Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 16
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
16 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Helgarblað 8.–11. janúar 2016
Ég pældi
varla í þessu
Við erum
öðruvísi
Ég mun ekki
skipta um skoðun
Ruglað í heimilum
Hilmu Pedersen datt ekki í hug að hún væri með krabbamein. – dv.is Ágústa Kolbrún Roberts segir ljósverur ekki passa inn í samfélagið. – DVGunnar Bragi ætlar ekki að hætta þátttöku í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. – Morgunútvarpið
Þ
að virðist vera eitthvert nátt
úrulögmál að reikningar frá
fjarskiptafyrirtækjum eru
óskiljanlegir. Hvernig stendur
á þessu? Reikningarnir eru jafn
vel svo flóknir að starfsfólk þessara
sömu fyrirtækja skilur þá ekki þegar
útskýringa er
leitað.
DV skoðar
í blaði dagsins
dæmigerð tilboð
frá stóru fjar
skiptafyrirtækj
unum og sjón
varpsveitunum
365 og Símanum.
Þar kemur þessi
vitleysa greini
lega í ljós. Við
skulum gefa okk
ur að þessi fyrir
tæki séu ekki að
blekkja viðskiptavini sína. Þau séu
ekki vísvitandi að setja fram villandi
upplýsingar. Engu að síður leiðir út
tekt DV í ljós að það tilboðsverð sem
kynnt er stenst engan veginn. Þarna
munar tugum
þúsunda fyr
ir fjölskyldu
á ári. Gjöldin
sem bætast við
eftir að tilboði
hefur verið tek
ið eru mýmörg
og heita alls
konar nöfnum.
Tengigjald, að
gangsgjald,
leiga á búnaði
og þar fram
eftir götum.
Flest okkar
vilja borga það sem okkur ber fyrir
vöru eða þjónustu, en gerum á móti
kröfu um að við vitum hvaða þjón
ustu við fáum fyrir vikið.
Þegar horft er til framsetn
ingar á tilboðum stóru fjarskipta
fyrirtækjanna má líkja þessu við
að einstaklingur fari út að borða.
Hann fær matseðil og pantar sér rétt
af honum. Rétturinn kostar 2.890
krónur samkvæmt matseðlinum. En
við bætast margvísleg gjöld. Leiga
á hnífapörum, stólagjald og dúka
álag. Þegar upp er staðið greiðir við
skiptavinurinn rúmar fimm þúsund
krónur fyrir máltíðina. Auðvitað
væri viðskiptavini í sjálfsvald sett að
koma með eigin hnífapör og stól.
Ábyrgð fjarskiptafyrirtækjanna
er mikil í þessu sambandi. Sífellt
hærra hlutfall af tekjum heimila fer
í þann kostnað sem fella má undir
fjarskipti. Snjallsímar, netið, sjón
varpsstöðvar og margs konar af
þreying er komin í einn pakka og
þá er mikilvægt að fyrirtækin freist
ist ekki til þess að auka tekjur sínar
í þeirri þoku sem umlykur allt þetta
tæknidót. Hvernig væri nú að þessi
fyrirtæki settu fram tilboðsverð sem
stenst og á við um það sem í boði
er án þess að læðast í veskið okkar í
gegnum smáa letrið?
Og hvað segja eftirlitsstofnanir
um þetta? Jú, þetta ku vera í lagi.
Guði sé lof og þá væntanlega flokk
ast þessi leiðari bara sem óþarfa
nöldur. n
Guðni í forsetaframboð?
Fram til þessa hafa fáir af hægri
væng stórnmálanna verið orð
aðir við forsetaframboð. Þeir
málsmetandi einstaklingar sem
fram til þessa hafa verið orðað
ir við framboð eiga það sammerkt
að vera fulltrúar vinstri elítunnar,
samanber Andra Snæ Magnason,
Katrínu Jakobsdóttur, Stefán Jón
Hafstein og að hluta til Jón Gnarr.
Hægri menn munu vafalaust leita
að sínum frambjóðanda og ekki
ólíklegt að þeir staldri við nafn
Guðna Ágústssonar. Guðni hefur
möguleika á að sópa upp lands
byggðinni eins og hún leggur sig,
auk þess að sækja í fylgi þjóð
hollra íhaldsmanna og annarra
fylgismanna ríkisstjórnarinnar
í borginni. Með Guðna yrði
sömuleiðis lítil breyting á stefnu
Ólafs Ragnars Grímssonar sem ætti
að vera hægri mönnum mjög að
skapi.
Launaðir listamenn
Nú liggur fyrir hverjir fá lista
mannalaun frá skattgreiðend
um þetta árið. Þarna getur að líta
áhuga
verðan
lista fólks
sem hef
ur lagt
þung lóð á
vogarskálar listagyðjunnar.
Einnig eru þarna margir sem
hafa haft sig mjög í frammi allt
frá hruni í andstöðu við ákveðin
stjórnmálaöfl. Það er því óhætt að
halda því fram að listagyðjan sé
blind ólíkt þeirri gyðju sem kennd
er við réttvísina.
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
„Tilboðsverð sem
kynnt eru stand-
ast engan veginn. Þarna
munar tugum þúsunda
fyrir fjölskyldu á ári.
Fréttir 11
10 Fréttir
Helgarblað 8.–11. janúar 2016
Helgarblað 8.–11. janúar 2016
Aukagjöldin sem er dýrt að
taka ekki með í reikninginn
n En fjarskiptafyrirtækin gera það n Þú greiðir tugþúsundum meira en auglýst tilboðsverð
n Ekki villandi að tilgreina ekki aukagjöld við auglýst verð
M
unað getur tugþúsundum
og jafnvel á annað
hundrað þúsund krónum
á ári á auglýstu verði á
áskriftarpökkum fjar-
skiptafyrirtækja og því verði sem
viðskiptavinir greiða í raun. Ýmis
aukagjöld sem innheimt eru auk
verðs áskriftarpakka geta auðveld-
lega orðið hærri en sem nemur verði
grunnpakkanna sjálfra. Aðgangs-
gjöld, línugjöld, leiga á búnaði og
greiðslur fyrir viðbótargagnamagn og
mínútur, sem oft er naumt skammt-
að í pökkunum sjálfum, eru fljótar að
telja og þjónusta sem viðskiptavin-
ir töldu að væri innifalin getur þegar
upp er staðið reynst þeim dýrkeypt.
DV ákvað að skoða tvo vinsæla
áskriftarpakka hjá tveimur af stærstu
fjarskiptafyrirtækjum landsins, 365
og Símanum. Bæði fyrirtækin bjóða
upp á pakka sem innihalda net,
heimasíma, sjónvarpsáskriftir og, í
tilfelli 365, farsímaáskriftir líka. Fljótt
á litið virðist viðskiptavinurinn vera
að fá mikið fyrir tiltölulega hagstætt
verð, en þegar betur er að gáð leynast
þar margvísleg aukagjöld sem leggj-
ast á hið hagstæða auglýsta verð. Þær
upphæðir geta numið mörg þúsund
krónum á mánuði, tugþúsundum á
ári.
Óumflýjanleg aukagjöld
Sérstaklega er þetta áberandi hjá
365, sem býður meðal annars upp
á Skemmtipakkann. Þar er boðið
upp á sjónvarpsáskrift að Stöð 2 og
systurrásum, net, heimasíma og allt
að fjórar GSM-áskriftir á samtals
9.290 krónur á mánuði. Í auglýsing-
um og á heimasíðu 365 er enginn
fyrirvari um að verðið sé „frá“ 9.290
krónum á mánuði, sem væri í raun
réttara orðalag þegar smáa letrið er
lesið og hin nánast óumflýjanlegu
aukagjöld bætast við.
Tökum dæmi um hjón sem
ákveða að skrá sig fyrir Skemmti-
pakkanum. Þau skrá farsíma sína
tvo í pakkann og velja þá leið að
fá 60 mínútur frítt í alla GSM og
heimasíma á Íslandi og 10 GB af
gagnamagni frítt með. Ef annað
hvort þeirra talar lengur en 60
mínútur í símann á mánuði, sem
getur gerst ansi fljótt á mörgum
heimilum, kostar það 2.990 krón-
ur. Ef bæði fara yfir 60 mínútna
markið, gera það alls 5.980 krónur
fyrir farsímanotkun á mánuði sem
leggst ofan á verð Skemmtipakk-
ans.
Flestir þurfa meira gagnamagn
Nettenging fylgir pakkanum þar
sem fyrstu 20 GB af netnotkun
eru ókeypis. Á nútímaheimilum
hrekkur slíkt gagnamagn skammt.
Sérstaklega þar sem 365, líkt og
mörg önnur fjarskiptafyrirtæki
en ekki öll, er farið að innheimta
fyrir innlenda netnotkun, sem og
allt upp- og niðurhal. Sævar Freyr
Þráinsson, forstjóri 365, sagði í um-
fjöllun DV um mælingu á gagna-
magni í fyrra að aðeins 38 prósent
viðskiptavina 365 noti minna en
þessi 20 GB og fái því netið frítt. 90
prósent viðskiptavina noti 170 GB
eða minna á mánuði. Þannig að
þegar að þessi 20 GB, sem innifalin
eru, klárast kostar það 1.990 krón-
ur á mánuði að bæta við 150 GB
gagnamagni til viðbótar sem leggj-
ast, líkt og farsímanotkunin, ofan á
verð Skemmtipakkans.
En ekki nóg með það. Fleiri þætt-
ir eru nauðsynlegir til að nýta sér
þá þjónustu sem pakkanum fylgir.
Greiða þarf mánaðarlegt aðgangs-
gjald (oft kallað línugjald) til Mílu
sem nemur 2.580 krónum. Hægt er
að leigja beini (e. router) hjá 365 á
590 krónur og þá kostar aðgangur
að Sjónvarpi 365, 1.690 krónur á
mánuði. Síðastnefndi þátturinn er
nauðsynlegur til að eiga möguleika
á áskrift að öllum íslenskum og er-
lendum stöðvum, aðgang að opnu
íslensku sjónvarpsstöðvunum,
tímaflakkinu og aðgang að Skjá-
Bíó svo eitthvað sé nefnt. Er þá ekki
tekið með gjald fyrir myndlykil,
sem fólk getur verið með ýmist frá
Símanum eða Vodafone.
Getur munað heilmiklu
Þegar allt þetta er talið saman,
Skemmtipakkinn og áðurnefnd
aukagjöld, kostar mánuðurinn
hjónin í dæminu alls 19.540
krónur. Mismunurinn á því og aug-
lýstu verði Skemmtipakkans er því
10.250 krónur á mánuði, sem þýð-
ir að hjónin greiða 123.000 krón-
um meira á ári fyrir Skemmtipakk-
ann en ætla mætti út frá auglýsta
verðinu.
Jafnvel þó að þau haldi sig inn-
an gagnamagns á netinu og fari
ekki yfir innifalda farsímanotkun í
mánuði þá kostar Skemmtipakkinn
þau 14.150 krónur, með öllu öðru
framangreindu. Ekki 9.290 eins og
slegið er upp í auglýsingum.
Þess ber þó að geta að þegar til-
boðið er skoðað nánar á heimasíðu
365 eru þessi aukagjöld tilgreind.
Upplýsingar DV eru fengnar bæði
þar og úr reikningi frá viðskiptavini
365 fyrir desembermánuð.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
12 þúsund krónur verða 15
Síminn aftur á móti býður upp á
Heimilispakkann, sem auglýstur
er rækilega á 12 þúsund krónur á
mánuði. Í honum fá viðskiptavinir
aðgang að frelsi og tímaflakki Skjá-
sEins, sjónvarpi Símans, erlendum
stöðum, tónlistarveitunni Spotify
Premium, frítt í sex mánuði, ókeypis
heimasímanotkun innanlands og
óháð kerfi svo eitthvað sé nefnt. Auk
háhraðanettengingar þar sem inni-
falin eru 75 GB af gagnamagni.
Einn veigamesti munurinn á
pökkum Símans og 365 er að farsíma-
áskrift er ekki innifalin í Heimili-
spakka Símans. Ef hjónin í dæmi
okkar hér að framan vildu bæta inn
tveimur sambærilegum farsíma-
áskriftum og eru í tilboði 365 gætu
þau til dæmis valið áskriftarleiðina
Sveigjanlegur – Bestur og fengið 120
mínútur á mánuði, 10 GB í gagna-
magn á 3.990 krónur fyrir hvorn
síma. Alls 7.980 krónur fyrir hjónin
á mánuði sem leggjast myndu ofan á
verð Heimilispakkans.
Á móti kemur hins vegar að þar
fylgir netbeinir þannig að enginn
aukakostnaður leggst á vegna hans.
En það sem þó leggst við verð Heim-
ilispakkans er línugjald, sem getur
verið mismunandi milli þjónustuað-
ila, en er hjá Símanum 2.390 krónur
á mánuði. Annað verð er síðan í
Hvalfjarðarsveit, hjá Tengi á Akureyri
og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
„Við töldum því réttast að láta gjaldið
standa utan við pakkann svo við gæt-
um auglýst þetta hagstæða verð á
pakkanum og haft framsetninguna
eins skýra og hægt er,“ segir Gunn-
hildur Arna Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Símans.
Ef línugjald Símans leggst á 12
þúsund króna pakkann kostar hann
14.390 krónur á mánuði í raun. Eða
28.680 krónum meira á ári, en en
áætla mætti út frá auglýstu verði.
Í áðurnefndri umfjöllun DV um
mælingar fjarskiptafyrirtækja á
gagnamagni í fyrra kom fram í svari
Símans að 75 prósent viðskiptavina
Símans noti undir 75 GB á mánuði.
Þannig liggur fyrir að heldur minni
líkur eru á að hefðbundnir notendur
klári innifalið gagnamagn í Heimili-
spakka Símans en til að mynda þau
20 GB sem innifalin eru hjá 365. En
fari svo er hægt að bæta við auka 150
GB við Heimilispakkann fyrir 1.000
krónur á mánuði. Þá kostar pakkinn
15.390 krónur á mánuði.
Ef við gefum okkur að hjónin í
dæmi okkar vilji halda öllum sínum
fjarskiptaviðskiptum á einum og
sama stað, og bæta við farsíma-
áskriftum sínum líka getur fjar-
skiptareikningur heimilisins því
auðveldlega numið á bilinu 22.370
til 23.370 krónum á mánuði eftir því
hvort þau velji aukið gagnamagn
fyrir netið eður ei.
Þurfa ekki að tilgreina
heildarkostnaðinn
En hvernig komast fjarskiptafyrir-
tæki upp með að auglýsa verð á þjón-
ustuleiðum, án þess að tilgreindir
séu mikilvægir kostnaðarliðir sem
geta hafa umtalsverð áhrif á endan-
legt verð þjónustunnar?
Í lok maí 2012 kvað Neytendastofa
upp úrskurð í máli Nova gegn
samkeppnisaðilanum Símanum
þar sem Nova hafði kvartað undan
auglýsingu Símans á mánaðar verði
ADSL þjónustuleiða fyrirtækisins.
Vildu forsvarsmenn Nova meina
að auglýsingarnar væru villandi,
einmitt vegna þess að þar væri ekki
greint frá mikilvægum kostnað-
arliðum. Í viðbrögðum Símans við
kvörtun Nova segir meðal annars:
„Það væri ekki með skynsamleg-
um hætti hægt að halda því fram að
þau fyrirtæki sem bjóði upp á ADSL
þjónustu þurfi að tiltaka allt það sem
viðskiptavinurinn þurfi að gera til
þess að geta notað þjónustuna enda
verði að ætla að neytendum sé al-
mennt kunnugt um í hverju ADSL
þjónusta felist.“
Niðurstaðan varð að Neytenda-
stofa taldi Símann ekki hafa farið
rangt með mánaðarverð ADSL þjón-
ustuleiðanna þar sem neytendur
gætu ýmist komist hjá því að greiða
þá kostnaðarliði sem Nova tilgreindi
í kvörtun sinni eða keypt búnað, eins
og netbeini, hjá öðrum en Símanum.
Taldi Neytendastofa Símann einnig
hafa gert fullnægjandi ráðstafanir til
að gera upplýsingar um kostnaðar-
liðina aðgengilega á heimasíðu
Símans.
Af þessu má því ráða að fjar-
skiptafyrirtæki þurfa ekki að til-
greina heildarkostnað áskriftarleiða,
þjónustuleiða eða tilboða varðandi
aukabúnað sem telja má nauðsyn-
legan til að nýta sér áðurnefnda
þjónustu. Einfaldlega vegna þess að
hægt sé að nálgast eða eignast þann
búnað með öðrum leiðum eða vegna
þess að upplýst er um þann auka-
kostnað í smáa letri þjónustunnar á
heimasíðum fyrirtækjanna. n
365 – Skemmtipakkinn
Dæmi um áskrift hjóna:
n 6 sjónvarpsstöðvar: Stöð 2, Stöð 3, Bíóstöðin, Krakkastöðin, Gullstöðin, Bravó.
n Maraþon: Hægt að nálgast nýjar og eldri þáttaraðir sem sýndar eru á Stöð 2.
n Ljóshraðanet: Allt að 100mb/s nettenging og 20 GB af gagnamagni.
n Heimasími: 100 mínútur í íslenska heimasíma.
n 365 GSM þrep: 60 mínútur í alla síma innanlands og 10 GB af gagnamagni á 0 kr. f
ylgja.
Ef þú ferð umfram 60 mínútur og upp í allt að 365 mínútur greiðir þú 2.990 krónur.
Auglýst verð samtals: 9.290 krónur á mánuði
Mánaðarleg aukagjöld
n Aðgangsgjald Míla: 2.580 kr.
n Leiga á ZyXEL beini: 590 kr.
n Sjónvarp 365: 1.690 kr.
Samtals Skemmtipakki og aukagjöld, haldi hjónin sig innan uppgefins gagnamagn
s og mínútna: 14.150 kr. á mánuði.
Mismunur á auglýstu verði og raunverði: 4.860 kr. á mánuði, eða 58.320 kr. á ári
.
Ef þau halda sig ekki innan uppgefins lágmarks bætist við:
n Aukið gagnamagn 150 GB: 1.990 kr.
n Tveir GSM-símar fara yfir 60 mín. í notkun: 5.980 kr.
Samtals Skemmtipakki og aukagjöld: 19.540 kr. á mánuði.
Mismunur á auglýstu verði og raunverði: 10.250 kr. á mánuði, eða 123.000 kr. á á
ri.
Síminn – Heimilispakkinn
Dæmi um áskrift hjóna:
n Netið: Allt að 100 Mb/s nettenging, 75 GB
gagnamagn og netbeinir fylgir með.
n SkjárEinn hjá Símanum: Aðgangur að Frelsi og
Tímaflakki SkjásEins.
n Sjónvarp Símans: Sjónvarpsþjónusta Símans.
n Sjónvarp Símans appið:
n 9 Erlendar stöðvar
n Spotify Premium: Frítt í 6 mánuði en 1.490 kr.
á mánuði þar á eftir.
n Endalaus heimasími: 0 kr. í alla síma innan-
lands, óháð kerfi.
n SkjárKrakkar eða Skjárþættir: Valið hvort fylgi með pakkanum.
Auglýst verð samtals: 12.000 krónur á mánuði.
Mánaðarleg aukagjöld
n línugjald Símans: 2.390 kr.
Samtals Heimilispakki og aukagjöld, haldi hjónin sig innan gagnamagns: 14.390 k
r.
Mismunur á auglýstu verði og raunverði: 2.390 kr. á mánuði, eða 28.680 kr. á ári
.
Ef þau halda sig ekki innan uppgefins gagnamagns bætist við:
n Aukið gagnamagn 150GB: 1.000 kr. á mánuði.
Sparnaður? Loforð
365 um tugþúsunda
sparnað á ári á
kannski við sam-
anborið við önnur
fjarskiptafyrirtæki,
en Skemmtipakkinn
er engu að síður
tugþúsundum dýrari
á ári en gefið er upp
í auglýsingu. MyNd SKJá-
SKot aF vEF 365.iS
Línugjaldið ekki með
Í Heimilispakka Símans er
leiga á beini innifalin en
línugjaldi er haldið fyrir utan
verðið vegna þess að það
getur verið mismunandi eftir
staðsetningu. Hjá Símanum
er gjaldið 2.390 krónur sem
leggst á auglýst verð. MyNd
SKJáSKot aF vEF SíMaNS
TOYOTA AVENSIS SOL ←
Fyrsta skráning 12/2010. Ekinn 87 þús. km. Sjálf-
skiptur. Álfelgur. Handfrjáls búnaður. 2ja svæða
tölvustýrð miðstöð og fullt af lúxus. Tveir eigendur
frá upphafi. Ekki fyrrverandi bílaleigubíll. Minnst
ekni og ódýrasti bíllinn á markaðinum í dag.
Okkar verð:
2.840.000 KR.
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
Sérfræðingar í prenthylkjum
Bleksprautuprentari: 16.900 kr.
5 hylkja sett: 3.900 kr.
Mono Laserprentari: 24.900 kr.
Tónerhylki í P1102W prentara: 6.590 kr.
Hagstæðar prentlausnir fyrir heimili og allar
stærðir fyrirtækja - kíktu til okkar og við
finnum réttu lausnina fyrir þig.
Þ
að er flestum ljóst að ástandið
á leigumarkaði á höfuð
borgarsvæðinu er ekki eins
og við viljum hafa það og jafn
framt er staðreyndin sú að
víða um landið, jafnt í minnstu samfé
lögunum sem þeim stærri, er veru legur
skortur á íbúðum til langtímaleigu.
Eitt af stærri verkefnum komandi
vorþings er að halda áfram vinnu að
úrbótum í húsnæðismálum, til að
bæta umhverfi leigumarkaðarins, og
nú þegar hefur félags og húsnæðis
málaráðherra lagt fram fjögur frum
vörp um það efni.
Þessi frumvörp byggja m.a. á yfir
lýsingu ríkisstjórnar Íslands í tengslum
við gerð kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði, frá maí 2015, og vinnu
verkefnisstjórnar um framtíðarskipan
húsnæðismála. Þá hafa frumvörp
in verið unnin í samvinnu við hags
munaaðila, í gegnum samráðsnefnd
um húsnæðismál. Frumvörpin sem nú
eru komin fram eiga það sameiginlegt
að vera ætlað að auka jöfnuð og öryggi
á húsnæðismarkaði, þannig að allir
hafi raunverulegt val um búsetuform
og eigi aðgang að húsnæði á viðráðan
legu verði.
Fyrst má nefna frumvarp um al
mennar íbúðir, sem fjallar um stofn
framlög til húsnæðis á vegum leigufé
laga en umgjörðinni svipar til þess sem
við höfum til þessa þekkt sem félagslegt
leiguhúsnæði. Lögð er til ný umgjörð
um svokallaðar almennar leiguíbúðir
og kveðið á um að þessar íbúðir verði
að hluta fjármagnaðar með stofnfram
lögum úr ríkissjóði og frá sveitarfélög
um. Stofnframlögunum er ætlað að
lækka fjármagnskostnað sem eins og
margir vita hefur orðið baggi á sumum
fyrri verkefnum af þessu tagi. Almennu
íbúðafélögin munu annast kaup eða
byggingu, eignarhald, rekstur og út
hlutun íbúðanna. Félögin geta verið í
eigu ólíkra aðila svo sem sveitarfélaga,
stúdentafélaga, hagsmunafélaga eða
íbúafélaga. Sýnt hefur verið fram á að
möguleiki er á að lækka leiguverð um
allt að 18% með þessu fyrirkomulagi.
Áhersla verður lögð á íbúðir af hóf
legri stærð og að tryggð verði félags
leg blöndun í leiguíbúðunum. Stefnt
er að því að íbúar verði í lægstu tveim
ur tekjufimmtungum þegar flutt er inn
í húsnæðið. Þannig verði tekjulágum
fjölskyldum sem hingað til hafa ekki átt
kost á íbúðum í félagslegu kerfi sveitar
félaganna veittur aðgangur að ódýru
og öruggu leiguhúsnæði. Jafnframt
er horft til þess að þetta fyrirkomulag
standi til lengri tíma og geti tryggt við
varandi uppbyggingu og endurnýjun
leiguhúsnæðis.
Frumvarpi um húsnæðisbætur er
ætlað að lækka húsnæðiskostnað efna
minni leigjenda með greiðslu húsnæð
isbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði.
Þannig verði stuðningurinn við leigj
endur jafnari stuðningi við kaupendur
íbúðarhúsnæðis innan vaxtabótakerf
isins. Frumvarpið er liður í að jafna hús
næðisstuðning hins opinbera við ólík
búsetuform. Helstu breytingar yrðu
að grunnfjárhæðir taki mið af fjölda
heimilismanna óháð aldri. Þá verður
það félags og húsnæðismálaráðherra
sem fer með yfirstjórn húsnæðisbóta
til leigjenda og Tryggingastofnun ríkis
ins fer með framkvæmdina. Þannig
flyst stjórnsýsla og umsýsla með al
mennum húsaleigubótum frá sveitar
félögum til ríkisins. Fram hafa komið
nokkrar áhyggjur af því að leiguverð
muni hækka samhliða breytingum
á húsnæðisbótum. Til mótvægis var
samþykkt á Alþingi í desember síðast
liðnum að lækka fjármagnstekjuskatt
af leigutekjum.
Frumvarpi til húsaleigulaga er ætl
að að auka réttaröryggi leigjenda og
koma á meiri festu í samskiptum leigj
enda og leigusala svo að draga megi
úr líkum á ágreiningi. Sett eru fram
skýrari fyrirmæli en áður um hvern
ig samskiptum leigusala og leigjanda
skuli háttað. Lögð eru til ákvæði um
fullnægjandi brunavarnir og ástand
leiguhúsnæðis. Stuðlað er að gerð
ótímabundinna leigusamninga. Lögð
eru til ítarlegri ákvæði en áður um
eftirlit ráðherra með starfsemi leigu
miðlara.
Frumvarpi um húsnæðissam
vinnufélög er ætlað að auðvelda star
frækslu slíkra félaga á Íslandi, að auka
vernd búseturéttarhafa, skýra og
styrkja réttarstöðu þeirra, jafnframt
að skýra réttarstöðu annarra félags
manna sem og húsnæðissamvinnu
félaganna sjálfra. Einnig er frumvarp
inu ætlað að stuðla að sjálfbærum
rekstri slíkra félaga. Lagt er til að ná
kvæmari ákvæði verði í samþykktum
um fjármál þeirra og að óheimilt verði
að kveða á um kaupskyldu á búsetu
rétti. Nú þegar eru öll þessi frum
vörp komin í umsagnarferli á vegum
velferðarnefndar Alþingis. Í næstu
viku koma umsagnaraðilar á fund
nefndarinnar og stefnt er að því að
afgreiða þessi húsnæðismál sem lög
frá Alþingi sem allra fyrst. Óhætt er
að segja að mikið samráð hefur verið
haft við vinnuna. Þannig þekkja þeir
sem starfa á þessum markaði vel til
væntanlegra breytinga og því má ætla
að þegar frumvörpin verða að lögum,
skili umbætur á húsnæðismarkaði sér
fljótt og vel. n
Hvað er að breytast í húsnæðismálum?
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ön
nu
n
Hringdu í síma 581 3730
Nánari upplýsingar á jsb.is
Staðurinn - Ræktin
G i l d i r t i l 2 1 . m a í 2 0 1 6
39.900 kr.er komið!
Vetrarkortið
Mótun BM, Fit Form 60+, TT, Fjölþjálfun og Hlýtt Yoga
Innritun stendur yfir á eftirtalin námskeið:
Líneik Anna Sævarsdóttir
Alþingismaður Framsóknarflokks
Kjallari