Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Side 27
Helgarblað 26.–29. febrúar 2016 Kynningarblað - Ferming 3
Renna eins og Elliðaárnar
inn og út úr heiminum
Einar Már Guðmundsson var fermdur árið 1968
S
tórhöfundurinn Einar Már
Guðmundsson, sem nýlega
hlaut Íslensku bókmennta-
verðlaunin fyrir skáldsöguna
Hundadagar, sem fjallar um
Jörund hundadagakonung, man vel
eftir fermingunni sinni en ekki síð-
ur tímanum og tíðarandanum. Hann
sýnir lesendum hér tvær myndir og
eftirfarandi hugleiðingu:
Sendi tvær myndir, eiginlega fyrir
og eftir, fyrir klippingu og eftir, fyrir
fermingu og eftir. Það eru samt ekki
nema tvær eða þrjár vikur á milli
þessara mynda. Eða það minnir mig.
Ég fermdist í lok mars árið 1968,
hóf því að ganga til prestsins haustið
'67. Þessi tvö táknrænu ár! Þau fylgja
mér inn í fullorðinsárin og renna
einsog Elliðaárnar inn og út úr heim-
inum. Eða einsog áin í lagi Bruce
Springsteens. The River. Eða ég ætti
eiginlega frekar að segja Neil Young?
Það heitir Down by the River og er
frá þessum tíma, '67 eða '68. Árið
1967 er kennt við ástina, summer of
love, hitt við uppreisnir og byltingar,
'68 byltingarnar, París, Prag og allt
það. Víetnam. Sjálf fermingin er mér
minnisstæð og auðvitað fermingar-
veislan en eiginlega man ég betur
allan undirbúninginn, tímana. Það
var allsherjarverkfall skömmu fyrir
ferminguna og allt var mjólkurlaust
í bænum en tímarnir og samfélag-
ið ruddust inn í kirkjuna. Hún varð
einskonar félagsmiðstöð. Rokkhljóm-
sveit skólans sem hét Amor lék þar
rokktónlist, söng She's not there með
Zombies, ef ég man rétt. Að minnsta
kosti tveir fermingardrengir voru í
bandinu, Sigurður Valgeirsson, sjón-
varps- og blaðamaður, og Tómas
M. Tómasson, verðandi Stuðmaður
með stórum staf. Á eftir bandinu kom
strákur sem síðar varð frystihússtjóri
og las úr Rauða kverinu eftir Maó úr
predikunarstólnum og því næst sýndi
presturinn myndir með Gög og Gokke
og Chaplín. Tímarnir voru að breytast
en boðskapurinn komst til skila. Það
tók bara tíma. Jesús var þarna. Við
vorum svo mikið með hugann við
ástina eða böllin í Breiðfirðingabúð
og Templarahöllinni að við þurftum
stundum að hlaupa út úr miðri mes-
su til að ná strætó niður í bæ svo við
misstum ekki af innkomunni annað-
hvort hjá Kalla Sighvats eða Björgvini
Gíslasyni. Þeir voru okkar menn, að
vísu ekki í sömu hljómsveitinni, ekki
þá. Ég gæti haldið áfram að messa.
Það er svo margt sem situr í mér. Að
minnsta kosti náði ég mér tvöföldu
plötuna hans Björgvins Gíslasonar
fyrir síðustu jól og gaf syni mínum
hana í jólagjöf. Kannski segir það allt
sem segja þarf, en hliðar heimsins eru
margar, stundum fjórar einsog á tvö-
faldri plötu, stundum fleiri, og breyt-
ast eftir því sem tímar líða, en prest-
arnir eru þarna, bæði séra Árelíus og
séra Sigurður Haukur með lömbin
og sálmana og Chaplín og Gög og
Gokke. n