Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Qupperneq 34
22 Skrýtið Sakamál Helgarblað 8.–11. janúar 2016 Í rúman áratug hefur lögreglan í Victoria í Ástralíu klórað sér í höfðinu vegna morðsins á Mich- ael Griffey, auðugum viðskipta- jöfri. Hann naut ávaxta vinnu sinnar, bjó í glæsihúsi, hafði sund- laug í garðinum og tennisvöll og gömul Monaro-bifreið, sem hann hafði mikið dálæti á, stóð í bílskúrn- um. En á gamlárskvöld, 2005, var hann sendur yfir móðuna miklu á heimili fjölskyldunnar í Pakenham- úthverfinu í Melbourne. Barinn til dauðs Mikil nýársteiti var haldin á heimili hans og það var ekki fyrr en nokkrum dögum síðar sem dóttir hans og eig- inkona, sem þá var flutt frá Griffey, fundu lík hans í bílskúrnum. Hann hafði verið barinn til dauðs. Líkið var vafið inn í röndótta ábreiðu og falið á bak við segldúk í bílskúrnum. Sá sem hafði ver- ið þarna að verki hafði hirt veski Griffeys, farsíma og einhverra hluta vegna rifið tvær síður úr dagbók hans. Búið var að stela andvirði 1.000 Bandaríkjadala úr öryggishólfi sem aðeins þrjár manneskjur þekktu kóða að. Griffey var tvílíftryggður fyrir samtals 1,54 milljónir dala – sem við dauða hans rynnu til eigin- konunnar brottfluttu, Diane. Þau grunuðu Eins og oft vill verða beindust sjónir lögreglunnar fyrst að eiginkonunni, enda miklir fjármunir í húfi fyrir hana. Það var þó ekki fyrr en 2007 sem Diane var ákærð fyrir morðið. Við upphaf rannsóknar hafði hún sagt að líkið hefði verið vafið inn í röndótta ábreiðu og legið á bak við segldúk, en lögregla sá ekkert sem benti til að það hefði verið sýnilegt þar sem það lá í hvarfi við segldúk- inn, og velti því hugsanlega fyrir sér hvers vegna Diane sá ástæðu til að snuðra þar. Einnig höfðu verið send smá- skilaboð úr síma Michaels í síma Di- ane daginn sem hann var myrtur. En sökum skorts á sönnunargögnum voru kærur á hendur Diane felldar niður áður en til dómstóla kom. Þá beindi lögreglan sjónum sínum að syni Michaels, Kenny kappakstursmanni. Hann sór af sér alla aðild og var ekki rannsakaður frekar. Málið tók óvænta stefnu þegar Cassandra, dóttir Michaels, játaði, öllum að óvörum, að hafa banað föð- ur sínum. Eftir nánari skoðun komst lögreglan þó að þeirri niðurstöðu að frásögn Cassöndru væri ekki trú- verðug og hún var ekki ákærð. Fjárhagsörðugleikar og hjákonur Michael Griffey hafði átt flutninga- fyrirtæki og komst lögreglan að því að þar var allt í miklum ólestri; skattaskuld nam um einni milljón dala árið 2008 auk þess sem skuld við ýmsa lánardrottna nam yfir 100.000 dölum. Michael hafði átt hjákonu í fimm ár og að sögn þeirra sem til þekktu var hann enginn nýgræðingur í slík- um efnum. Besti vinur hans upp- lýsti að Michael hefði haft áhyggjur af fjárhagslegum gjörningum Diane og að hann hefði veitt henni tiltal vegna gúmmítékka, sem svo voru kallaðir, sem hún ítrekað gaf út. Michael mun, eins kaldhæðn- islegt og það hljómar, hafa flimtað með að hann væri eiginkonu sinni meira virði liðinn en lífs. Hvað sem þessu öllu og hjóna- bandsörðugleikum leið þá vermdu Michael og Diane iðulega sömu rekkju. Fátt var um fína drætti í rann- sókn lögreglu og undir lok ársins 2015 báðu hún og ættingjar Micha- els alla sem hugsanlega byggju yfir vitneskju um morðið að hafa sam- band. Að sögn lögreglunnar eru „nokkrir“ aðilar áhugaverðir hvað rannsóknina varðar og sagði rann- sóknarlögreglumaðurinn Martin Robertson meðal annars: „Skila- boð mín til þess eða þeirra sem bera ábyrgð á þessum glæp eru að gefa sig fram; léttu af þér þeirri byrði sem hefur sligað þig síðastliðin 10 ár og byrjaðu upp á nýtt.“ Þess má geta að systir Michaels, Katrina, telur sig vita hver varð hon- um að bana en ekki fylgir sögunni um hvern er að ræða; skortur á sönnunargögnum sé henni til mik- illar skapraunar – en ekki hvað? Þannig er nú það. n Grimmdarverk á Gamlárskvöld n Griffey var myrtur á gamlárskvöld fyrir tíu árum n Morðinginn leikur enn lausum hala„Léttu af þér þeirri byrði sem hefur sligað þig síðastliðin 10 ár og byrjaðu upp á nýtt. Michael Griffey Var sendur inn í eilífðina á gamlárskvöld 2005. Móðir og dóttir Diane var grunuð, Cassandra játaði en var ekki trúað. Göldrótt súpa og gómsætur humar Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550 info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.