Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Qupperneq 32
28 Lífsstíll Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
TANITA FITUMÆLINGAVOGIR
Nauðsynleg hjálpartæki eftir jól
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
Tengist við iPhone
með Bluetooth
Vefuppboð
Opið virka daga 10 - 18,
Laugardaga 11 - 16,
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B.
Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs
Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal
og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Erum að taka á móti verkum
á næsta listmunauppboð
Við leitum að
listavErkum
Vefuppboð nr. 208
þrívíð verk og silfur.
Stendur til 3. febrúar
Rjúpuungi Guðmundur Einarsson frá Miðdal
Blómavasi. Rosentahl -
Björn Wiinblad
Flora Danica – saltkar
Royal Copenhagen
Lýðveldið Ísland,
17. júní 1944
– 1969 Bavaria
Waldershof -
Þýskaland
Í
slenska litabókin leit nýlega dags-
ins ljós, en um er að ræða full-
orðinslitabók prýdda fallegum
myndum eftir fjóra íslenska
hönnuði sem saman mynda
hönnunarteymið Gunnarsbörn.
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, ann-
ar upphafsmanna teymisins, á flestar
myndanna í bókinni en hún naut
dyggrar aðstoðar Kára Gunnarssonar,
eiginmanns síns, Aspar Gunnars-
dóttur, systur hans, og Berglindar
Ásgeirsdóttur, svilkonu sinnar. Guð-
rún segir bókina aldrei hafa geta litið
dagsins ljós nema fyrir þau. „Minn
helsti innblástur að myndunum var
íslensk náttúra, eins og kannski sést
á þeim þá er ég sérstaklega hrifin af
berjalyngi og finnst gaman að fara í
berjamó,“ segir hún aðspurð hvað-
an hún hafi fengið hugmyndir að
myndunum. En þema bókarinnar er
íslensk náttúra, þrátt fyrir að hver og
ein mynd sé sjálfstæð.
Hálfkláruð listaverk
En hvernig er að teikna myndir fyrir
aðra til að lita? Er það ekki eins og að
hætta við hálfklárað verk? „Alls ekki,“
segir Guðrún án þess að hugsa sig um.
„Ég er sjálf mjög hrifin af svarthvítu.
Fannst samt í rauninni erfiðast að
fylla ekki inn með svörtu. Myndirnar
eru samt sem áður að sjálfsögðu bara
hálfkláraðar og við gerðum okkur al-
veg grein fyrir því þegar við vorum að
vinna þær, þær eru ekki tilbúnar fyrr
en einhver litar þær og það er einmitt
galdurinn á bak við svona litabækur,
þetta er svo mikið samstarf á milli
höfundanna og þeirra sem lita.“
En á Guðrún sér einhverja upp-
áhaldsmynd í bókinni? „Ég er sér-
staklega hrifin af tröllinu hans Kára,
en svo er ég líka sérstaklega hrifin af
tröllskessunni hennar Aspar, sem er
að fela sig fyrir sólinni. Ég er líka af-
skaplega ánægð með músalyngið
mitt, sem er aftast í bókinni, og að
sjálfsögðu rebbaskottið hennar Berg-
lindar, sem prýðir forsíðuna, það er
mjög erfitt að velja á milli.“
Gjörsamlega handóð
Hingað til hafa Gunnarsbörn opin-
berlega aðallega verið í að útbúa og
selja plaköt með myndum sem þau
hafa hannað og teiknað, en Guðrún
segir þau öll vera gjörsamlega hand-
óð og bralli ýmislegt meira saman
bak við tjöldin. Hugmyndin að lita-
bókinni fæddist þegar þau hjónin
fluttu tímabundið með fjölskylduna
til Bretlands í apríl í fyrra. Þar komst
Guðrún í tæri við hina víðfrægu lita-
bók Secret Garden eftir Johönnu Bas-
ford, en sú bók markaði upphaf lita-
æðisins.
„Ég gat ekki annað en keypt hana.
Hún er uppfull af laufblöðum og
breskri flóru og ég fór strax að tengja
bókina við breska náttúru enda bý ég
í bresku sveitinni. Þá fann ég fyrir yfir-
þyrmandi löngun til að gera íslenska
bók, enda var ég með smá heimþrá.
Mér datt í hug að leggja þetta undir
Berglindi og Ösp og þær tóku svona
líka vel í þetta, svo fékk Kári að sjálf-
sögðu að vera með líka.“
Nú er eðlilegt að lita
Nú er oft talað um að það sé svo
róandi að setjast niður og lita og
Guðrún er svo sannarlega sam-
mála því. „Ég gæti litað allan daginn
ef ég hefði tíma,“ segir hún. Og
Guðrún er sannfærð um að litaæðið
sé komið til að vera. „Flestum sem
þótti gaman að lita þegar þeir voru
litlir þykir enn gaman að lita sem
fullorðnir, þeir kannski vissu það
ekki, af því að það tíðkaðist ekki
að fullorðnir lituðu, núna er það
mjög eðlilegt og mun halda áfram,
blessunarlega.“ n
„Ég gæti litað
allan daginn“
Gunnarsbörn senda frá sér Íslensku litabókina
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Fallegar myndir Þema bókarinnar er íslensk náttúra en hver mynd er engu að síður sjálfstæð.„Ég fann fyrir
yfirþyrmandi
löngun til að gera
íslenska bók, enda var
ég með smá heimþrá.