Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Síða 29
Helgarblað 8–11. janúar 2016 Kynningarblað - Leikur að læra 11
Ökuskólinn í Mjódd: Löng
reynsla og víðtæk starfsemi
Ö
kuskólinn í Mjódd rekur
uppruna sinn til Ökuskóla
Ökukennarafélags Íslands
sem stofnaður var árið
1967 í aðdraganda að upp-
töku hægri umferðar hér á landi
árið 1968. Skólinn hefur verið til
í þessari mynd frá árinu 1999 og
er sá staður þar sem einna mest
reynsla og þekking í ökukennslu
hefur safnast saman.
„Við erum mjög vel tækjum
búnir og erum til dæmis eini öku-
skólinn á landinu sem notar öku-
hermi við kennsluna. Við notum
hann við kennslu á sérstökum
áhersluatriðum, eins og til dæmis
akstri í myrkri, og reynum að nota
hann til að innræta fólki hve langa
vegalend þurfi til að stöðva bíl-
inn enda verða meira en 30% af
umferðaróhöppum hér á landi
vegna þess að menn vanreikna
vegalengdina sem þeir þurfa til
að stoppa bílinn og aka því aft-
an á næsta bíl,“ segir Guðbrandur
Bogason, starfsmaður Ökuskólans í
Mjódd. Starfsmenn skólans eru alls
20 og segir Guðbrandur skólann
kappkosta að veita sem mest gæði
í kennslu og gera nemendur sína
meðvitaða um þá ábyrgð sem fylgir
því að stýra ökutæki.
„Ef þú ferð ekki rétt með þá
heimild sem ökuskírteinið færir
þér þá getur þú skaðað fjölda fólks.
Þetta er mikið ábyrgðarhlutverk,“
segir Guðbrandur.
Hann segir að Ökuskólinn í
Mjódd hafi verið frumkvöðull í
mörgum þáttum ökunáms:
„Grunnstarfsemin byggist á
ökukennslu til unglinga sem eru
að taka bílpróf en síðan höfum við
verið með bifhjólanámskeið fyrir
stór bifhjól og við erum með nám-
skeið til aukinna ökuréttinda, þ.e.
meiraprófs. Þar vorum við frum-
kvöðlar þegar sú starfsemi fluttist
frá ríkinu, en meiraprófið var ein-
okað af ríkinu fram til ársins 1992.
Eftir það erum við sá skóli sem
helst byggir upp kennslu til meira-
prófs,“ segir Guðbrandur.
Auk meiraprófs býður Öku-
skólinn í Mjódd upp á námskeið
fyrir leigubílstjóra í afleysingum
sem tryggja þeim nauðsynleg
réttindi og einnig eru í boði leyfis-
hafanámskeið fyrir þá sem vilja
gera út leigubíla.
Í náinni framtíð verður krafist sí-
menntunar af þeim sem aka fólks-
flutninga- og vörubílum og hyggst
Ökuskólinn í Mjódd bjóða þeim
kennslu sem þurfa á slíkum nám-
skeiðum að halda. n
Eini ökuskólinn sem notar ökuhermi – meirapróf og fleiri leyfispróf
myndir Þormar Vignir gunnarsson
www.bilprof.is
s. 567 0300