Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Qupperneq 19
Helgarblað 26.–29. febrúar 2016 Umræða 19
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fermax mynd-
dyrasíma kerfi
er bæði fáguð
og flott vara
á góðu verði
sem hentar
fyrir hvert
heimili. Hægt
að fá með eða
án myndavélar
og nokkur útlit
til að velja um.
Augnheilbrigði
Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.
Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með sinki,
lúteins og zeaxantíns og er ætlað við aldursbundinni
augnbotnahrörnun. Nú er vítamínið með endurbættri
formúlu sem gerir það enn betra en áður.
Viteyes í nýju umbúðunum er komið í dreifingu og er
fáanlegt á sömu stöðum og áður, um allt land.
NÝTT OG ENDURBÆTT
AUGNVÍTAMÍN
Í NÝJUM UMBÚÐUM!
Nýjar
umbúðir
Hvarmabólga
og þurr augu.
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst
í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki.
Thealoz dropar
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn
þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum.
Blephagel gel
Blephagel er dauðhreinsað gel án rotvarnarefna, ilmefna og
alkóhóls. Gelið vinnur vel á hvarmabólgu, veitir raka og mýkir
augnlokin. Það er hvorki feitt né klístrað.
Blephaclean blautklútar
Blephaclean eru dauðhreinsaðir blautklútar án rotvarnar- og
ilmefna sem vinna vel á hvarmabólgu. Hjálpa við hjöðnun á
þrota í kringum augun.
og fólk af því tæi sem þykir ekki mikið
sport að skutla í styrjöldum. /…/
Þegar við Siggi fórum að dragast í föt-
in aftur þótti okkur stórskrýtið að við
skyldum ekki vera hrokknir uppaf. En
ekki voru menn búnir að vera lengi á
fótum þegar þeir fóru að gera sér eitt-
hvað til dundurs í þjóðlífinu: að þessu
sinni var farið að próklamera kvik-
indi sem kallað var „fullveldi Íslands“.
Þetta gerðist í þeybitru síðla hausts,
mig minnir í aur og hálku undir lág-
skýuðum himni. Í þessum hráslaga
komu menn saman, allir sem ekki
voru dauðir, að fagna fullveldinu í
Bakarabrekkunni og Lækjargötu og
horfa á Stjórnarráðið. Það var spilað
á lúðrana. Danskur herforíngi stýrði
lítilli fylkíngu sjóliða, og kom með ís-
landsfána í hendinni sem hann dró
upp á Stjórnarráðinu okkar til merk-
is um að danir afhentu okkur íslend-
íngum hérmeð þetta djöfulsins land;
gerði síðan honnör og marséraði til
skips með hermenn sína.“
Frábær bók
Gunnars Þórs Bjarnasonar
Því er ég nú að rifja upp öll þessi fín-
heit að á dögunum lá ég heila helgi
í sófa niðursokkinn í bók sem ég gat
ekki slitið mig frá, en það var semsé
„Þegar siðmenningin fór fjandans til
– Íslendingar og stríðið mikla 1914–
1918“ eftir Gunnar Þór Bjarnason
sagnfræðing; hún kom út í lok síð-
asta árs og fékk á dögunum Íslensku
bókmenntaverðlaunin. Einhvern
veginn fannst mér þar tengjast allt
saman sem ég hafði áður lesið, bæði
skáldskapur og ýmiskonar fróðleikur,
meðal annars úr sjóslysa- og svaðil-
farabókum; „Þegar Nirði var sökkt“
o.s.frv. um örlög íslenskra skipa í kaf-
bátahernaðinum. Sömuleiðis fékk
maður greinargóðan aðdraganda að
ríkisarfamorðinu í Sarajevó, en á því
hefst einmitt Góði dátinn; maður fékk
líka mynd af upplausn og óförum
hers Habsborgaraveldisins sem segir
frá í sömu bók eftir Jaroslav Hasek.
Mest er þó um vert að þarna fær mað-
ur mynd af þjóðlífinu á þessum um-
brotaárum og skilning á því að um-
rædd styrjöld hafði rétt eins og sú
seinni mikil áhrif á gerbreytta stöðu
okkar í heiminum; í stað þess að öll
áhrif kæmu frá Danmörku og öll
verslun í gegnum Kaupmannahöfn
lentum við á yfirráðasvæði Engil-
saxa, og höfum í raun verið þar síðan;
enskur ræðismaður tók eiginlega að
sér utanríkispólitík landsins, og við
fórum að versla beint við Bandaríkin.
Og ég held það þurfi varla að taka það
fram að þessi bók er alger hvalreki
fyrir alla sem hafa áhuga á sögu bæði
okkar lands og heimsins alls. n
Georg Trakl „Grimmdin og hörmungarnar sem hann upplifði í kringum sig yfirbuguðu hann algerlega.“„Það rann semsé
upp fyrir mér á
dögunum að hingað til
hefði ég mest kynnst
sögu fyrri heimsstyrjaldar-
innar í gegnum skáldskap.