Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Qupperneq 21
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016 Umræða 21 Uppáfindíngarleysið En við vorum að tala um ketti og hunda. Halldór Laxness var hunda- maður eins og flestir vita, og það sama sumar frægar persónur úr bókum hans, eins og Bjartur í Sumarhúsum. Það er samt í bókinni um Bjart, Sjálf- stætt fólk, sem er ein af mínum upp- áhalds kattafrásögnum í íslenskum bókmenntum. Það var eftir „reimleik- ana“ í fjárhúsum Bjarts, sem hann hélt fyrst vera rottugang og fór á bæi að ná sér í fresskött; „má vera grimmur.“ Það fer svo á bænum að kötturinn vill helst hvergi vera nema í horninu hjá ömmu gömlu, Hallberu, og það jafnt þótt hún eigi aldrei hlýlegt orð handa kettinum, og velji honum aldrei önn- ur sæmdarheiti en grey, garmur, skarn eða skratti. En kötturinn kærir sig koll- óttan um það, því eins og höfundur- inn segir, af innsýn sinni í sálarlíf manna og dýra, þá kunni kötturinn að meta höfuðkost ellinnar, sem er upp- áfindíngarleysið. Þveröfug tjáning Eins og fólk veit þá hafa hundar og kettir mjög ólíkt, eða eiginlega gagn- stætt, táknmál að ýmsu leyti; þegar hundar dilla skottinu eru þeir glaðir, en þegar kettir gera slíkt hið sama eru þeir í árásarhug; að sama skapi hefur þveröfuga merkingu að horfast í augu við hunda eða ketti. Þetta er með- al annars ástæðan fyrir því að allt vill fara í hund og kött þegar þessi dýr hittast. Samt eru mörg dæmi um að hundur og köttur þrífist saman, og þá byggir það algerlega á því að hund- urinn upplifi sig sem lægra settan en köttinn. Hundar eru hópdýr, og verða að vita stöðu sína í goggunarröðinni til þess að þeim líði vel, og þeim líður ekkert illa með það að vera lágt settir, það veitir þeim bara öryggistilfinn- ingu að vera neðstir í röðinni, og það jafnt þótt einstaklingar af tegundum eins og menn eða kettir séu ofar. Hafi hundur hins vegar þá hugmynd að hann sé skipaður hærra en köttur, þá byrja vandræðin; köttur getur aldrei sætt sig við að hundur ætli að ráðskast með hann; þá setur hann út klær og hvæsir og veinar. Mælamaðurinn Þar sem ég er alinn upp við ketti þá misskil ég stundum í fljótu bragði at- ferli hunda, og það þótt sé um að ræða þá miklu ljúflinga sem vinir mínir eiga. Einn vinur minn bjó utan borgar marka og hafði þar risastóran úlfhund, þýskan schaefer. Jafnan þegar ég renndi í hlað kom sjefferinn æðandi til mín með miklum gleðis- lætti sem í fljótu bragði fyrir katta- mann gat virst dálítið skerí. Eigandinn sagði stoltur: „Ef einhverjir ætluðu að koma hingað með innbrot eða annað vesen í huga, myndu þeir hugsa sig um tvisvar þegar þeir sæju dýrið standa hér á pallinum.“ Og þar hafði eigandinn örugglega rétt fyrir sér. En hann bætti því við svona í trúnaði að hins vegar þegar ókunnugir menn stigju út úr bílnum og gengju óhikað upp að húsinu, eins og til dæmis sá sem kæmi frá Orkuveitunni að lesa á mælana, þá lúskraðist hundurinn upp í móa og léti ekki sjá sig fyrr en mæla- maðurinn æki aftur á braut. n Hundamenn, og katta- menn eins og við Fischer„Ég held að þeir sem kynnst hafi kött- um viti að þeir telji sig nú svona gegnumsneitt yfir mannfólkið hafna. Og að vinátta við fólk felist í því að þeir útvelja sum- ar manneskjur sem nógu verðugar til að fá að ann- ast sig. Hundur og köttur „Það er alltaf gaman að velta fyrir sér hunda- og kattafólki og jafnvel muninum á því ef einhver er.“ Mynd EPA Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is hundafóður  80% kjöt  20% jurtir, grænmeti og ávextir  0% kornmeti Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 Bætiefni www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland BENSÍN BÆTIEFNI Fyrir allar bensínvélar með eða án hvarfakúts · Hreinsar bensíndælu, leiðslur · Kemur í veg fyrir botnfall í soggrein, túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun · Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnisskynjara. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í elds- · · Bætir útblásturinn og minnkar DÍSEL BÆTIEFNI Fyrir allar díselvélar þ.m.t. common rail og önnur olíuverk · · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í · Kemur í veg fyrir botnfall í túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í eldsneytisgeymi. · Minnkar bank í mótor. tæringar- og ryðvörn. tæringar- og ryðvörn. SÓTAGNASÍUHREINSIR Hreinsiefni til að hreinsa kolefni og sótagnir úr sótagnasíum. · Losar um og arlægir kolefn - isagnir úr sótagnasíu. · Ekki þarf að taka kút úr við hreinsun. · Sparar peninga þar sem ekki þarf að skipta um sótagnasíu. (þetta fer eftir ástandi á sótagnasíu) · · Málm- og öskulaus formúla · Gufar upp án þess að skilja eftir sig óhreinindi fyrir allar vélar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.