Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 21
Helgarblað 8–11. janúar 2016 Kynningarblað - Leikur að læra 3
S
alt Eldhús er sælkeraeldhús
sem Auður Ögn Árnadóttir
ákvað að stofna eftir að hafa
lengi sótt slík kennslueld-
hús erlendis. Hún beið lengi
eftir að slíkur staður yrði opnaður á
Íslandi en þar sem það gerðist ekki
ákvað hún að láta slag standa og
opna Salt Eldhús árið 2012.
Einstakt og framandi
„Salt Eldhús er einstakt á alla vegu,“
segir Auður. „Við bjóðum upp á tvö
til þrjú opin námskeið á viku fyrir al-
menning þar sem fámennur hóp-
ur kemur og situr námskeið í elda-
mennsku. Svo er mismunandi hvert
þemað er hverju sinni. Við erum
með fjölbreytt úrval námskeiða svo
allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.
Við erum með kennara sem eru all-
ir sérhæfðir á ákveðnu sviði: bæði
útskrifaða kokka sem koma af hin-
um ýmsum veitingahúsum og svo
áhugamenn frá mismunandi lönd-
um sem kenna matargerð frá sínu
heimalandi,“ segir hún.
Fyrir hádegi hefur Auður stílað
inn á ferðamenn þar sem hún er með
opin námskeið fyrir þá þar sem þeir
geta kynnst íslenskri matarmenn-
ingu og matreitt úr íslensku hráefni.
Upplifunin ógleymanleg
Auður segist leggja mikið upp úr því
að gera upplifun nemenda sinna
ógleymanlega. Áhersla er lögð á fal-
legt umhverfi, góðan mat, dýrind-
is vín, gæða tækjakost og afbragðs
kennara. „Námskeiðin eru því upp-
sett eins og nemendur séu að fara
fínt út að borða. Það er uppvaskari
á staðnum og kokkur. Þú þarft ekki
að spá í frágang, aðeins njóta. Boðið
er upp á vín með matnum og kokk-
urinn er með þér að elda matinn,“
segir Auður.
„Þetta er eina sérinnréttaða
kennslueldhúsið á landinu og eina
eldhúsið sem býður upp á það sem
ég er með allt árið um kring,“ seg-
ir hún. Fáir komast að á hvert nám-
skeið til að hægt sé að mæta hverjum
og einum nemanda þar sem hann er
staddur í eldamennskunni. „Þetta er
því bæði fyrir byrjendur og lengra
komna,“ segir Auður. „Með þessu
er markmiðið að veita persónulega
kennslu,“ bætir hún við.
Einkanámskeið í matargerð
Auður nefnir einkanámskeiðin sem
eru í boði hjá Salt Eldhúsi sem fólk
getur tekið en það hefur verið afar
vinsælt hjá fyrirtækjum, vinahóp-
um og saumaklúbbum að panta slík
námskeið en algengt er að fyrirtæki
skipuleggi hópeflis- og hvataferðir
fyrir starfsmenn sína með þessum
hætti svo dæmi sé nefnt. Einkanám-
skeiðin rúma allt frá tveimur mann-
eskjum upp í 80 manns.
Nýtt námskeið er til dæmis
bjórgerð í heimahúsum
Bóndadaginn 22. janúar verður
námskeið í boði sem snýst um bjór-
gerð. „Þetta er nýjung hjá okkur,“
segir Auður en samkvæmt henni
þá býður hún upp á 30 til 40 mis-
munandi námskeið á ári og reyn-
ir hún ávallt að koma með nýjungar
þar sem áhersla er lögð á nýjustu
tískustrauma og tíðaranda í matar-
gerð. Það vinsælasta núna eru steik-
arnámskeiðin og Sous Vide elda-
mennskan, en ítalskt, indverskt og
taílenskt heldur alltaf velli. n
Framandi matargerð frá
öllum heimshornum
Ásamt sértækri íslenskri upplifun
myNdir Þormar VigNir gUNNarssoN