Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 4
Aðalheiður Gunnarsdóttir
íbúi á Akureyri
fær ekki vistun
á öldrunar-
heimilinu Hlíð
á Akureyri með
eiginmanni
sínum, Stefáni
Þórarinssyni, sem
hún hefur verið gift í 65 ár. Aðal-
heiður er talin of hraust. Hún er
ári yngri en Stefán sem er á 91.
aldursári. „Mér líður eins og þetta
sé skilnaður að vissu leyti. Þegar ég
fékk þessar fréttir fannst mér þetta
mikið högg og mér finnst þetta
sárt,“ sagði Aðalheiður.
Friðjón Einarsson
formaður bæjarráðs
Reykjanesbæjar
sagði breyting-
una á aðal-
skipulaginu sem
útilokar frekari
uppbyggingu
mengandi iðn-
aðarstarfsemi vera til
vitnis um nýja hugsun í uppbygg-
ingu Reykjanesbæjar til framtíðar.
Ákvörðunin væri ekki afturvirk
en næði United Silicon ekki að
uppfylla þau ströngu skilyrði sem
um fyrirtækið gilda þá yrði verk-
smiðjunni lokað.
Valgerður Sverrisdóttir
fv. iðnaðar- og við-
skiptaráðherra
bar fyrir sig
minnisleysi og
kvaðst ekki ætla
að bregðast
við fullyrðingu
Benedikts Sig-
urðarsonar, fulltrúa
Kaldbaks, um að hún hefði skellt á
hann hurðum þegar hann greindi
henni frá því að franski bankinn
Société Générale hefði aldrei ætlað
að fjárfesta í Búnaðarbankanum.
Tölur vikunnar 02.04.2017 Til 08.04.2017
500 milljónum meira kostar
það á ári að leigja björgunarþyrlur
en að kaupa þær.
778
milljónir voru greiddar af ferðamönn-
um fyrir heilbrigðisþjónustu í fyrra.
22,5%
virðisaukaskattur
er fyrirhugaður
á ferðaþjónustu.
683 bátar hafa
stundað strandveiðar að
meðaltali á ári frá 2009.
83 tonn af mat-
vælum fara á ári hverju
í lífrænan úrgang.
501 kynferðisbrot
var skráð á síðasta ári.
971.000
krónur voru meðalmánaðar-
laun starfsmanna Seðlabanka
Íslands í fyrra.
1.200 tillögur bárust
í nafnasamkeppni um heiti á
götum og torgum í hverfinu
201 Smári í Kópavogi.
Umboðsaðili Jeep á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
FÁGUN STAÐALBÚNAÐUR
*U
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
Öflugur, kraftmikill og ríkulega útbúinn
jeppi með frábæra aksturseiginleika.
Komdu og reynsluaktu. Opið í dag 12-16.
Sjálfskiptur 9 þrepa
2,2 l dísel 185 hestöfl eða 200 hestöfl
Eyðsla 5,7 L/100 km*
Verð frá 6.990.000 kr.
jeep.is
Svíþjóð Að minnsta kosti fjórir
létu lífið þegar vöruflutningabíl
var ekið inn í verslun Åhléns í mið-
borg Stokkhólms, höfuðborgar Sví-
þjóðar. Þá er staðfest að að minnsta
kosti átta séu særðir eftir árásina.
Eigandi brugghússins Spendrups
staðfesti í gær að vöruflutningabíl
fyrirtækisins hefði verið stolið um
morguninn á meðan bílstjórinn var
að afferma bílinn. Honum var svo
ekið inn í verslunina klukkan eitt
að íslenskum tíma.
Við árásina var búðin rýmd. Þá
lögðust almenningssamgöngur
niður og vegum var lokað. Borgar-
yfirvöld opnuðu skóla og íþrótta-
mannvirki til að hýsa þá sem ekki
komust leiðar sinnar vegna truflana
á samgöngum.
Var gestum verslana í nágrenn-
inu og starfsfólki gert að halda sig
innandyra á meðan öryggi á svæð-
inu var tryggt. Jafnframt var íbúum í
miðbænum sagt að halda sig heima.
Skömmu áður en Fréttablaðið fór
í prentun var maður handtekinn.
Greindi ríkisútvarp Danmerkur frá
því að hinn handtekni passaði við
lýsingu af manni sem lögregla hafði
lýst eftir.
Lögregla birti fyrr um daginn
mynd úr öryggismyndavélakerfi af
manninum. Á blaðamannafundi
sagði lögreglustjórinn Anders
Thornberg að lögreglan vildi ná tali
af honum.
Ríkislögreglustjórinn Dan Elias-
son sagði á blaðamannafundi að
lögreglumenn myndu gera allt sem
í þeirra valdi stæði til þess að ná
sökudólgnum. „Eins og þið vitið
eru margir særðir. Á þessari stundu
getum við ekki staðfest hversu
margir eru látnir eða særðir,“ sagði
Eliasson.
Í yfirlýsingu frá Stefan Löfven
forsætisráðherra segir að ráðist hafi
verið á Svíþjóð. „Allt bendir til þess
að um hryðjuverkaárás sé að ræða.
Hugur okkar er hjá fórnarlömb-
unum, fjölskyldum þeirra og hinum
særðu,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir að ríkisstjórninni sé hald-
ið upplýstri um framgang mála. Hún
geri allt sem hún geti til að aðstoða
lögreglu við vinnu sína. „Ég hvet alla
til að vera á varðbergi og fylgjast
með nýjustu upplýsingum frá lög-
reglu,“ segir enn fremur.
Karl sextándi Gústaf Svíakon-
ungur var í opinberri heimsókn í
Brasilíu þegar árásin var gerð. Í yfir-
lýsingu sem hann sendi frá sér í gær
segir að hann hafi ákveðið að flýta
heimferð sinni.
Árásin er ekki sú fyrsta af þessu
tagi í Evrópu. Í júlí í fyrra féllu til
dæmis 86 í sambærilegri árás í Nice
í Frakklandi. thorgnyr@frettabladid.is
Fjórir látnir og fjölmargir særðir
eftir árásina í Stokkhólmi í gær
Minnst fjórir létust þegar vöruflutningabíl var ekið inn í verslun í miðborg Stokkhólms. Maður sem lýst
var eftir var handtekinn. Samgöngur lágu niðri og íbúum miðborgarinnar var gert að halda sig innandyra.
Ríkislögreglustjórinn í Svíþjóð heitir því að lögreglumenn geri allt til þess að ná sökudólgnum.
Vöruflutningabílnum var ekið inn í verslun Åhléns. Nordicphotos/AFp
Hugur okkar er hjá
fórnarlömbunum,
fjölskyldum þeirra og hinum
særðu.
Stefan Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar
Þrjú í fréttum
Aðskilnaður,
mengun og
minnisleysi
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-8
E
0
8
1
C
A
1
-8
C
C
C
1
C
A
1
-8
B
9
0
1
C
A
1
-8
A
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K