Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Síða 38
34 Menning Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016 H E I L S U R Ú M ÚTSALAN ER HAFIN! AFSLÁTTUR! 20-80% A R G H !!! 0 50 11 6 Leyndardómar Snæfellsjökuls É g kom upphaflega til Íslands til að stunda nám við Lista­ háskólann og til þess að gera list um eldfjallið í Snæfellsjökli,“ segir franska listakonan Anne Herzog, sem sýnir um þessar mund­ ir verk sín á sýningunni Vítiseyjan í Ásmundarsal Listasafns ASÍ. „Ég er að sýna teikningar sem ég vann á Snæfellsnesi frá því í lok árs 2014 þar til í byrjun þessa árs,“ segir Anne. „Þetta eru teikningar gerðar með bleki á pappír í mismunandi stærðum og einnig tvö stór málverk sem eru gerð með vaxi á striga.“ Herzog er ekki fyrsti franski lista­ maðurinn sem hefur fengið inn­ blástur frá Snæfellsjökli því jökullinn gegnir lykilhlutverki í ævintýrabók franska rithöfundarins Jules Vernes, Leyndardómar Snæfellsjökuls (f. Voyage au centre de la terre). „Eldfjöll geta verið inngangur að heilum heimi neðanjarðar,“ segir Anne þegar hún er spurð um aðdráttaraflið sem eld­ fjöll hafa. Myndirnar vinnur hún á regluleg­ um ferðalögum sínum að rótum fjalls­ ins. „Þegar ég vinn myndirnar ferðast ég fótgangandi eða á puttanum að eld­ fjallinu. Ég tek viðtöl við ökumenn­ ina og fólkið sem ég rekst á í nágrenni fjallsins og geri eins konar heimilda­ mynd. Ég teikna upp viðtölin við fólkið og teikna landslagið og úr verður ein­ hvers konar ferðabók. Ég á líka auðvelt með að teikna skáldaðar sögur frá yfir­ náttúrlegum stöðum í kringum eld­ fjallið. Þá geri ég risastórar teikningu með vaxi á striga, set ég strigann á eld­ fjallið, kasta vaxinu á það og eldfjallið skapar munstrið,“ segir Anne. Hún segir að nafn sýningarinnar vísi þó ekki einungis til vítisins hvers Anne Herzog sýnir teikningar sínar í Listasafni ASÍ n Eingöngu hvítir leikarar tilnefndir tvö ár í röð n Óskarsakademían 94% hvít A llir þeir tuttugu leikarar sem eru tilnefndir til Óskars verðlauna fyrir besta leik í aðal­ og aukahlutverkum eru hvítir – annað árið í röð. Í þokkabót eru allir tilnefndir leikstjórar hvítir karl­ menn og allar kvikmyndirnar sem tilnefndar eru sem besta myndin skarta hvítum persónum í aðalhlut­ verkum. Þessi einsleitni í tilnefning­ um hefur verið harðlega gagn­ rýnd. Til að mótmæla hafa nokkrar svartar stórstjörnur, til að mynda Jada Pinkett Smith og Spike Lee, ákveðið að sniðganga hátíðina. Aðrir hafa tekið til varna, leik­ konan Charlotte Rampling sagði að umræðan var rasísk í garð hvítra, og viðskiptatímaritið The Economist reiknaði út að svartir Bandaríkjamenn hafi fengið hlut­ fallslega réttan fjölda tilnefninga það sem af er 21. öldinni. Tölurnar sýndu þó einnig að fjölbreytni er stórlega ábótavant í kvikmynda­ bransanum. Af hverju svona hvít? Þessi þekktustu kvikmyndaverðlaun heims hafa verið veitt frá árinu 1929. Á 20. öldinni voru 95 prósent allra tilnefndra leikara á verðlaunahátíð­ inni hvít, undantekningarnar voru örfáar og sigurvegarar úr minni­ hlutahópum enn færri. Þetta breyttist þó í byrjun nýrrar aldar og árið 2001 hlutu tveir svartir leikarar verðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverki, Halle Berry og Denzel Washington. Margir héldu að jafnrétti væri náð á þessum vettvangi en efa­ semdaraddir hafa aftur heyrst undanfarin tvö ár þegar allir til­ nefndir leikarar hafa verið hvítir. Spurning hefur vaknað: Af hverju eru Óskarsverðlaunin svona hvít? Sniðganga verðlaunin Umræða um kynþáttahalla á Óskars verðlaununum hefur skotið upp kollinum áður en aldrei verið jafn áberandi og í ár, meðal annars á samfélagsmiðlum undir myllu­ merkinu #OscarsSoWhite. Margir vilja meina að gengið hafi verið framhjá myndum á borð við Creed, Concussion, Beasts of no nation, og Straight Outta Compton. Aðal­ leikarar og leikstjórar þessara mynda eru svartir, en í þeim tilvikum þar sem þær hlutu tilnefningu voru það aðeins hvítir aukaleikarar eða hand­ ritshöfundar sem voru tilnefndir. Eftir að tilnefningarnar voru gerðar opinberar hvatti leikkon­ an Jada Pinkett Smith til þess að svart fólk í kvikmyndabransanum sniðgengi hátíðina (eiginmaður hennar, Will Smith, var einn af þeim sem orðaðir voru við verðlaun fyrir Concussion) og leikstjórinn Spike Hvítþveginn Óskar Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Hvít verðlaun, svartur kynnir Grínast hefur verið með að kynnirinn Chris Rock verði eini svarti maðurinn á sviðinu á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fer fram 28. febrúar næstkomandi. Mætir ekki Leikstjórinn Spike Lee mætir ekki á Óskarsverðlaunahátíðina, þrátt fyrir að veita eigi honum heiðursverðlaun fyrir framlag hans til kvikmyndalistarinnar. Metsölulisti Eymundsson 20.–26. jan. 2016 1 Stríðsárin 1938 - 1945 Páll Baldvin Baldvinsson 2 DauðaslóðinSara Blædel 3 Þýska húsiðArnaldur Indriðason 4 Mamma klikk!Gunnar Helgason 5 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir 6 SogiðYrsa Sigurðardóttir 7 Fram hjáJill Alexander Essbaum 8 Fávís mærIda Simons 9 Konan í blokkinniJónína Leósdóttir 10 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson Páll Baldvin Baldvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.