Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Qupperneq 8
8 Fréttir Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016
Ósáttur við vanefndir
A
nnar aðstandi bílaþáttarins
Kíkt í skúrinn hefur leitað
til innheimtufyrirtækis
vegna vanefnda sjónvarps-
stöðvarinnar Hringbrautar
á launagreiðslum. Í viðtali við DV
segir Viðar Freyr Guðmundsson að
frá upphafi hafi gengið bagalega að
fá laun greidd. Hann hefur lagt bann
við því að þættirnir verði endursýnd-
ir á stöðinni. „Það er sárt að vera
svikinn, en sárara þegar vinir svíkja
mann,“ segir Viðar í yfirlýsingu á
Facebook-síðu þáttarins. „Stefnum á
að gera upp vanefndir fyrir lok apríl,“
segir Guðmundur Örn Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Hringbrautar, í
skriflegu svari til DV.
Vanefndir varðandi sýningarrétt
Þátturinn Kíkt í skúrinn, sem fjallar
um bílaáhuga landsmanna og allt
því tengdu, hefur þrátt fyrir nokkrar
vinsældir birst stopult á skjáum
landsmanna. Þær skýringar hafa
verið gefnar að um tæknilega örðug-
leika sé að ræða en annar aðstand-
enda þáttarins, Viðar Freyr, vísar því
á bug og segir farir sínar ekki sléttar
af samskiptum sínum við Hring-
braut. „Það er fjarri sanni að það
hafi verið tæknilegar ástæður fyrir
fjarveru þáttanna,“ segir Viðar Freyr
í yfirlýsingu sem birtist á Facebook-
síðu þáttanna. „Hið sanna er að að
það hafa verið vanefndir með að
greiða fyrir sýningarréttinn af hálfu
Hringbrautar og því hafa framleið-
endur ekki viljað skila inn þáttunum
fyrr en greiðslur bærust,“ segir Við-
ar Freyr. Að hans sögn hefur hann
farið fram á að bann verði lagt við
að stöðin sýni þættina vegna van-
efnda. „Það er fullreynt að semja við
stöðina og ekkert nema innantóm
loforð sem þaðan koma, þegar nokk-
ur svör berast þaðan yfirhöfuð,“ seg-
ir Viðar og skorar á alla þá sem eiga
viðskipti við Hringbraut að gæta sín
og helst afhenda þeim ekkert nema
gegn fyrir framgreiðslu.
Vanefndir gerðar upp í lok apríl
Guðmundur Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Hringbraut-
ar, kannaðist við málið og í skrif-
legu svari til DV heitir hann bót og
betrun. „Viðkomandi er tökumað-
ur og sá um samsetningu þáttarins.
Framleiðandi þáttarins, Jóhannes
Bachmann, hætti nýverið samstarfi
við tökumanninn og tók upp sam-
starf við annan tökumann sem olli
viðkomandi miklum vonbrigðum,“
segir Guðmundur.
Að hans sögn hefur Hringbraut
þegar greitt þrjár milljónir króna
vegna þáttanna en eftirstöðv-
ar vegna þeirra eru 600 þúsund
krónur, sú skuld er komin fram yfir
gjalddaga. „Tekjur í desember og
janúar hafa verið undir áætlun og
því hafa greiðslur til nokkurra að-
ila tafist. Við sjáum að febrúar og
mars líta vel út auglýsingalega séð
og stefnum við á að gera upp van-
efndir fyrir lok aprílmánaðar,“ segir
Guðmundur.
Sakar framkvæmdastjóra um lygi
Viðar Freyr er afar ósáttur við þessar
útskýringar Guðmundar þegar þær
eru bornar undir hann. „Þetta er al-
gjör útúrsnúningur, ég er fyrst að
heyra það núna að það sé einhver
annar tökumaður, þannig að það eitt
gerir þetta að lygi,“ segir Viðar Freyr.
„Að tilgreina mig sem „tökumann“ er
þeirra leið til að þykjast eiga þættina
og gefa í skyn að ég sé einhver starfs-
maður á plani. Langmestur hluti
vinnunnar við að framleiða þættina
var á minni könnu, auk tækjakostn-
aðar, sem er ekki lítill í svona vinnu.
Einnig mikil vinna við að kynna
þættina með því til dæmis að halda
úti Facebook-síðu þáttarins. Þessu til
sönnunar vísa ég einfaldlega í kredit-
listann sem birtist í lok hvers þáttar.
Þar stendur skýrt að framleiðandi sé
vidarfreyr.is,“ segir Viðar Freyr.
Hann segir að það sé sér að
meinalausu þó að Jóhannes fari að
gera þátt með einhverjum öðrum
en það verði þá undir öðru nafni
eða vörumerki en því sem hann tók
mikinn þátt í að skapa. „Ég sætti mig
heldur ekki við að þættirnir mínir
séu endursýndir eins og þá lystir.
Sérstaklega ekki þegar ekki er búið
að borga fyrir sýningarréttinn að
frumsýningu þeirra allra, hvað þá
fyrir þessar endursýningar,“ segir
Viðar Freyr.
Fjölbreyttar afsakanir
„Það er búið að vera vesen frá fyrsta
degi að fá greitt. Yfirleitt berst aðeins
hluti launanna og mjög oft er lofað
að greiðsla berist á morgun og svo
heyrist ekkert í nokkrar vikur,“ segir
Viðar Freyr. Hann segir að afsak-
anirnar séu yfirleitt keimlíkar. „Ég
er búinn að heyra að sumarið hafi
verið erfitt og þá var þátturinn settur
í sumarfrí. Eitthvert bókhaldsklúður
varð í haust og svo var The Voice-
tímabilið erfitt í tengslum við aug-
lýsingasölu,“ segir Viðar. Þá hafi hon-
um verðið tilkynnt að jólasalan hafi
verið undir væntingum. Hann er því
eðlilega efins um mögulegar efndir
Hringbrautar. „Ég er búinn að hafa
samband við innheimtufyrirtæki og
hef heimildir fyrir því að fleiri séu í
svipaðri stöðu og ég varðandi launa-
greiðslur,“ segir Viðar Freyr. n
„Það er sárt að vera svikinn, en sárara þegar vinir svíkja mann,“ segir aðstandandi bílaþáttar á Hringbraut
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Þegar allt lék í lyndi Viðar Freyr Guðmundsson og Jóhannes Bachmann við tökur
þáttanna Kíkt í skúrinn.
„Stefnum
á að gera
upp vanefndir
fyrir lok apríl
Guðmundur Örn
Jóhannesson
Framkvæmda-
stjóri Hringbrautar.
„Það er
búið að
vera vesen frá
fyrsta degi að
fá greitt
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...
ÚTSALA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Revestimiento
Ace Negro 33,3x100 cm
Ace Blanco 33,3x100 cm
Pavimento
Crystal Floor White 33,3x33,3 cm
Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm
Verðdæmi: Harðparket eikarplanki 8mm kr. 1990.- m2
Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3990.- m2
Teppi og dúkar 25-70% afsláttur
WC innb. kassi/skál/seta kr. 39.700
Þúsundir fermetra af flísum með
20%-70% afslætti