Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 32
28 Lífsstíll Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016 Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta TANITA FITUMÆLINGAVOGIR Nauðsynleg hjálpartæki eftir jól Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 Tengist við iPhone með Bluetooth Vefuppboð Opið virka daga 10 - 18, Laugardaga 11 - 16, Rauðarárstígur 12 - 14 sími 551-0400 www.myndlist.is Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Við leitum að listavErkum Vefuppboð nr. 208 þrívíð verk og silfur. Stendur til 3. febrúar Rjúpuungi Guðmundur Einarsson frá Miðdal Blómavasi. Rosentahl - Björn Wiinblad Flora Danica – saltkar Royal Copenhagen Lýðveldið Ísland, 17. júní 1944 – 1969 Bavaria Waldershof - Þýskaland Í slenska litabókin leit nýlega dags- ins ljós, en um er að ræða full- orðinslitabók prýdda fallegum myndum eftir fjóra íslenska hönnuði sem saman mynda hönnunarteymið Gunnarsbörn. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, ann- ar upphafsmanna teymisins, á flestar myndanna í bókinni en hún naut dyggrar aðstoðar Kára Gunnarssonar, eiginmanns síns, Aspar Gunnars- dóttur, systur hans, og Berglindar Ásgeirsdóttur, svilkonu sinnar. Guð- rún segir bókina aldrei hafa geta litið dagsins ljós nema fyrir þau. „Minn helsti innblástur að myndunum var íslensk náttúra, eins og kannski sést á þeim þá er ég sérstaklega hrifin af berjalyngi og finnst gaman að fara í berjamó,“ segir hún aðspurð hvað- an hún hafi fengið hugmyndir að myndunum. En þema bókarinnar er íslensk náttúra, þrátt fyrir að hver og ein mynd sé sjálfstæð. Hálfkláruð listaverk En hvernig er að teikna myndir fyrir aðra til að lita? Er það ekki eins og að hætta við hálfklárað verk? „Alls ekki,“ segir Guðrún án þess að hugsa sig um. „Ég er sjálf mjög hrifin af svarthvítu. Fannst samt í rauninni erfiðast að fylla ekki inn með svörtu. Myndirnar eru samt sem áður að sjálfsögðu bara hálfkláraðar og við gerðum okkur al- veg grein fyrir því þegar við vorum að vinna þær, þær eru ekki tilbúnar fyrr en einhver litar þær og það er einmitt galdurinn á bak við svona litabækur, þetta er svo mikið samstarf á milli höfundanna og þeirra sem lita.“ En á Guðrún sér einhverja upp- áhaldsmynd í bókinni? „Ég er sér- staklega hrifin af tröllinu hans Kára, en svo er ég líka sérstaklega hrifin af tröllskessunni hennar Aspar, sem er að fela sig fyrir sólinni. Ég er líka af- skaplega ánægð með músalyngið mitt, sem er aftast í bókinni, og að sjálfsögðu rebbaskottið hennar Berg- lindar, sem prýðir forsíðuna, það er mjög erfitt að velja á milli.“ Gjörsamlega handóð Hingað til hafa Gunnarsbörn opin- berlega aðallega verið í að útbúa og selja plaköt með myndum sem þau hafa hannað og teiknað, en Guðrún segir þau öll vera gjörsamlega hand- óð og bralli ýmislegt meira saman bak við tjöldin. Hugmyndin að lita- bókinni fæddist þegar þau hjónin fluttu tímabundið með fjölskylduna til Bretlands í apríl í fyrra. Þar komst Guðrún í tæri við hina víðfrægu lita- bók Secret Garden eftir Johönnu Bas- ford, en sú bók markaði upphaf lita- æðisins. „Ég gat ekki annað en keypt hana. Hún er uppfull af laufblöðum og breskri flóru og ég fór strax að tengja bókina við breska náttúru enda bý ég í bresku sveitinni. Þá fann ég fyrir yfir- þyrmandi löngun til að gera íslenska bók, enda var ég með smá heimþrá. Mér datt í hug að leggja þetta undir Berglindi og Ösp og þær tóku svona líka vel í þetta, svo fékk Kári að sjálf- sögðu að vera með líka.“ Nú er eðlilegt að lita Nú er oft talað um að það sé svo róandi að setjast niður og lita og Guðrún er svo sannarlega sam- mála því. „Ég gæti litað allan daginn ef ég hefði tíma,“ segir hún. Og Guðrún er sannfærð um að litaæðið sé komið til að vera. „Flestum sem þótti gaman að lita þegar þeir voru litlir þykir enn gaman að lita sem fullorðnir, þeir kannski vissu það ekki, af því að það tíðkaðist ekki að fullorðnir lituðu, núna er það mjög eðlilegt og mun halda áfram, blessunarlega.“ n „Ég gæti litað allan daginn“ Gunnarsbörn senda frá sér Íslensku litabókina Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Fallegar myndir Þema bókarinnar er íslensk náttúra en hver mynd er engu að síður sjálfstæð.„Ég fann fyrir yfirþyrmandi löngun til að gera íslenska bók, enda var ég með smá heimþrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.