Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Blaðsíða 30
Helgarblað 8–11. janúar 201612 Leikur að læra - Kynningarblað
Tækniskólinn: Vefþróun
og Margmiðlunarskólinn
T
ækniskólinn er regnhlíf
yfir fjölbreytt nám á hin-
um ýmsu sviðum og undir
Tækniakademíu skólans er
meðal annars að finna tvær
eftirsóttar og framsæknar brautir,
Vefþróun og Margmiðlunarskólann.
Eftirsóttir starfskraftar útskrif-
ast frá Vefþróun Tækniskólans
Vefþróun er glæný námsbraut und-
ir Tækniakademíu Tækniskólans
sem tók til starfa síðastliðið haust.
Á þessari braut útskrifast nemendur
með menntun og þekkingu sem mik-
il þörf er fyrir í atvinnulífinu, enda er
vefiðnaðurinn sívaxandi hér á landi
sem og annars staðar í heiminum.
Jónatan Arnar Örlygsson er verk-
efnastjóri yfir námi í vefþróun:
“Nemendur fá kennslu á breiðu
sviði, allt sem kemur að þróun vef-
lausna. Nemendur fá kennslu í
vefforritun og er áhersla lögð á
framendaforritun, öllu því sem er
sýnilegt notendum. Við erum t.d.
með kúrsa í vefhönnun, notenda-
upplifun, frumkvöðlafræði og ver-
kefnastjórnun. Allt gagnast þetta
við gerð vefsíðna, vef-appa og hvers
konar útgáfur af því sem við eig-
um í gagnvirkum tengslum við á
internetinu í dag. Við förum djúpt í
þessa þætti á meðan tölvunarfræðin
í Háskólum hér á landi tæklar stærra
svið, við erum sérhæfðari á þessu
sviði. Við útskrifum góða framenda-
forritara sem hafa gott auga fyrir út-
liti,“ segir Jónatan.
SP: Þetta hljómar sem mjög
hagnýtt nám?
„Já, við erum að útskrifa fólk sem
mikil þörf er fyrir á vinnumarkaðn-
um. Það átti sér líka stað heilmik-
il samvinna við atvinnulífið þegar
verið var að þróa þessa námsbraut
og semja námskrána og þetta er lag-
að mjög að þörfum atvinnulífsins.
Auk þess eru nokkrar af stærstu vef-
stofum landsins í nánu samstarfi,
reynsluboltar í faginu taka þátt í
náminu með kennslu og áhugaverð-
um fyrirlestrum. Námið er fjórar
annir eða tvö ár og geta góðir nem-
endur sem útskrifast héðan geng-
ið beint inn í fjölbreytt störf. Engu
að síður gefst þeim einnig kostur
á frekara námi þar sem við erum
í samstarfi við mjög góðan skóla í
Kaupmannahöfn, þangað geta nem-
endur frá okkur farið, bætt við sig
einu og hálfu ári og fengið fullgilda
háskólagráðu, Bachelor.“
Aðsókn á haustönnina var mjög
góð og komust færri að en vildu.
Jónatan segir að ein sérstaða þessa
náms sé einnig sú að kennt sé í litl-
um hópum:
„Það er náin samvinna í þessum
hópum og nemendur hafa mjög gott
aðgengi að kennurum sem sinna
hverjum og einum mjög vel.“
Stúdentspróf er almennt inn-
tökuskilyrði inn í Vefþróun en þó
eru gerðar undantekningar ef mik-
il reynsla í faginu er til staðar. Opn-
að verður fyrir umsóknir á haustönn
fyrir lok marsmánaðar. Nánari upp-
lýsingar um námið og umsóknir eru
á vefnum vefskoli.is.
Nemendur hafa starfað við
kvikmyndir Baltasars Kormáks
og hjá leikjafyrirtækinu CCP
Nám í Margmiðlunarskólanum
hentar þeim sem hafa áhuga á þrí-
víddarvinnslu, tæknibrellum fyr-
ir kvikmyndir, tölvuleikjagerð og
teiknimyndagerð. Allt þetta er hluti
náms í margmiðlun. Í náminu er lögð
mikil áhersla á hugmyndavinnu,
frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Skólinn leggur áherslu á að útskrifa
nemendur með frjóa hugsun og vilja
til að fara nýjar leiðir.
„Við förum síðan almennt mjög
djúpt í alla þrívíddargerð en það
er þekking sem nýtist í mjög margt
annað en kvikmyndir og leiki, til
dæmis í arkitektúr,“ segir Halldór
Bragason, verkefnastjóri Margmið-
lunarskólans. Dæmi um starfssvið
nemenda sem útskrifast úr Marg-
miðlunarskólanum eru tæknibrellur
í kvikmyndum eins og Gravity, Ever-
est og Guardians of the Galaxy. Flest
leikjafyrirtæki á landinu hafa á sín-
um snærum útskrifaða nemendur úr
Margmiðlunarskólanum, fyrirtæki
eins og CCP og Sólfar.
„Senur úr kvikmyndunum Two
Guns og Djúpinu voru líka tekn-
ar upp í Green Screen-stúdíóinu
hérna. Veggirnir eru í neongrænum
lit sem er síaður út fyrir þann bak-
grunn sem leikararnir eru settir í en
hann getur verið hvort sem er tölvu-
gerður eða myndskeið,“ segir Hall-
dór
Nám í Margmiðlunarskólanum
tekur tvö ár og útskrifast nemend-
ur með diplóma. Möguleiki er á að
taka viðbótarár við erlenda háskóla
til BA-gráðu.
„Fyrsta önnin er grunnur en eft-
ir það þróum við þannig umhverfi
að nemandinn geti tamið sér sjálf-
stæð vinnubrögð. Þetta er heimur
þar sem er afskaplega hröð þróun
og krefst stöðugrar símenntunar og
við þjálfum nemendur í því að temja
sér þann hugsunarhátt að halda sí-
fellt áfram að læra.“
Margmiðlunarskólinn er ein af
mörgum áhugaverðum námsbraut-
um og skólum sem eru undir regn-
hlíf Tækniskólans. Skólinn á sér
hins vegar dýpri rætur en hann var
stofnaður fyrir aldamótin síðustu og
var einkaskóli fyrst um sinn. Nám í
Margmiðlunarskólanum fer núna
fram í gamla Sjómannaskólahús-
inu, húsi Tækniskólans á Háteigs-
vegi.
Nánari upplýsingar um námið
og umsóknir er að finna á vefsvæði
skólans og hjá Ragnhildi Guðjóns-
dóttur í síma 514 9601 eða í gegnum
netfangið rag@tskoli.is. n
Spennandi og hagnýtt nám í Tækniakademíu Tækniskólans
Hagnýtt nám
Gestakennari frá KEA í
Kaupmannahöfn ásamt
nemendum í vefþróun.
Green Screen-herbergið