Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 27
Helgarblað 26.–29. febrúar 2016 Kynningarblað - Ferming 3 Renna eins og Elliðaárnar inn og út úr heiminum Einar Már Guðmundsson var fermdur árið 1968 S tórhöfundurinn Einar Már Guðmundsson, sem nýlega hlaut Íslensku bókmennta- verðlaunin fyrir skáldsöguna Hundadagar, sem fjallar um Jörund hundadagakonung, man vel eftir fermingunni sinni en ekki síð- ur tímanum og tíðarandanum. Hann sýnir lesendum hér tvær myndir og eftirfarandi hugleiðingu: Sendi tvær myndir, eiginlega fyrir og eftir, fyrir klippingu og eftir, fyrir fermingu og eftir. Það eru samt ekki nema tvær eða þrjár vikur á milli þessara mynda. Eða það minnir mig. Ég fermdist í lok mars árið 1968, hóf því að ganga til prestsins haustið '67. Þessi tvö táknrænu ár! Þau fylgja mér inn í fullorðinsárin og renna einsog Elliðaárnar inn og út úr heim- inum. Eða einsog áin í lagi Bruce Springsteens. The River. Eða ég ætti eiginlega frekar að segja Neil Young? Það heitir Down by the River og er frá þessum tíma, '67 eða '68. Árið 1967 er kennt við ástina, summer of love, hitt við uppreisnir og byltingar, '68 byltingarnar, París, Prag og allt það. Víetnam. Sjálf fermingin er mér minnisstæð og auðvitað fermingar- veislan en eiginlega man ég betur allan undirbúninginn, tímana. Það var allsherjarverkfall skömmu fyrir ferminguna og allt var mjólkurlaust í bænum en tímarnir og samfélag- ið ruddust inn í kirkjuna. Hún varð einskonar félagsmiðstöð. Rokkhljóm- sveit skólans sem hét Amor lék þar rokktónlist, söng She's not there með Zombies, ef ég man rétt. Að minnsta kosti tveir fermingardrengir voru í bandinu, Sigurður Valgeirsson, sjón- varps- og blaðamaður, og Tómas M. Tómasson, verðandi Stuðmaður með stórum staf. Á eftir bandinu kom strákur sem síðar varð frystihússtjóri og las úr Rauða kverinu eftir Maó úr predikunarstólnum og því næst sýndi presturinn myndir með Gög og Gokke og Chaplín. Tímarnir voru að breytast en boðskapurinn komst til skila. Það tók bara tíma. Jesús var þarna. Við vorum svo mikið með hugann við ástina eða böllin í Breiðfirðingabúð og Templarahöllinni að við þurftum stundum að hlaupa út úr miðri mes- su til að ná strætó niður í bæ svo við misstum ekki af innkomunni annað- hvort hjá Kalla Sighvats eða Björgvini Gíslasyni. Þeir voru okkar menn, að vísu ekki í sömu hljómsveitinni, ekki þá. Ég gæti haldið áfram að messa. Það er svo margt sem situr í mér. Að minnsta kosti náði ég mér tvöföldu plötuna hans Björgvins Gíslasonar fyrir síðustu jól og gaf syni mínum hana í jólagjöf. Kannski segir það allt sem segja þarf, en hliðar heimsins eru margar, stundum fjórar einsog á tvö- faldri plötu, stundum fleiri, og breyt- ast eftir því sem tímar líða, en prest- arnir eru þarna, bæði séra Árelíus og séra Sigurður Haukur með lömbin og sálmana og Chaplín og Gög og Gokke. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.