Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2016, Page 46
34 Lífsstíll Helgarblað 8.–11. janúar 2016
Fæst í apótekum um land allt, Hagkaup og Fjarðarkaup
JÁ!! LÚSIN ER KOMIN...
...sagði enginn, aldrei.
Fyrirbyggjandi vörurnar
frá Dr. Fischer eru
frábær félagi í baráttu
þinni við lúsina.
Vörurnar innihalda olíu-
kjarna úr rósmarín og
Tea Tree, sem lúsinni er
mjög illa við. Með réttri
meðferð og notkun þá er
baráttan við lúsina leikur
einn.
Leyfðu okkur að hjálpa.
Er veganúar fyrir þig?
n Treystir þú þér til að sneiða hjá dýraafurðum í heilan mánuð? n Passa verður upp á B12-vítamín
N
ú þegar jólahátíðin er yfir
staðin og fólk búið að
borða yfir sig af alls konar
kræsingum, þá leita margir
leiða til að hefja nýtt ár
á hollari nótum. Veganúar eða
veganjanúar er ein sú leiða, sem
er líklega hvað mest krefjandi, sér
staklega fyrir þá sem vanir eru að
borða kjöt, fisk og aðrar dýraafurð
ir. En eins og nafnið gefur til kynna,
þá snýst veganúar um að sneiða hjá
öllum dýraafurðum í janúar. Það er
svo að sjálfsögðu undir hverjum og
einum komið hvort veganlífsstíln
um er haldið áfram. En að prófa í
mánuð er líklega ágætis byrjun.
Það eru samtök grænmetisæta á
Íslandi sem standa á bak við átak
ið en markmiðið er að vekja fólk til
umhugsunar um áhrif neyslu dýra
afurða og kynna kosti veganfæðu
fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd.
Í fyrstu hljómar veganúar eins
og hin fullkomna leið að heilbrigðu
og hollu mataræði, en þegar betur
er að gáð þarftu alls ekki að borða
hollt til að uppfylla þau skilyrði
að vera „vegan“. Ætlir þú þér hins
vegar að fá öll þau næringarefni og
vítamín sem líkaminn þarfnast þá
er nauðsynlegt að huga vel að því
hvernig máltíðirnar eru samsettar.
Prótein og flest vítamín er hægt
að fá úr hollri veganfæðu. Prótein
fæst til dæmis úr ýmsum baunum
og hnetum, tófú, kínóa, grænkáli,
spínati, avókadó og ýmsu fleiru.
Járn fæst til úr sojabaunum, linsu
baunum, mólassa, nýrnabaun
um og fleiru. Þá er einnig hægt að
fá ýmsar matvörur með viðbættu
járni.
Það eina sem „vegans“ geta ekki
fengið náttúrulega úr því sem þeir
borða er B12vítamín. Það fæst ein
göngu úr dýraafurðum. Þeir sem
aðhyllast veganmataræði þurfa því
að passa að taka inn B12fæðubót
ásamt því að borða fæðu sem inni
heldur viðbætt B12vítamín.
Hægt er að kynna sér veganúar
betur á veganuar.is. n
Ýmis vegan-
matvæli
Borðar þú vegan án þess
að vita það?
Hér eru ýmis matvæli sem við flest
neytum eflaust án þess að gera okkur
grein fyrir því að þau eru vegan:
n Þurrkað pasta
n Bakaðar baunir
n Flest brauð
n Hnetusmjör
n Tómatsósa
n Sinnep
n Sterk sósa (tabasco og siracha)
n Hrísgrjón
n Hrísgrjónanúðlur
n Sulta (með pektíni í stað gelatíns)
n Hummus
n Franskar kartöflur (steiktar upp úr
grænmetisolíu)
n Hafragrautur
n Beyglur
Ótrúlegt en satt
Óhollusta eins og hún
gerist best
Það gæti komið þér sérstaklega á óvart
að þessi matvæli, kex og sælgæti,
teljast til vegan:
n Oreo kex (bæði venjulegt og ljóst)
n Doritos-flögur (Chilli og létt saltaðar)
n Walkers-flögur (ýmsar gerðir)
n Pringles (venjulegt, beikon og BBQ)
n Ritz-kex
n Hobnobs-kex (venjulegt)
n Kettle-flögur (ýmsar gerðir)
n Ritter Sport-súkkulaði (dökkt og
extra dökkt)
n Skittles
Vegan bjór
Það er alveg óþarfi að sleppa
áfenginu
Þú þarft ekki einu sinni að hætta að
drekka bjór til að gerast vegan. Hér eru
nokkrar bjórtegundir sem þér er óhætt
að drekka þó að þú takir þátt í veganúar:
n Heineken
n Carlsberg
n Amstel
n Peroni
n Budwiser
n Corona
Grænmeti Það er
nauðsynlegt að borða
fjölbreytt grænmeti
þegar maður aðhyllist
vegan-lífsstíl.