Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 28
Helgarblað 8–11. janúar 201610 Leikur að læra - Kynningarblað
F
ramhaldsskoli.is er nýr vefur
sem er hugsaður fyrir nem-
endur á framhaldsskóla-
stigi þar sem boðið er upp á
stuðning við valdar kennslu-
bækur og áfanga í framhaldsskólum.
Stuðningurinn felst meðal annars
í gagnvirkum þjálfunarspurning-
um, myndbandsskýringum, ýms-
um gagnvirkum þjálfunaræfingum,
hljóðbókum og rafbókum. Eigendur
síðunnar, Ingólfur Kristjánsson og
Jökull Sigurðsson, segja þetta vera
einu síðuna fyrir íslenska framhalds-
skólanema sem býður upp á stuðning
eins og þennan, sem er tengdur völd-
um kennslubókum og/eða sértækum
vefsíðum sem nýtast nemendum
með beinum eða óbeinum hætti.
Efni í boði
Framhaldsskólanemar geta nálgast
margs konar efni á vefnum og má til
dæmis nefna stærðfræðiskýringar á
myndbandi, námsbækur, skýringar
á helstu málfræði- og bókmennta-
hugtökum ásamt sögum á íslensku
og ensku með skýringum og upp-
lestri og margt fleira. Auk þess er
boðið upp á stórt og vandað rafbóka-
safn og hljóðbókasafn þar sem nem-
endur geta halað niður heilu bók-
unum á tölvuna sína eða síma. „Við
erum að bæta við efni inn á síðuna
í hverjum mánuði,“ segir Ingólfur
annar eigenda síðunnar. Ingólfur
segir í framhaldinu frá þeirri miklu
ánægju sem nýi vefurinn hefur haft í
för með sér og er hann spenntur fyrir
framhaldinu.
Spyrillinn
Ingólfur er afar stoltur af Spyrlinum
sem er einnig í boði á vefnum þar
sem nemendur geta valið kennslu-
bækur og tekið próf úr þeim. Spyrill-
inn er þannig uppsettur að hægt er
að velja ákveðinn kafla úr kennslu-
bók og svara spurningum úr efni við-
komandi kafla. Forritið fer svo yfir
svör nemandans og segir honum
hvað var rétt og hvað var rangt. Nem-
andinn getur í framhaldinu tekið allt
prófið úr kaflanum aftur eða svarað
aftur aðeins þeim spurningum sem
hann svaraði rangt í upphafi. „Okkar
von er sú að kennarar nýti sér Spyr-
ilinn til að bæta við í kennsluna sína
og skapa umræður,“ segir Ingólfur.
Hann telur tækifærin vera mörg sem
væri frábært að nýta til að auðvelda
íslenskum ungmennum mennta-
skólagöngu sína.
Verð í lágmarki
„Við leggjum áherslu á að halda
verðinu eins lágu og við getum,“ segir
Ingólfur. Mánaðargjaldið er 1.490
krónur og ársgjaldið 12.900 krónur.
Ástæðan fyrir svona lágu verði er sú
að sem flestir geti átt möguleika á að
nálgast efnið þeirra. n
Nýr vefur fyrir
framhaldsskólanema