Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Qupperneq 36
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 201632 Sport
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
Sérfræðingar í prenthylkjum
Jón Daði Böðvarsson
Staða: Óvissa
Selfyssingurinn tók mikla áhættu hálfu
ári fyrir EM með því að skipta frá Viking í
Noregi til Kaiserslautern í þýsku B-deildinni.
Hans bíður mikil samkeppni í Þýskalandi og
komst til dæmis ekki í leikmannahóp liðsins
í síðasta leik. Gangi honum erfiðlega að
komast í liðið í Þýskalandi opnar hann sæti í
liðinu í framlínunni ásamt Kolbeini.
Lykilmenn í óvissu
Hjörvars Hafliðasonar
Hápressa
Í
slenska landsliðið leikur gegn
Bandaríkjamönnum ytra í
vináttu leik á sunnudag. Hörð
barátta er um sæti í landsliðs-
hópnum sem fer til Frakklands
í júní. Staða leikmanna er mismun-
andi. Lykilmenn eins og Kolbeinn
Sigþórsson og Gylfi Sigurðsson hafa
leikið vel með félagsliðum sínum
að undanförnu á meðan aðrir eru í
erfiðari stöðu. n
Hannes Þór Halldórsson
Staða: Meiddur
Hannes gekk til liðs við NEC í Hollandi í
fyrrasumar og hóf leiktíðina þar með látum.
Hann meiddist alvarlega á öxl í október og
hefur ekkert leikið síðan. NEC hefur fengið
til liðs við sig nýjan markvörð, Brad Jones,
fyrrverandi markvörð Middlesbro og Liver-
pool. Ljóst er að það verður við ramman
reip að draga fyrir Hannes að fá aftur treyju
númer eitt hjá NEC. Ástralinn hefur farið
hamförum í markinu að undanförnu og
haldið hreinu í síðustu þremur leikjum. Óháð
því hvort Hannes komist aftur í markið í
Hollandi er engin spurning að landsliðið er
allt annað með Hannesi en án hans.
Eiður Smári Guðjohnsen
Staða: Án félags
Eiður, sem er orðinn 37 ára, lék síðast í Kína
en er nú án félags. Eiður er ekki bundinn
félagaskiptaglugganum sem víða lokar
núna 1. febrúar því hann er samningslaus og
því ekki um bein félagaskipti um að ræða.
En hann þolir líklega ekki lengri bið eftir liði
og vonandi finnur hann lið sem fyrst. Gaman
væri að sjá ef eitthvert lið hér heima getur
boðið honum samning og við fengið að
njóta hans hér heima.
Alfreð Finnbogason
Staða: Í leit að liði
Alfreð, sem var frábær í síðustu tveimur
alvöru vináttulandsleikjum Íslands, gegn
Slóvakíu og Póllandi, er að leita sér að nýju
liði. Alfreð fékk fá tækifæri með Olympiakos
í Grikklandi fyrir áramót og janúarmánuður
hefur farið í leit að nýju liði. Líklegt er að
Alfreð endi í MLS, þýsku Bundesligunni eða
Serie A á Ítalíu.
Rúrik Gíslason
Staða: Meiddur
Rúrik Gíslason byrjaði leiktíðina ágætlega
með Nürnberg í þýsku B-deildinni. En í
október þurfti hann að leggjast undir hníf-
inn vegna meiðsla á hásin. Síðan þá hefur
Nürnberg verið eitt heitasta liðið í deildinni
og m.a. unnið fimm deildarleiki í röð. Það er
ljóst að þegar Rúrik kemur til baka verður
hægara sagt en gert að komast í liðið hjá
Nürnberg. Hans bíður mikil barátta um að
komast í 23 manna hópinn á EM.
Skorað gegn Hollandi
Ekki er víst að allir lykil-
menn landsliðsins verði til
taks á EM í sumar. Mynd EPA
152 íslensk mörk
V
ítaspyrnan sem Gylfi Þór Sig-
urðsson skoraði úr á sunndag
gegn Everton var 152. mark-
ið sem Íslendingur skorar í
ensku úrvalsdeildinni. Eiður Smári
Guðjohnsen er ennþá langmarka-
hæstur með rúmlega þriðjung mark-
anna. Þorvaldur Örlygsson var fyrsti
Íslendingurinn til að
skora í ensku úrvals-
deildinni í janúar-
mánuði 1993 í sigri
Nottingham Forest
á Chelsea. Opta
segir að ís-
lensku mörkin
séu 150 talsins
en samkvæmt
mínum taln-
ingum eru þau
152. n
n Eiður Smári 55 mörk
n Heiðar Helguson 28 mörk
n Gylfi Þór Sigurðsson 27 mörk
n Hermann Hreiðarsson 14 mörk
n Guðni Bergsson 8 mörk
n Grétar Rafn Steinsson 4 mörk
n Ívar Ingimarsson 4 mörk
n Brynjar Gunnarsson 4 mörk
n Arnar Gunnlaugsson 3 mörk
n Jóhannes K. Guðjónsson 2 mörk
n Þórður Guðjónsson 1 mark
n Aron Einar Gunnarsson 1 mark
n Þorvaldur Örlygsson 1 mark
Mark Gylfi Þór skor-
ar gegn Manchester
United. Mynd EPA