg hægt að grafa skurð með skóflu en þegar vélskófla er boðin í staðinn er ekki verið að gera lítið úr því sem gert hefur verið,“ segir hann. Ingibergur segir að vandinn sé aðallega fólginn í þeirri dulúð sem búið er að sveipa dáleiðslu. Rétt- ast væri að henda því orði og kalla þróaða meðferðardáleiðslu, hug- læga endurforritun, sem sé rétt lýsing á meðferðinni. „Vegna þess hvernig búið sé að fara með heitið dáleiðsla er hún ekki einu sinni kennd í háskólum á Íslandi, þar sem hún ætti að vera skyldufag fyrir alla, ekki síst heilbrigðisstéttirnar,“ seg- ir hann. „Taugavísindamaðurinn Dav- id Eagleman hefur skrifað fróðlegar bækur um heilann og hugann, með- al annars bókina Incognito – The secrect Lives of the Brain. Eaglem- an er í fremstu röð þeirra sem rann- saka heilann. Hann segir að þótt við vitum miklu meira um heilann í dag en fyrir nokkrum árum séu vís- indamenn eins og hann í raun ekki komnir lengra en að taka lokið af og skoða hvaða vír liggi hvert. Heil- inn sé svo flókinn að langt verði þar til vísindamenn skilji hann til fulls,“ segir Ingibergur. Dáleiðslumeðferð sem listgrein Ingibergur segir að höfundur dáleiðslunámskeiðs skólans, Roy Hunter, kenni dáleiðslumeðferð sem listgrein frekar en vísindi. Hann byggir á langri reynslu sinni og for- vera sinna og hefur náð geysilegum árangri. „Á sama hátt og lítið er vit- að um heilann er í raun lítið vitað um hvernig dáleiðsla virkar, hvaða svæði heilans virkjast og hvað breyt- ist við meðferðardáleiðslu þótt nokkuð hafi nú verið gert af MRI og öðrum rannsóknum á dáleiðslu. Þetta á ekki bara við um dáleiðslu því á sama hátt veit enginn í raun hvernig sum geðlyf virka, hvaða áhrif þau hafa á heilann og boð- efni hans. Þau hafa oft fundist fyrir slembilukku, og hafa stundum verið ætluð til allt annarra nota. Það sem skipti máli sé að þau virki. Á sama hátt er það sem skiptir máli með dáleiðslumeðferð – að hún virkar,“ segir Ingibergur. Stoltur af nemendunum Ingibergur hefur staðið að nám- skeiðum í dáleiðslu í tæp fimm ár, fyrst með öðrum en síðan í Dáleiðsluskóla Íslands. Hann seg- ir að sum þeirra sem hafa lært dáleiðslu á námskeiðunum undan- farin ár hafi náð mjög miklum ár- angri við að losa fólk við kvíða, svefnleysi og fjölmörg vandamál og við að auka getu og hæfni. Meðal annars hafi margir afburðaíþrótta- menn á Íslandi nýtt sér dáleiðslu- meðferð til að stórbæta árang- ur sinn og séu þar á meðal margir meistarar í sinni grein. Þá hafi fjöl- mörgum verið hjálpað að hætta að reykja og ná stjórn á líkamsþyngd. Námskeið í meðferðardáleiðslu Þann 5. febrúar byrjar 22 daga nám- skeið í meðferðardáleiðslu. Það er í tveimur hlutum. Fyrst er það grunnnámskeið í 10 daga í febrúar og mars og síðan framhaldsnám- skeið í 12 daga í apríl og maí. Strax á fyrsta degi skiptast nemendur á að hlusta á kynningar og fyrirlestra og byrja svo að gera æfingar. „Nem- endur byrja strax á að æfa sig að dáleiða hver annan og gera það oft á dag út námskeiðið,“ segir Ingiberg- ur. Átta kennarar kenna ýmsa hluta námskeiðsins. Þar af sex Íslendingar með mjög mikla reynslu og þekk- ingu á meðferðardáleiðslu. Einnig kemur til landsins Roy Hunter sem er höfundur námskeiðsins og bók- arinnar Listin að dáleiða, og kenn- ir hann þáttameðferð í tvo daga. Adam Eason, sem rekur dáleiðslu- skóla í Englandi og er þekktur fyrir skrif sín um sjálfsdáleiðslu, kennir einnig í tvo daga. Enn er opið fyrir skráningu á námskeiðið á síðunni http:// dáleiðsla.is n Dáleiðsla Nemandi nýtur dáleiðslukyrrðar. Máttur hugans Dr. Yager er níræður en ósigrandi í sjómanni. Ingibergur Þorkelsson Skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.