Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 26.–29. febrúar 2016
Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík / Hús Blindrafélagsins / Sími 552-2002
Sama veRð í 8 áR!
Linsur fyrir öll tækifæri
2500 kr.
Milljón króna ferð í
skugga skuldavanda
n Reykjanesbær sendir sex fulltrúa til Svíþjóðar n Greiðir flug og bílaleigubíl
R
eykjanesbær mun í næsta
mánuði senda sex fulltrúa,
þar af þrjá bæjarfulltrúa og
þrjá sviðsstjóra, til að vera
viðstaddir vinabæjamót og
vinnufund í Trollhättan í Svíþjóð
þar sem einnig verður haldið upp
á aldarafmæli bæjarins. Reykjanes
bær mun greiða fyrir flug, bíla
leigubíl og útlagðan kostnað fyrir
sexmenningana en að sögn bæjar
stjórans gerir fjárhagsáætlun ráð
fyrir að kostnaður sveitarfélags
ins vegna þessa muni nema einni
milljón króna. Ferðin fyrirhugaða
hefur verið gagnrýnd af íbúum sem
spyrja sig um forgangsröðun á tím
um gríðarlegra fjárhagsvandræða
Reykjanesbæjar.
Samkvæmt heimildum DV
munu þrír bæjarfulltrúar, Friðjón
Einarsson, formaður bæjarráðs fyrir
Samfylkinguna, Árni Sigfússon, full
trúi Sjálfstæðisflokks, og Kristinn
Þór Jakobsson, fulltrúi Framsóknar
flokks, fara fyrir hönd Reykjanes
bæjar í ferðina. Ásamt þessum
þremur kjörnu fulltrúum verða þrír
sviðsstjórar með í för, af stjórnsýslu
sviði, velferðarsviði og fræðslusviði
samkvæmt heimildum DV.
Umbótaverkefni
réttlæta ferðina
DV spurði Kjartan Má Kjartansson,
bæjarstjóra Reykjanesbæjar, út í
málið og hvað réttlætti slíka ferð.
„Í Trollhättan núna í mars verður
þremur umbótaverkefnum hleypt
af stokkunum sem við vonumst til
að hjálpi okkur að finna betri og
hagkvæmari lausnir í þeim við
fangsefnum sem verkefnin munu
snúast um. Það réttlætir þátttökuna.
Aldar afmæli Trollhättan er svo
aukaatriði í málinu en borgaryfir
völd, sem eru gestgjafinn í þetta
sinn, ákváðu að hafa fundinn/mótið
á sömu helgi og þeir fagna afmæl
inu. Hefur Reykjanesbær átt í far
sælu vinabæjar samstarfi við nokk
ur sveitarfélög á Norðurlöndunum
í áratugi. Á þeim tíma hafa skipst á
skin og skúrir í rekstri þeirra allra en
samstarfið og tengslin hafa haldið.“
Samkvæmt grein sem Kjartan
Már ritaði á vef Reykjanesbæjar
fyrr í mánuðinum fer vinabæja
mótið fram þann 10.–12. mars
næstkomandi. Þar er gert ráð fyrir
að undirritað verði nýtt vinabæj
arsamkomulag, sem kveður á um
það markmið að samstarfið snúist
um raunhæf, markviss umbótaverk
efni sem standa muni í tvö ár í senn.
Þessi verkefni eru umbætur og þró
un rafrænnar stjórnsýslu, móttaka
erlendra nýbúa og hvernig hægt
sé að draga úr brottfalli nemenda
úr framhaldsskólum. Allt séu þetta
verkefni sem ofarlega séu á baugi í
Reykjanesbæ að mati bæjarstjóra.
Gert ráð fyrir milljón
Aðspurður um kostnaðinn við
ferðina segir Kjartan Már að
Reykjanesbær muni greiða fyrir
flug og bílaleigubíl fyrir sexmenn
inga þar sem flogið verður til Óslóar
og ekið þaðan til Trollhättan. Sam
kvæmt útreikningum Google
Maps er þriggja tíma keyrsla, eða
250 kílómetrar, milli staðanna.
Reykjanesbær mun þó ekki þurfa að
greiða fyrir gistingu og fæði hópsins
þar sem gestgjafinn mun að sögn
Kjartans sjá um það. Þá verður sú
breyting á nú að makar bæjarfull
trúa fara ekki með í ferðina í fyrsta
sinn frá upphafi.
„Í fjárhagsáætlun er gert ráð
fyrir kostnaði allt að einni milljón
en ljóst að hann verður mun lægri.
Dagpeningar eru ekki greiddir en
útlagður kostnaður gegn framvísun
kvittana.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Kjartan Már Kjartansson Bæjarstjóri
Reykjanesbæjar segir að fjárhagsáætlun
geri ráð fyrir að ferðin til Svíþjóðar kosti
eina milljón. Þó sé búist við að kostnaðurinn
verði minni.
Sex á leið til Svíþjóðar Gagnrýnis-
raddir hafa heyrst í Reykjanesbæ vegna
þeirrar ákvörðunar að senda sex fulltrúa
sveitarfélagsins til Trollhättan í Svíþjóð í
næsta mánuði í ljósi þess að fjárhagsvandi
þess er umtalsverður. Mynd SiGtryGGUr Ari
„ Í fjárhagsáætlun
er gert ráð fyrir
kostnaði allt að einni
milljón en ljóst að hann
verður mun lægri.
Íhugar for-
setaframboð
Sigrún Stefánsdóttir, forseti
hug og félagsvísindasviðs Há
skólans á Akureyri, íhugar nú
hvort hún eigi að
bjóða sig fram
í embætti for
seta Íslands.
Frá þessu
greinir Sigrún í
viðtali við Akur
eyri Vikublað. Þar segir Sigrún
að margir hafi ýtt á hana og
hvatt hana til að bjóða sig fram.
„En lengra er það ekki kom
ið. Ég hef bara legið undir feldi
og metið stöðuna.“
Fram kemur að Sigrún, sem
verður sjötug á næsta ári, muni
láta af störfum sem forseti
hug og félagsvísindasviðs Há
skólans á Akureyri í vor, vegna
aldurs. Hún segist þó enn vera í
fullu fjöri og ekki hrædd við að
takast á við ný verkefni.
Földu sterana
í frímerkja-
albúmum
Tollverðir haldlögðu í síðasta
mánuði tvær bögglapóstsendingar
sem innihéldu mikið magn stera.
Sterunum hafði verið komið fyrir
í frímerkjaalbúmum, sem áður
hafði verið skorið innan úr, þannig
að rúm fyrir þá myndaðist.
Albúmin voru innsigluð með
glæru plasti. Þau reyndist inni
halda 16.394 steratöflur og 1.635
millilítra af fljótandi sterum í
stunguglösum og ampúlum. Í
sendingunum, sem komu frá
Svíþjóð, voru samtals 20 albúm,
framleidd í Kína, sem flest inni
héldu stera, en fáein voru þó tóm.
Málið var sent til fíkniefnadeild
ar lögreglunnar á höfuðborgar
svæðinu sem hefur lokið rannsókn
þess og telst það upplýst.