Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Qupperneq 14
14 Fréttir Helgarblað 26.–29. febrúar 2016
Hæ sæti
hvað
færð þú að
borða?
Smáralind • Kringlunni
Reykjanesbæ • Sími 511 2022
www.dyrabaer.is
Þ
að er allt að verða gaga. All-
ir ætla að verða ríkir á ferða-
þjónustunni. Ég er búinn
að standa í verkalýðsmál-
um síðan 1992 og hef því
upplifað ýmislegt. Við sem störfum
í þessum geira erum sammála um
að ástandið sé miklu verra en fyr-
ir hrun, það er að segja þetta svindl
og svínarí sem sumir vinnuveit-
endur eru að reyna að komast upp
með,“ segir Aðalsteinn Á. Baldurs-
son, formaður Framsýnar - stéttar-
félags. Hann skrifaði kraftmikinn
pistil á heimasíðu Framsýnar und-
ir yfirskriftinni „Nútíma þrælahald á
Íslandi“ þar sem hann tók mansals-
málið í Vík í Mýrdal sem dæmi um að
ljót mál sem þessi færist í vöxt hér-
lendis. Þar segir hann að blessunar-
lega hafi málin sem komið hafa upp
hjá Framsýn ekki verið í líkingu við
málið í Vík en þó hafi þurft að koma
að kynferðismálum og fela starfs-
menn tímabundið fyrir yfirmönnum
vegna ofsókna á vinnustöðum.
Rúmlega 60 mál komið upp
Að sögn Aðalsteins er vandamál-
ið tvíþætt. „Í fyrsta lagi eru starfs-
menn að koma í auknum mæli í
gegnum erlend fyrirtæki og starfa
hér samkvæmt svokallaðri 183-
daga reglu. Það er fullkomlega lög-
legt og í samræmi við tvísköttunar-
samninga. Þessir starfsmenn borga
enga skatta eða skyldur hérlend-
is en hins vegar er algjörlega skýrt
að þeir mega ekki vera undir lág-
markslaunum hérlendis. Það er
lögbrot,“ segir Aðalsteinn ákveðinn.
Að hans sögn hafi rúmlega 60 slík
mál komið upp hjá Framsýn frá
sumrinu 2015. „Í öllum tilvikum
fengu starfsmennirnir ekki greidd
laun eftir íslenskum lágmarkskjör-
um. Málin eru nú vonandi upp-
lýst en viðkomandi fyrirtæki sem
áttu í hlut og starfa í byggingar- og
matvælaiðnaði báru við mistök-
um. Ætlunin hefði ekki verið að
hlunnfara erlendu starfsmenn-
ina. Reyndar eru þetta stöðluð við-
brögð þegar stéttarfélögin gera
athugasemdir við kjarasamnings-
brot fyrirtækja gagnvart erlendum
starfsmönnum, það er að um mis-
tök sé um að ræða og þau verði
leiðrétt,“ segir Aðalsteinn.
Leita eftir erlendum
sjálfboðaliðum
Að mati Aðalsteins er ekki síð-
ur alvarlegt vandamál að íslenskir
ferðaþjónustuaðilar eru að leita eft-
ir erlendum sjálfboðaliðum. „Slíkir
sjálfboðaliðar fá húsaskjól og fæði
en eiga í staðinn að skila vinnu í at-
vinnustarfsemi. Það segir sig sjálft
að þessir aðilar eru í samkeppni
við aðila sem eru með allt sitt á
hreinu, borga fólki sanngjörn laun
og borga skatta og skyldur. Við lít-
um slíkt alvarlegum augum. Hvað
verður um réttmæt laun þessara
aðila? Þetta eru ekkert annað en
þrælabúðir fyrir mér,“ segir Aðal-
steinn. Hann bendir á tvær heima-
síður sem dæmi, Workaway.info og
Helpx.net en þar má finna tugi aug-
lýsinga frá íslenskum aðilum sem
óska eftir sjálfboðaliðum til starfa í
ferðaþjónustu.
Ráða eftirlitsmann
Hann segir þessi vandamál út-
breidd um allt land og erfitt sé fyr-
ir eftirlitsaðila að fylgjast með. Í
viðleitni til þess hafi Framsýn aug-
lýst eftir aðila til þess að heimsækja
vinnustaði um allt umdæmið og
hafa eftirlit með því að vinnuveit-
endur fari að lögum og reglum.
„Það var mikið hringt og spurt um
starfið en þrettán umsóknir bárust
alls. „Þetta starf verður ekki fyrir
hvern sem er og sá sem tekur þetta
að sér verður að vera tilbúinn í hvað
sem er og vera harður af sér,“ segir
Aðalsteinn. Hann kallar eftir því að
verkalýðshreyfingin og opinberir
aðilar séu á tánum til þess að verjast
þessu áhlaupi sem nú ríður yfir. n
„Það er allt
að verða gaga“
Tíð dæmi um erlenda starfsmenn sem fá greitt undir lágmarkslaunum
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Aðalsteinn Á. Baldursson Segir að svindl og svínarí sé margfalt verra en fyrir hrun
þegar kemur að kjörum og réttindum starfsmanna. Mynd SigtRygguR ARi JóhAnnSSon„Þetta eru ekkert
annað en þræla-
búðir fyrir mér.