Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Qupperneq 20
Helgarblað 8–11. janúar 20162 Leikur að læra - Kynningarblað
JSB – Dans og
líkamsrækt fyrir alla
S
tarfsemi JSB, Lágmúla 9,
er tvískipt, annars vegar
er um að ræða Danslista-
skólann og hins vegar JSB
líkamsrækt. Í heildina er
starfsemin afskaplega fjölbreytt
og aldurshópur viðskiptavina að
sama sama skapi breiður. Starfsemi
Danslistaskólans skiptist í þrennt:
„Í fyrsta lagi er listdansbraut
sem metin er til stúdentsprófs og
nemendurnir eru frá 16 ára aldri.
Einnig erum við með grunnstig á
listdansbraut sem er fyrir nemend-
ur frá 12 ára aldri. Þetta er allt inni
í menntakerfinu. Margir af fyrrver-
andi nemendum okkar eru í list-
dansnámi í Listaháskólanum og
sambærilegum skólum erlendis.
Það er dansandi JSB-lið úti um allt
Ísland og út um allan heim,“ seg-
ir Þórdís Schram hjá JSB. En Dans-
listaskólinn er ekki bara fyrir verð-
andi atvinnudansara, öðru nær:
„Innan Danslistaskólans erum
við líka með Jassballettskólann sem
er bara almennt jassballettnám
fyrir nemendur frá 3 ára og upp í
tvítugt. Þetta er í raun tómstunda-
starf fyrir börn og ungmenni.
Krakkarnir geta valið um að vera
frá tvisvar upp í fjórum sinnum í
viku. Aðalmarkmiðið er að hafa
gaman og virkja dansgleðina í sér.
Það eru ekki tekin próf og ekki verið
að dæma fólkið eins og á listnáms-
brautinni. Æfingaálagið er síðan
auðvitað minna en á listdansbraut-
inni þar sem krakkarnir eru að æfa
15–20 tíma á viku.“
Að sögn Þórdísar eru líka strákar
í Danslistaskólanum en þó í mikl-
um minnihluta. Eru það allt drengir
sem eru upprennandi dansarar.
Þriðji hlutinn af Danslistaskól-
anum er síðan Dansstúdíó, sem
er öllum opið og er fyrir alls konar
fólk, 16 ára og eldri.
„Þetta hentar þeim sem döns-
uðu einu sinni eða þá sem hafa
alltaf látið sig dreyma um að dansa,
eða fyrir alls konar sviðslistafólk
sem vill bæta við sig dansþekkingu.
Þetta er opið öllum óháð aldri (yfir
16 ára) og getu. Það er fólk upp í
fimmtugt sem kemur í Dansstúdíó-
ið,“ segir Þórdís.
JSB líkamsrækt: Konur frá 16
ára og upp að níræðisaldri
„Það eina sem tengir líkamsræktar-
stöðina við dansinn er sú staðreynd
að flestir líkamsræktarkennararn-
ir eru með dansbakgrunn“ segir
Þórdís en JSB rekur umfangsmikla,
fjölbreytta og kraftmikla líkams-
ræktarstöð sem er eingöngu opin
konum.
„Við erum með yfir 100 tíma á
töflu og við leggjum mikið upp úr
hóptímum þar sem er þjálfari inni í
sal með fólki,“ segir Þórdís. Tímarn-
ir einkennast af mikilli hvatningu
og góðri stemningu. Hóparnir eru
jafnframt mjög fjölbreyttir:
„Við erum búin að setja upp nýtt
æfingakerfi sem heitir JSB 1-2-3
sem samanstendur af 30 mínútna
tímum. Hugmyndin er sú að þú
getur alltaf mætt í ræktina, líka þó
að klukkan sé hálf átta eða átta. Við
byrjum alltaf nýjan tíma á hálftíma
fresti.“
Sem dæmi um fjölbreytnina
þá eru annars vegar í gangi lífs-
stílsnámskeið fyrir konur frá 16
ára aldri sem eru í yfirvigt eða vilja
breyta ímynd sinni og bæta sjálfs-
traust, læra að borða rétt og svo
framvegis; og hins vegar lokaðir
hópar fyrir eldri konur.
„Við erum mjög upptekin af
því að kenna fólki að borða rétt
til frambúðar því þetta er engin
skyndilausn. Þetta snýst um lífs-
stílsbreytingu og að vera í góðu
formi,“ segir Þórdís, en varðandi
eldri konurnar segir hún:
„Við erum með konur hérna sem
eru að nálgast níræðisaldurinn,
sem eru búnar að vera frá opnun
fyrirtækisins. Þannig að þetta eru
margar kynslóðir sem æfa hérna.“
Það segir sitt um fjölbreytni starf-
semi JSB og fjölbreyttan hóp þeirra
sem þangað sækja sér danskennslu
og líkamsrækt að yngsu dansnem-
endurnir eru þriggja ára og elstu
konurnar í líkamsræktarhópum
eru um áttrætt.
Fjölbreyttar upplýsingar um bæði
JSB líkamsrækt og Danslistaskólann
má fá á vefsíðu fyrirtækisins. n
Þórdís Schram
myndir Þormar Vignir gunnarSSon