Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Page 40
Helgarblað 26.–29. febrúar 201632 Sport
Fagnað á Laugardalsvelli KR-ingar urðu Bikarmeistarar í ágúst 2014 en hafa síðan ekki unnið titil. Í dag, einu og hálfu ári síðar, leika ekki margir með liðinu sem vann þá, eins og sjá má á myndinni.
K
nattspyrnuáhugamenn
hér á landi hafa á undan-
förnum vikum velt því fyrir
sér hvað sé í gangi hjá sig-
ursælasta og stærsta fót-
boltafélagi landsins, KR. Er Bjarni
Guðjónsson, þjálfari liðsins, að
stokka upp í hópnum eða eru
Vesturbæingar einfaldlega blank-
ir? KR-ingar tryggðu sér Evrópu-
sæti með því að ná 3. sæti á síðustu
leiktíð. Það var ekki sú uppskera
sem þeir röndóttu vonuðust eftir
en Evrópusæti og bikarúrslit var
langt frá því að vera eitthvert
martraðartímabil.
Það er ljóst að ef KR-ingar ætla
sér eitthvað í sumar verður liðið að
bæta verulega í hópinn fyrir átök-
in því Íslandsmeistarar FH munu
mæta enn sterkari til leiks á næstu
leiktíð. Stjörnumenn hafa bætt vel
í sinn hóp og Blikar mæta árinu
reyndari á komandi leiktíð, sem
hefst eftir rúmlega tvo mánuði.
Nokkrir farnir heim
KR-ingar hafa losað sig við tíu leik-
menn frá síðustu leiktíð og þar
af átta leikmenn sem léku stórt
hlutverk. Sóknarmaðurinn Þor-
steinn Már Ragnarsson er farinn
heim til Ólafsvíkur, vængmaður-
inn Almarr Ormarsson var seldur
heim til KA, miðjumaðurinn Jónas
Guðni er farinn heim til Keflavík-
ur, Jacob Schoop er samningslaus
í Danmörku og Sören Frederik-
sen var seldur Viborg í heimalandi
sínu, Danmörku. Þá er varnarjaxl-
inn Grétar Sigfinnur Sigurðsson
farinn í Stjörnuna, danski varnar-
jaxlinn Rasmus Christiansen í Val
og Kristinn Magnússon er hættur
knattspyrnuiðkun.
Gary til Víkinga
Markverðustu félagsskiptin í ís-
lenska boltanum í vetur eru án efa
vistaskipti markahróksins Gary
Martin úr KR í Víking Reykjavík.
Gary, sem er enskur, hefur verið
einn allra besti framherjinn í ís-
lenskum fótbolta frá því hann kom
fyrst til landsins árið 2010 og lék
með ÍA. Gary var sá leikmaður
KR sem gerði flestu deildarmörk-
in fyrir liðið 2013, 2014 og 2015;
árið 2013 fékk hann silfurskóinn
en 2015 sjálfan gullskóinn. Baldur fór í Stjörnuna
Athygli vakti þegar fyrrverandi
fyrir liði KR-inga og einn þeirra
besti leikmaður til margra ára,
Baldur Sigurðsson, ákvað að koma
heim úr atvinnumennsku og
ganga til liðs við Stjörnuna en ekki
KR. Baldur sagði í samtali við út-
varpsþáttinn fótbolti.net á X-inu
að KR hafi ekki haft áhuga á sinni
þjónustu. „KR sýndi lítinn sem
engan áhuga. Ég segi ekki að það
hafi verið svekkjandi en vissulega
fannst mér það skrítið. Ég bauð
þeim upp í dans, eðlilega. Þú gerir
það þegar þú ert búinn að ná góð-
um árangri með liðinu. Ég á ekkert
heimalið í efstu deild, en ef það er
eitthvað þá er það KR. Ég átti mjög
góð sex ár þar, en þeir vildu ekki
stíga dansinn.“
Hólmbert einnig á förum?
Í júlí gekk sóknarmaðurinn Hólm-
bert Aron Friðjónsson til liðs við
KR frá Celtic í Skotlandi. Hólmbert
átti áður misjafna daga í búningi
KR en gerði þó 3 mörk í þeim 10
deildarleikjum sem hann spilaði.
Sænsku meistararnir í Norköpping
hafa gert tvö tilboð í kappann nú í
vetur og hafa ekki gefið upp von-
ina að fá hann frá KR.
Góðir nýliðar en þunnur hópur
KR-ingar hafa fengið góða leik-
menn til liðs við sig í vetur. Hæst
ber að nefna Indriða Sigurðsson
sem er kominn heim eftir 17 ár
í atvinnumennsku. Indriði, sem
verður 35 ára gamall á árinu, mun
leika í hjarta varnarinnar ásamt
Skúla Jóni Friðgeirssyni. Þá hefur
liðið fengið Finn Orra Margeirsson
frá Lilleström í Noregi en Finn-
ur leikur stöður varnartengiliðs
eða sem miðvörður. Þá hefur liðið
fengið þrjá Dani, Michael Præst,
miðjumann frá Stjörnunni, sem
átti erfitt uppdráttar á síðustu leik-
tíð, Kennie Chopart, vængmann
frá Fjölni og Morten Beck And-
ersen, sóknarmann frá Hobro.
Kallað í 2. flokkinn?
KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í
3. flokki árið 2014 og uppistaðan úr
þeim hópi er nú á miðári í 2. flokki.
Eflaust munu einhverjir leikmenn
úr 2. flokki fá tækifæri með liðinu
en ljóst að ætli KR-ingar sér alvöru
hluti í sumar verða þeir að sækja
fleiri gæða fullorðna knattspyrnu-
menn. n
Flóttinn mikli Frá kr
n Bjarni Guðjónsson mótar nýtt lið n Eru ástæðurnar af fjárhagslegum toga?
Hjörvars Hafliðasonar
Hápressa Farnir frá því
Bjarni tók við:
n Baldur Sigurðsson til SönderjyskE
n Egill Jónsson í Víking Ó
n Guðmundur Reynir Gunnarsson í
Víking Ólafsvík
n Haukur Heiðar Hauksson til AIK
n Atli Sigurjónsson til Breiðabliks
n Farid Zato til Kára
n Almarr Ormarsson í KA
n Emil Atlason í Þrótt
n Gary Martin í Víking R.
n Grétar Sigfinnur Sigurðarson í
Stjörnuna
n Jónas Guðni Sævarsson í Keflavík
n Kristinn Jóhannes Magnússon, lagði
skóna á hilluna.
n Rasmus Christiansen í Val
n Sören Frederiksen í Viborg
n Þorsteinn Már Ragnarsson í Víking Ó.
n Jacob Schoop - samningslaus
Komnir frá því
Bjarni tók við:
n Kristinn Jóhannesson Magnússon frá
Víkingi R.*
n Pálmi Rafn Pálmason frá Lilleström
n Skúli Jón Friðgeirsson frá Elfsborg
n Sören Fredriksen frá Aab **
n Rasmus Christiansen frá Ull/Kisa**
n Jacob Schoop frá OB **
n Hólmbert Aron Friðjónsson frá Celtic
n Finnur Orri Margeirsson frá Lilleström
n Indriði Sigurðsson frá Viking
n Kennie Chopart frá Fjölni
n Morten Beck Andersen frá Hobro
n Michael Præst frá Stjörnunni
*Hættur
** Farnir aftur
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofanar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Ekki í KR Baldur segir að KR hafi ekki haft
áhuga. KRREyKjaVíK.iS